Fréttablaðið - 26.09.2016, Page 11
Kæli- og frystiskápur
„VitaFresh“-skúffur. „NoFrost“-tækni.
Lyktarsía. H x b x d: 186 x 60 x 66 sm.
Fullt verð: 159.900 kr.
Tækifærisverð (hvítur): KGN 36XW35
127.900 kr.
A
Ryksuga
Orkuflokkur B. Útblástur A. Parkett
og flísar, flokkur D. Teppi, flokkur E.
Fullt verð: 19.900 kr.
Tækifærisverð: VS 06B120
15.900 kr.
Tækifæri
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
Hvað á að segja um vand-ræðaganginn sem ríkir í ferðaþjónustunni? Minnir
hann ekki á söguna af fátæku
hjónunum sem alls óvænt stóð til
boða að fá þrjár óskir uppfylltar?
Og konan, sem var svöng, óskaði
sér bjúga. Við það trylltist bóndinn
og í hefndarskyni óskaði hann
að bjúgað hoppaði upp á nefið á
konunni. Og honum varð að ósk
sinni. Þá var aðeins ein ósk eftir og
auðmjúk fóru þau fram á að bjúgað
hyrfi af nefi kerlingar. Í sárabætur
skulum við gera ráð fyrir að þau
hafi fengið að éta bjúgað sem eftir
stóð.
Handarbakavinnan, vindhöggin
og vandræðagangurinn sem ríkir í
ferðamálum okkar er með hreinum
ólíkindum. Staðan er þessi: vel á
aðra milljón erlendra ferðamanna
steypast yfir landið þessi misserin
og viðbúnaður af hálfu hins opin-
bera er enginn. Ég tel ekki með
þegar ráðherra málaflokksins
smíðaði apparat utan um flokks-
gæðing á ofurlaunum sem ungaði út
einni tillögu: að einkavæða náðhús
hringinn í kringum landið. En vega-
kerfið, til að mynda, sem á að flytja
allt þetta fólk út í dásemdina er með
öllu vanbúið, enda deyja erlendir
ferðamenn hér eins og flugur, eða
öllu heldur eins og farfuglarnir sem
umferðin straujar yfir um hásumar-
tímann.
Þjónustugeirinn er sá eini sem
þekkir sinn vitjunartíma, lunda-
búðir leggja undir sig miðbæinn,
veitingastaðir og barir – og hótel.
Rándýrar hótelbyggingar þjóta upp
eins og gorkúlur – og munu standa
eftir eins og fallnir kúalubbar þegar
ferðamannabylgjan hefur fjarað
út – því það mun hún gera fyrr eða
síðar. Ríkið aftur á móti situr uppi
með smáaura í skatttekjur.
Ísland hefur breyst
í skemmtistað
Blasir ekki við að Ísland er þjóð-
garður? Innkomugjald á að inn-
heimta með líkum hætti og flug-
vallarskatt. „Já, en það fælir frá,“
segja ferðaskrifstofurnar, „við erum
í samkeppni.“ Og hvað með það,
við þurfum einmitt að fækka ferða-
mönnum, talsvert. Það er ekki hægt
að hleypa inn á skemmtistað löngu
eftir að hann er orðinn fullur og
Ísland hefur breyst í skemmtistað.
En hvernig stendur á að okkur
er svo fyrirmunað að njóta góðs
af gæftum þessa lands? Einhver
auðugustu fiskimið í heimi eru
notuð til þess að rústa sjávarpláss-
unum og arðurinn settur í troðna
og skekna vasa örfárra sem þurfa
háþróuð fjármálavísindi til að
koma honum fyrir, helst í skatta-
skjólum. Raforka fallvatnanna er
boðin erlendum álrisum sem með
gabbhreyfingu koma ofurgróð-
anum í til þess gerð dótturfélög …
Hvernig má þetta vera? Getur
verið að svarið sé að við vorum
nýlenda í sjö aldir? Við höfum ekki
verið sjálfstæð nema í örfá ár. Enn
er á meðal okkar fólk sem fæddist
árið sem við urðum sjálfstæð, 1918.
Við erum byrjendur. Aftur á móti
höfum við margra alda reynslu í
því að láta traðka á okkur. Og ef við
missum hina útlendu herra komum
við okkur upp innlendum.
Hvað heitir á máli sálfræðinnar
þegar menn hafa nautn af því að
vera kvaldir? Masókismi? Eða jafn-
vel sadó-masókismi, þegar kvala-
losti og sjálfspíslarhvöt fara saman.
Góðir landsmenn, er ekki mál að
rísa upp af gólfinu?
Vandræðagangur
Pétur
Gunnarsson
rithöfundur
Það er ekki hægt að hleypa
inn á skemmtistað löngu
eftir að hann er orðinn
fullur og Ísland hefur breyst í
skemmtistað.
Það er einhver búð í Eng-landi sem kallar sig Ice land og vill banna íslenskum stjórnvöldum að nota þetta „vöru-
merki“ í markaðssetningu á ferða-
lögum til landsins. „Hjá okkur
versla milljónir, þeir eru bara
300.000!“ segja þeir drembilega
eins og réttlætið sé spursmál um
mannafla. Okkur er að sjálfsögðu
öllum ákaflega misboðið yfir þessu.
Eiginlega er það sambærilegt við að
staðarhaldarar í Edinborgarhúsinu
á Ísafirði reyndu að setja lögbann
á að samnefnd borg í Skotlandi fái
að nota nafnið til að kynna menn-
ingarhátíðina sína.
Ekki í mínu nafni
Kaupmangara-frekja. Stórþjóðar-
þótti. Manni verður heitt í hamsi
við það eitt að leiða hugann að
þessu.
Um svipað leyti hafa orðið æ
rúmfrekari í þjóðfélagsumræðunni
nokkrir einstaklingar sem kenna
sig við íslenska þjóðfylkingu og
láta sem þeir tali í nafni lands og
þjóðar – okkar hinna – Íslendinga
– þegar þeir boða andúð á innflytj-
endum. Þessir einstaklingar finn-
ast mér eiga ámóta mikið tilkall til
þess að tala í nafni lands og þjóðar
og ensku kaupahéðnarnir að nota
einir enskt nafn landsins okkar.
Mér finnst það óþægilegt sem
Íslendingi að þeir skuli gera það.
Þessir einstaklingar hafa að
minnsta kosti ekkert umboð frá
mér og mig langar að mælast til
þess að þeir kenni sig ekki við
þjóðina mína þegar þeir eru að
viðra ótta sinn og hégiljur. Fulltrúi
þeirra var í sjónvarpsumræðum
á dögunum – einn af foringjum
flokkanna sem bjóða nú fram til
alþingis, og stóð þarna eins og
hann væri húsum hæfur. Hann hélt
því fram að lögreglan vogi sér ekki
inn í viss hverfi í Svíþjóð og að þar
gildi sjaría lög. Þetta er rangt, svipað
fleipur og Donald Trump hefur
farið með um London.
(Annað mál er að fólki fylgir
alltaf vesen og alls konar úrlausnar-
efni, og í vissum hverfum í Svíþjóð,
eins og um allan heim, hafa að sjálf-
sögðu orðið til samfélög innflytj-
enda, með kostum og ókostum sem
slíku fylgja og þar hafa glæpagengi
verið til vandræða og herjað á íbúa;
siðir frá gamla landinu rekast á siði
í nýja landinu, gamlar trúargrillur
og hugmynda-usli skapar uppnám
og sumir jafnvel móttækilegir fyrir
hatursboðskap af svipuðu tagi og
þjóðfylkingarmenn hér aðhyllast.)
En þarna stóð sem sé þessi
maður og hélt þessum firrum fram
um hverfin í Svíþjóð – hafði heyrt
þetta einhvers staðar – mundi
samt ekki alveg hvernig þetta var
nákvæmlega, sem ekki var von því
að hann fór með fleipur. Vissi bara
að hann er á móti „þeim“. Kannski
tímanna tákn að slíkur maður komi
að borðinu í íslenskum stjórnmála-
umræðum – það gat ekki gengið
endalaust að við hér gætum státað
okkur af langvinnu gengisleysi
rasista, eins og hefur verið fram til
þessa í þessu tiltölulega frjálslynda
og víðsýna samfélagi sem hér er.
Hann stóð þarna sem fulltrúi
þeirra sjónarmiða að ekki eigi að
rétta öðru fólki hjálparhönd – ekki
eigi að sýna öðru fólki umburðar-
lyndi; ekki eigi að gefa öðru fólki
tækifæri til að sýna sig og sanna
heldur eigi að dæma fólk fyrirfram
út af uppruna, klæðaburði, útliti,
fasi. Fulltrúi þeirra sjónarmiða
að sumt fólk eigi ekki að njóta
mannréttinda; rétt sé að mismuna
fólki á grundvelli uppruna, útlits
og klæðaburðar. Fulltrúi þeirra
sjónarmiða að samfélagið skiptist
skýrt í „okkur“ og „hin“ og að „við“
séum betri en „þau“. Fulltrúi þeirra
sjónarmiða að það „verði að taka
umræðuna“ um það hvort annað
fólk eigi skilið að lifa og starfa og
anda eða hvort slíkt eigi bara að
vera fyrir „okkur“. Fulltrúi þeirra
sjónarmiða að mismunun sé æski-
leg, óréttlæti sé nauðsyn.
Og heldur þessu öllu fram – leynt
og ljóst – sem einhvers konar full-
trúi Íslendinga. Mætti ég fara fram
á að hann, og skoðanasystkini
hans, hætti því?
Íslendingar eru ekki gömul þjóð;
af þjóðum að vera eru þeir eins og
hálfgerð Surtsey, verða til á tíundu
öld eftir Krist. Og hafa skráð tilveru
sína hjá sér næstum jafnharðan,
alveg frá Landnámu og Íslendinga-
bók. Á sínum tíma byggðist landið
frá Noregi, Orkneyjum – og Írlandi.
Það sýna genarannsóknir. Og víðar
Umboðslaust
mannhatur
að – og í slíku fámenni munar vita-
skuld um hvern og einn sem er „nýr
og öðruvísi“. Strax við landnám
verður til pottur hér, fólk af ýmsum
uppruna sem býr hér saman við
misjafna sátt og samlyndi – en þetta
var frjó menning á meðan hún naut
reglulegra siglinga. Íslensk menn-
ing er í eðli sínu fjölmenning. Þetta
er eymenning og verður til úr því
svolítið tilviljanakennda safni sem
hingað skolar á strendur. Íslands-
sagan sýnir það að íslensk menn-
ing nær alltaf mestum blóma þegar
landið er sem opnast og siglingar
eru sem greiðastar, hvort sem við-
skiptin voru við Hamborgarkaup-
menn eða Englendinga. Um leið og
landið lokast trénast líka menning-
in og hún er eins og geymd í pækli
í nokkur hundruð ár, allt þar til
landið tekur á ný að opnast undir
lok 19. aldar.
En Íslendingar eru ágætir. Sum
þjóðareinkenni skemmtileg, sumt
í arfinum stórmerkilegt, annað
heimóttarlegur búraskapur. Eins og
gengur. Við eigum okkar skömm,
þar sem eru Spánverjavígin á 16.
öld og framkoman við gyðinga á
flótta undan nasistum á 20. öld.
En við eigum líka margar sögur um
skipbrotsmenn sem nutu aðhlynn-
ingar á íslenskum sveitabæjum og
var hjúkrað á ný til lífs af íslensku
alþýðufólki.
Spurningin er bara hvorum arf-
inum við viljum halda á lofti.
Guðmundur
Andri Thorsson
rithöfundur
Í dag
Eiginlega er það sambæri-
legt við að staðarhaldarar í
Edinborgarhúsinu á Ísafirði
reyndu að setja lögbann á að
samnefnd borg í Skotlandi fái
að nota nafnið til að kynna
menningarhátíðina sína.
NÝTT OG
BETRA APP
Smelltu þér á Fréttablaðsappið og
lestu blaðið í símanum eða
spjaldtölvunni
hvar og hvenær
sem er.
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 2 6 . s e p T e M B e R 2 0 1 6
2
6
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:4
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
A
E
-3
D
9
0
1
A
A
E
-3
C
5
4
1
A
A
E
-3
B
1
8
1
A
A
E
-3
9
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
2
5
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K