Fréttablaðið - 14.09.2016, Blaðsíða 32
Markaðurinn Íslenska úrvalsvísitalan1.759,35 -0,75%(-13,38)
Miðvikudagur 14. september 2016fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál |
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskiptiwww.visir.is
Tekjuafkoma hins opinbera reyndist
jákvæð um 6,6 milljarða króna á öðrum
árs fjórð ungi 2016, en á sama tíma 2015
var hún neikvæð um 11,6 milljarða króna
samkvæmt tölum Hagstofunnar. Tekjuaf-
gangurinn nam 1,1 prósenti af landsfram-
leiðslu árs fjórðungs ins eða 2,7 prósentum
af tekj um hins opinbera. Fyrstu sex mán-
uði ársins var afgangurinn 371,5 milljarðar
eða 43,1 prósent af tekjum tímabilsins.
6,6
milljarða tekjuafgangur
Skráð atvinnuleysi var tvö prósent í ágúst-
mánuði samkvæmt tölum Vinnumálastofn-
unar. Að meðaltali voru 3.553 atvinnulausir í
ágúst og fækkaði atvinnulausum um 117 að
meðaltali frá júlí. Hlutfallstala atvinnuleysis
breyttist þó ekki milli mánaða. Atvinnuleysi
var 1,5 prósent meðal karla en 2,5 prósent
meðal kvenna. Mest var atvinnuleysi á höfuð-
borgarsvæðinu eða 2,3 prósent. Minnst var
atvinnuleysið á Norðurlandi vestra, 1 prósent.
2%
atVinnuleysi
11.9.2016
Ég veit nú ekki hvaða rök gætu
staðið til þess að breyta lýðræðis-
legri niðurstöðu sem er náð fram með
aðferð sem er fyrir fram ákveðin og viður-
kennd. Þannig að það væri afskaplega
torsótt að rökstyðja það, hvernig á að
breyta lýðræðislegri niðurstöðu af því
að mönnum líkar hún ekki.
Páll Magnússon, sem varð efstur í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi
Markaður með hlutabréf er í eðli
sínu skoðanaskipti um verðmæti.
Verðmyndun ræðst af samningum
milli kaupenda og seljanda. Nýjar
upplýsingar eða rök skipta þar máli.
Ekki er óalgengt að nýjar grein-
ingar á fyrirtækjum og verðmat
þeirra hafi áhrif á markaði. Síðustu
vikuna höfum við einmitt séð slíkar
breytingar í kjölfar greininga. Í
síðustu viku breyttist verð á trygg-
ingafélögunum í kjölfar birtingar
samanburðarverðmats greiningar-
deildar Capacent. Capacent var
enn á ferð síðastliðinn föstudag
þegar félagið birti nýtt verðmat á
HB Granda. Bréf sjávarútvegsrisans
lækkuðu í kjölfar þess að Capacent
sendi greininguna til viðskiptavina
sinna.
Verðbreytingar
vegna greininga
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
ICELAND, ENGIHJALLA,
VESTURBERGI OG ARNARBAKKA
GÓMSÆTAR
CHICAGO TOWN
PIZZUR
Chicago Town
2 í pakka / 3 teg.
399
Kr. Pk
Verð
Hörður Ægisson, ritstjóri DV, skrifar
athyglisverða úttekt á stöðu sölu
Arion banka. Hörður er jafnan með
góða heimildarmenn og puttann á
púlsinum, sérstaklega þegar kemur
að slitabúum og kröfuhöfum.
Samkvæmt úttektinni liggur
Kaupþingi talsvert á að selja og
vill koma út hlut fyrir breytingar á
Alþingi. Rætt er um að seldur verði
20-40% hlutur til lífeyrissjóða.
Margvísleg óvissa er enn þá um fjár-
málakerfið. Sérstakur skattur er enn
við lýði og mál manna að kerfið sé
enn þá of stórt. Eins og þekkt er, þá
er óvissa einn höfuðóvinur fjárfesta.
Lífeyrissjóðir ættu samkvæmt því að
vera í nokkuð góðri stöðu að þrýsta
verðinu niður. Tímaþröng seljenda
ætti því að gefa þeim afar sterka
samningsstöðu, því ekki er mörgum
öðrum kaupendum til að dreifa.
Tímapressa
arionsölu
Kaupþingi liggur á að selja Arionbanka.
Nýjustu hagtölur ættu að gleðja
flesta. Það er sama hvert litið er.
Hagvöxtur er mikill, atvinnuleysi
lítið og afgangur af rekstri hjá rík-
inu. Almennt ætti þessi staða að
vera verulega í hag ríkjandi stjórn-
völdum, en kannanir sýna annað.
Skýringa hlýtur að vera að leita
annað og ekki er að efa að innan
núverandi stjórnarflokka fer sú
umræða fram í aðdraganda kosn-
inga.
allir hagvísar
benda upp
1
4
-0
9
-2
0
1
6
0
3
:4
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
8
F
-D
4
5
C
1
A
8
F
-D
3
2
0
1
A
8
F
-D
1
E
4
1
A
8
F
-D
0
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K