Fréttablaðið - 14.09.2016, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 14.09.2016, Blaðsíða 14
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Hafliði Helgason haflidi@frettabladid.is Við í Dögun ætlum að út- rýma fátækt á Íslandi og við erum ekki til umræðu um neitt annað. Við munum lögfesta fram- færsluvið- mið. Mætir menn, m.a. hagfræðingar, halda því fram og með rökum að við Íslendingar séum álíka ríkir og Norðmenn. Sem sagt við erum rík en þrátt fyrir það er til fólk á Íslandi sem er fátækt. Staðreynd sem gengur bara upp vegna þess að þeir efnameiri horfa í hina áttina og viðurkenna ekki vandann. Í því liggur skömm okkar. Það er einfaldlega ekki hægt að standa í einhverjum rökræðum um málið. Við verðum einfaldlega að leiðrétta þetta mannréttindabrot strax. Búa við sára fátækt Það eru börn sem búa við fátækt á Íslandi þar sem heimili þeirra ná ekki endum saman. Þessi börn búa við mjög skert kjör. Þau horfa upp á félaga sína vel klædda og ætíð metta, einnig hafa þau ekki möguleika á frístunda- eða íþróttaiðkun. Það eru til öryrkjar og aldraðir sem búa við sára fátækt og eru búnir með launin sín um miðjan mánuðinn. Allt of stór hópur treystir á matargjafir hjálparstofnana og góðhjartaðra ættingja. Fjöldi fólks getur ekki leyst út öll lyfin sín og dregur við sig að sækja læknisþjónustu. Það er búið að segja þetta margoft en lítið gerist, einhver óskiljanleg tregða eins og menn haldi að vandamálið hverfi af sjálfu sér eins og þynnka. Afnám tekjutenginga Við sem þjóð verðum að taka okkur taki. Dögun hefur haft það í kjarnastefnu sinni frá upphafi að útrýma fátækt. Við í Dögun ætlum að útrýma fátækt á Íslandi og við erum ekki til umræðu um neitt annað. Við munum lögfesta framfærsluviðmið. Þessi viðmið verða algild og allir aðilar í þjóðfélaginu verða að fara eftir þeim. Þessi viðmið verða það há að þau duga fyrir mannsæmandi framfærslu. Við ætlum að hækka skattleysismörk og afnema tekjutengingar. Þetta mun gilda um alla sem búa við fátækt af hvaða sökum sem er og þar með talda öryrkja og aldraða. Fátækt Helga Þórðardóttir formaður Dögunar Geðheilsustöð Breiðholts og Hugarafl Opin fræðsla 15. september Kl. 18:00-20:00 Borgartúni 22, 3. hæð Fyrirlesari er Þorsteinn Kristján Jóhannsson Allir velkomnir – Aðgangur ókeypis Tölvufíkn Guðni grafinn Stuðningsmenn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hafa risið upp á afturlappirnar gegn Guðna Ágústssyni vegna ummæla hans í Fréttablaðinu í gær. Anna Sigurlaug Pálsdóttir, eiginkona Sigmundar, varð fyrst til og sagði Guðna í raun hafa brotið eigið heiðursmannasamkomulag. Ekki sæmdi að fyrrverandi formenn hjóluðu í núverandi formenn. Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir borgarfulltrúi lýsti óánægju sinni og Gunnlaugur Sigmundsson, faðir Sigmundar, sagði Guðna hafa valið tímasetningu sína vel til að skaða soninn sem mest. Þetta er hávær en þröngur hópur sem þarna reynir að grafa Guðna. Spurning hvorn formanninn Framsóknarmenn munu styðja. Kraginn í kröggum Það hefur ekki farið fram hjá neinum að konur guldu afhroð í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kraganum um helgina. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er líkleg til að sækja enn frekar í kjósendahóp Sjálfstæðisflokksins en áður var talið. Fleiri flokkar þurfa þó að verjast Viðreisn í kjördæminu en Herdís Hallmarsdóttir, eiginkona Magnúsar Orra Schram sem var í öðru sæti í formannskjöri Sam­ fylkingarinnar fyrir stuttu, tekur sæti á lista Viðreisnar. Stuðningur hennar sýnir að hægri sinnaðri flokksmenn Samfylkingar geta nú valið sér nýjan flokk í kjör­ klefanum. snaeros@frettabladid.is Á morgun verða liðin átta ár frá því að bandaríski fjárfestingarbankinn Lehman varð gjaldþrota. Sá atburður hratt af stað atburðarás sem hafði gríðarlegar afleiðingar um heim allan.Árin á undan hafði hlaupið feikilegur vöxtur í íslenskt bankakerfi sem hafði alþjóðavæðst og vaxið hagkerfinu yfir höfuð. Nágrannaþjóðir okkar svo sem Bretar og, það sem síðar kom í ljós, Danir dældu lausafé inn í sína banka. Hér var aldrei mögu- leiki á slíku. Afleiðingarnar eru öllum kunnar. Við tóku erfið ár sem reyndu jafnt á fjárhagsstöðu fólks sem og andlega líðan. Umræða hér á landi hefur hingað til nánast ein- skorðast við umræðu um einstaklinga og einstök fyrir- tæki. Minna hefur farið fyrir því að ræða kerfið sjálft og með hvaða hætti er skynsamlegt að byggja upp heilbrigt fjármálakerfi og atvinnulíf.   Víða um heim hefur frá fjármálakreppunni 2008 verið unnið mikið starf þar sem dreginn hefur verið lærdómur af því sem úrskeiðis fór í fjármálakerfinu árin fyrir 2008. Þegar slík áföll dynja yfir heiminn er eðlilegt að mikill hluti umræðunnar sé tilfinningaþrunginn. Slíkt er mannlegt. Þegar frá líður er mikilvægt að beita greinandi og gagnrýnni hugsun til að draga lærdóm af fyrri mistökum. Í raun greinir kreppan sem hófst 2008 sig ekki mikið frá öðrum kreppum fyrri tíðar. Grunnur hennar hefð- bundin lánsfjárdrifin fasteigna- og eignabóla sem sprakk. Samtök fjármálafyrirtækja halda fund í dag þar sem kynnt er skýrsla sem ber yfirskriftina: Hvað hefur breyst? Rætt er við skýrsluhöfunda í Markaðnum í dag. Í almennri umræðu má gjarnan heyra að lítið hafi breyst í fjármálakerfi heimsins. Skýrslan sýnir hins vegar annað. Viðamiklar breytingar hafa verið gerðar á umgjörð fjármálakerfisins sem tryggja eiga betur vernd inni- stæðueigenda og verja fjármálastöðugleika þjóða. Markmið regluverks um fjármálakerfi hlýtur ævinlega að tryggja heilbrigðan vöxt og stöðugleika og forða almenningi frá áföllum. Ísland setti neyðarlög við fall bankanna. Með þeim tókst að halda gangandi þeirri bankastarfsemi sem snýr að almenningi. Sú ákvörðun var gagnrýnd erlendis, en í tilskipunum Evrópusambandsins um starfsemi fjármálafyrirtækja má sjá að leitað hefur verið í smiðju viðbragða Íslendinga við falli bankanna. Nú hillir undir afnám gjaldeyrishafta og að Íslend- ingar geti á ný tekið þátt í alþjóðaviðskiptum með sama hætti og nágrannaþjóðir. Þegar við stígum út úr fiskabúri gjaldeyrishaftanna er mikilvægt að regluverk og samkeppnishæfni atvinnulífs og fjármálakerfis sé tryggt. Ef okkur á vel að farnast þarf umgjörð og reglu- verk fyrirtækja að vera sambærilegt við það sem gerist og gengur meðal þjóða sem við berum lífskjör okkar saman við. Skýrsla SFF er þarft innlegg í þá umræðu.    Umgjörð banka Markmið regluverks um fjármála- kerfi hlýtur ævinlega að tryggja heil- brigðan vöxt og stöðug- leika og forða almenningi frá áföllum. 1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m I Ð V I K U D A G U r14 s K o Ð U n ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð SKOÐUN 1 4 -0 9 -2 0 1 6 0 3 :4 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 8 F -B 1 C C 1 A 8 F -B 0 9 0 1 A 8 F -A F 5 4 1 A 8 F -A E 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.