Fréttablaðið - 14.09.2016, Blaðsíða 16
körfubolti „Menn eru svolítið
þreyttir en að verða tilbúnir í stóra
leikinn hér heima,“ segir Craig Peder-
sen landsliðsþjálfari en Ísland spilar
gríðarlega mikilvægan leik í Laugar-
dalshöll í kvöld.
Þá kemur Kýpur í heimsókn og
íslenska liðið verður að vinna. Ann-
ars er draumurinn um EM dáinn.
Þetta er næstsíðasti leikur íslenska
liðsins í undankeppninni en loka-
leikurinn er gegn Belgum um næstu
helgi.
Tekið á andlega
Ástæðan fyrir því að Pedersen segir
að menn séu þreyttir er sú staðreynd
að liðið er nýkomið heim eftir langa
dvöl erlendis. Þar spiluðu strákarnir
þrjá leiki á útivelli og vannst sigur í
einum leik. Það var gegn andstæð-
ingum kvöldsins, Kýpverjum, en
íslenska liðið vann með ellefu stiga
mun, 75-64.
„Tólf dagar á hóteli með lítið
að gera getur tekið á menn and-
lega. Nú erum við komnir heim og
getum hlaðið batteríin upp á nýtt.
Við munum taka eitt skref í einu
og aðeins hugsa um einn leik í einu.
Örlögin eru enn í okkar höndum og
þannig vill maður alltaf hafa það,“
segir Pedersen.
Lokaleikurinn á ferðalaginu var
gegn Sviss þar sem íslenska liðið
olli sjálfu sér vonbrigðum með því
að tapa, 83-80, eftir að hafa unnið
leikinn heima, 88-72. Þar var aug-
ljós þreyta í liðinu en hvernig ætlar
þjálfarinn að koma sínu liði í gang
aftur?
Hjálpar að hitta fjölskylduna
„Það skiptir máli að vera kominn
heim til sín og upp í sitt eigið rúm.
Að vera í kringum fjölskyldu sína og
börn. Þessi hluti hjálpar strax mikið
til. Svo var gott að taka stutta æfingu
til þess að hrista skrekkinn úr mönn-
um. Fyrir tveimur árum hefðum við
kannski verið ánægðir með þessa
ferð til Evrópu því það er mjög erfitt
að fara í útileiki. Liðið hefur aftur á
móti verið að ná árangri síðustu árin
þannig að þessi niðurstaða var svo-
lítil vonbrigði. Sviss hafði mikið að
sanna eftir að hafa tapað fyrir Kýpur
og þeir léku af miklum krafti.“
Vantar smá aukakraft
Svo gæti farið að það dugi íslenska
liðinu að vinna leikinn gegn Kýpur til
þess að komast á Eurobasket eins og
EM í körfubolta er kallað. Pedersen
er ekkert að missa sig í einhverjum
reikningskúnstum. Það bíða tveir
leikir og þá á að vinna. En hvernig?
„Við reynum að einbeita okkur að
einum leik í einu. Við þurfum í raun
að spila eins og við gerðum á æfing-
unni í dag. Af miklum krafti og með
mikilli einbeitingu. Við höfum verið
að finna lausnir í sókninni en okkur
vantar smá aukakraft og samheldni í
varnarleiknum. Kýpur er með gott og
skipulagt lið. Við verðum að afgreiða
þann leik af fagmennsku áður en við
horfum lengra.“
Lykilmenn í meiðslum
Það er ekki að vinna með íslenska
liðinu að tveir lykilmenn glíma
við meiðsli. Haukur Helgi Pálsson
tognaði í baki í leiknum gegn Sviss
en mun spila í kvöld. Jón Arnór
Stefánsson missti af tveim fyrstu
leikjunum úti en spilaði sárþjáður
gegn Sviss. Hann spilaði þá í 25
mínútur en skoraði aðeins tvö stig
og var augljóslega ekki í standi.
„Ég hef lítið getað beitt mér út af
hnénu. Er með þessa bölvuðu verki
alltaf og hnéð er ekki í góðu standi.
Það sást langar leiðir í síðasta leik
að ég er ekki í nógu góðu standi.
Vonandi næ ég að koma mér betur
inn í þetta svo ég sé ekki að halda
aftur af mönnum í leiknum,“ sagði
Jón Arnór svekktur en hann hefur
þó verið að æfa.
Leikurinn í kvöld hefst klukkan
20.15. henry@frettabladid.is
Örlögin eru í okkar höndum
Íslenska körfuboltalandsliðið má ekki misstíga sig gegn Kýpur í Laugardalshöllinni í kvöld. Strákarnir ætla
sér að komast á EM og sigur í kvöld er stórt skref í rétta átt. Tap þýðir að liðið er úr leik í baráttunni.
Svona vinnum við þá. Pedersen þjálfari fer yfir stöðuna með Jóni Arnóri Stefánssyni. fréTTAbLAðið/ernir
Leikir sem eru eftir:
Ísland - Kýpur
belgía - Sviss
Ísland - belgía
Kýpur - Sviss
Staðan
belgía ..............................................................................8
Ísland ............................................................................6
Sviss .................................................................................5
Kýpur ..............................................................................5
Er markvisst vinnuverndarstarf á þínum vinnustað?
Í haust heldur Vinnueftirlitið fjölbreytt námskeið um vinnuvernd og slysavarnir.
Námskeiðin eru ætluð öryggistrúnaðarmönnum, öryggisvörðum, stjórnendum,
verkstjórum og öllum sem hafa áhuga á vinnuvernd.
Áhættumat Fallvarnir Slysaforvarnir
Einelti á vinnustað Vinnuvernd
VARÚÐ SLYSAHÆTTA Öryggismenning
Verkstjóraábyrgð Vinnustellingar
EFNAHÆTTUR Líkamsbeyting
Vinnueftirlitið heldur námskeið úti á vinnustöðum um allt land fyrir 10 eða
fleiri þátttakendur. Auk þess höldum við styttri fyrirlestra um vinnuverndarmál
eftir nánara samkomulagi. Kynntu þér framboðið á heimasíðu Vinnueftirlitsins
www.vinnueftirlit.is/fraedsla/
Í dag
Meistaradeild evrópu:
18.15 Meistarad.messan Sport
18.40 Tottenham - Monaco Sport 2
18.40 Juventus - Sevilla Sport 3
18.40 Cl. brugge - Leicester Sport 4
18.40 r. Madrid - Sporting Sport 5
20.45 Meistarad.mörkin Sport
Undankeppni eM 2017:
20.15 Ísland - Kýpur Laugardalshöll
Meistaradeild Evrópu
A-riðill
PSG - Arsenal 1-1
1-0 Edinson Cavani (1.), 1-1 Alexis Sánchez
(77.).
rauð spjöld: Marco Veratti, PSG (90+3.);
Oliver Giroud, Arsenal (90+3.).
basel - Ludogorets 1-1
0-1 Jonathan Cafu (45.), 1-1 Renato Steffen
(80.).
Birkir Bjarnason lék allan leikinn
fyrir Basel.
b-riðill
Dynamo Kiev - napoli 1-2
1-0 Denys Garmash (26.), 1-1 Arek Milik
(36.), 1-2 Milik (45+2.).
rautt spjald: Serhiy Sydorchuk, Dynamo
Kiev (68.).
benfica - besiktas 1-1
1-0 Franco Cervi (12.), 1-1 Anderson Talisca
(90+3.).
C-riðill
barcelona - Celtic 7-0
1-0 Lionel Messi (3.), 2-0 Messi (27.), 3-0
Neymar (50.), 4-0 Andrés Iniesta (59.), 5-0
Messi (60.), 6-0 Luis Suárez (75.), 7-0 Suárez
(88.).
Leik Man City og Mönchenglad-
bach var frestað vegna veðurs.
D-riðill
b. München - rostov 5-0
1-0 Robert Lewandowski, víti (28.), 2-0
Thomas Müller (45+2.), 3-0 Joshua Kimmich
(53.), 4-0 Kimmich (60.), 5-0 Juan Bernat
(90.).
PSV - Atlético Madrid 0-1
0-1 Saúl Níguez (43.).
Nýjast
KriSTJÁN TEKiNN Við SæNSKA
HANdBoLTALANdSLiðiNu
Kristján Andrésson var kynntur
sem þjálfari sænska handbolta-
landsliðsins í gær. Kristján skrifaði
undir tveggja ára samning við
sænska handknattleikssambandið.
Hann tekur við starfinu af ola
Lindgren og Staffan olsson sem
hættu eftir Ólympíuleikana í ríó
þar sem Svíum gekk illa. Kristján
þjálfaði Guif í níu ár en hætti eftir
síðasta tímabili og ætlaði að hætta
í þjálfun. En tilboðið frá sænska
sambandinu reyndist of freistandi.
„Það var erfitt að
hafna þessu
starfi. Ég er
stoltur og
glaður að hafa
fengið þetta
tækifæri. Það
eru spenn-
andi tímar
fram
undan
hjá mér,“
sagði
Kristján
í sam-
tali við
íþrótta-
deild í
gær.
1 4 . s E p t E M b E r 2 0 1 6 M i Ð V i k u D A G u r16 s p o r t ∙ f r É t t A b l A Ð i Ð
sport
1
4
-0
9
-2
0
1
6
0
3
:4
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
8
F
-C
5
8
C
1
A
8
F
-C
4
5
0
1
A
8
F
-C
3
1
4
1
A
8
F
-C
1
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K