Fréttablaðið - 21.05.2016, Side 53
| AtvinnA | LAUGARDAGUR 21. maí 2016 17
• Um er að ræða skemmtilegt og kreandi sölustarf í
fallegu umhverfi.
• Helstu verkefni eru sala á hellum og garðeiningum,
tilboðsgerð og ráðgjöf til viðskiptavina.
• Viðkomandi þarf að hafa þjónustulund og áhuga á
sölumennsku.
Sölumaður – sumarafleysing
BM Vallá óskar eftir að ráða hressan og
skemmtilegan sölumann til sumarafleysinga
í söludeild fyrirtækisins við Breiðhöfða.
Upplýsingar veitir Ásbjörn I.
Jóhannesson, sölustjóri hellu- og
garðeininga. Vinsamlegast sendið
umsókn og ferilskrá á
asbjorn@bmvalla.is
Sérfræðingur í bráðalækningum - Sjúkrahúsið á Akureyri
Laus er til umsóknar staða sérfræðings við bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri. Um er að ræða fulla klíníska stöðu í dag-
vinnu með þátttöku í kennslu unglækna og annarra heilbrigðisstétta. Möguleiki á vöktum í sjúkraflugi. Umsækjendur skulu hafa
íslenskt lækningaleyfi og fullgild réttindi í bráðalækningum en til greina kemur að horfa til annarra sérfræðiréttinda.
Staðan veitist frá 1. júlí 2016 eða eftir nánara samkomulagi.
Bráðamóttakan sinnir móttöku veikra og slasaðra, hún er opin allan sólarhringinn og er sú stærsta á landinu utan hö-
fuðborgarsvæðisins. Árlega eru komur á bráðamóttöku um 16.500. Bráðamóttakan er starfrækt í nýendurbættu húsnæði.
Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða.
Næsti yfirmaður er forstöðulæknir bráðalækninga.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Íslands og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Stefán Steinsson, forstöðulæknir bráðalækninga, í síma 4630100 eða
í tölvupósti stefan@sak.is. Einnig gefur Hildigunnur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri bráða-, fræðslu- og
gæðasviðs upplýsingar um stöðuna í síma 4630100 eða í tölvupósti hildig@sak.is
Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2016.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt upplýsingum um
fræðilegar rannsóknir, rit- og kennslustörf og staðfest afrit af fylgigögnum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyrir eru: Öryggi – samvinna – framsækni.
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins sem er reyklaus vinnustaður.
Sjúkrahúsið hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni.
Sérfræðingur í myndgreiningalækningum
Sjúkrahúsið á Akureyri
Laus til umsóknar staða sérfræðings við myndgreiningadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Myndgreiningadeildin veitir fjölþætta
þjónustu og nær þjónustusvæðið til Norður- og Austurlands. Deildin er mjög vel tækjum búin. Auk almennra röntgentækja eru
á deildinni ný tölvusneiðmyndatæki (CT) og segulómtæki (MR) auk þess sem gerðar eru brjóstamyndatökur (hópskoðanir),
beinþéttnimælingar og ómskoðanir á deildinni.
Um er að ræða fulla klíníska stöðu sem fylgir vaktaskylda og þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta.
Umsækjendur skulu hafa íslenskt lækningaleyfi og fullgild réttindi í myndgreiningalækningum.
Staðan veitist frá 1. júlí 2016 eða eftir nánara samkomulagi.
Næsti yfirmaður er forstöðulæknir myndgreiningalækninga.
Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða.
Laun eru samkvæmt kjarasamn¬ingi Læknafélags Íslands og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.
Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Jóhann Davíð Ísaksson, forstöðulæknir myndgreiningalækninga, í síma 4630100
eða í tölvupósti johannd@sak.is. Einnig gefur Hildigunnur Svavarsdóttir, framkvæmdastjóri bráða-, fræðslu- og
gæðasviðs upplýsingar um stöðuna í síma 4630100 eða í tölvupósti hildig@sak.is
Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2016.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt upplýsingum um fræðilegar
rannsóknir, rit- og kennslustörf og staðfest afrit af fylgigögnum.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyrir eru: Öryggi – samvinna – framsækni.
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins sem er reyklaus vinnustaður.
Sjúkrahúsið hefur hlotið alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni.
Framkvæmdastjóri Klifurfélags Reykjavíkur
Stjórn Klifurfélags Reykjavíkur auglýsir eftir
kraftmiklum einstakling með áhuga á íþróttum og
íþróttastarfi í starf framkvæmdastjóra félagsins
sem er fullt starf.
Starfssvið
• Umsjón með daglegum rekstri Klifurhússins
• Innkaup á aðföngum og vörum til endursölu
• Skipulagning þjálfunar og hópa
• Starfsmannahald og skipulagning vakta
• Samskipti við birgja og bókara
• Ýmis önnur verkefni í samráði við stjórn
Hæfniskröfur
• Viðkomandi þarf að vera drífandi og jákvæður
• Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð
vinnubrögð
• Rík samskiptafærni, sveigjanleiki og
þjónustulund
• Menntun sem nýtist í starfi er æskileg
Klifurfélag Reykjavíkur er áhugamannafélag og er
tilgangur þess að stuðla að framgangi klifuríþrótta
hér á landi og auka áhuga almennings á íþróttinni.
Félagið hyggst ná tilgangi sínum með því að gangast
fyrir námskeiðahaldi, keppnum og annars konar
kynningarstarfsemi, auk þess sem félagið hyggst
stuðla að því að félagsmönnum standi til boða
fullnægjandi æfingaaðstaða. Klifurhúsið er staðsett í
Ármúla 23 þar sem verður starfsvettvangur
framkvæmdastjóra.
Umsókn sendist á andrimar1993@gmail.com og skal
fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram kemur
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi.
Nánari upplýsingar veitir Andri Már Ómarsson
formaður Klifurfélags Reykjavíkur
andrimar1993@gmail.com eða í síma 869 1178
Umsóknarfrestur er til 28. maí 2016
Við gætum verið
með næsta starfsmann
mánaðarins á skrá
www.capacent.is
Ráðgjafar okkar búa
yfir víðtækri þekkingu
á atvinnulífinu
og veita trausta og
persónu lega ráðgjöf.
2
1
-0
5
-2
0
1
6
0
3
:5
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
8
0
-C
F
D
8
1
9
8
0
-C
E
9
C
1
9
8
0
-C
D
6
0
1
9
8
0
-C
C
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K