Fréttablaðið - 21.05.2016, Qupperneq 8
VORHÁTÍÐ
KORPUTORGS
LAUGARDAGINN
21. MAÍ
Leiktæki
fyrir
börnin
Grillaðar
pylsur frá
14 til 16
Vortilboð
hjá
verslunum
Næg
bílastæði
Tyrkland „Þjóðin mín vill ekki sjá
afbrotamenn á þingi,“ sagði Recep
Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands,
stuttu áður en þingið samþykkti að
svipta suma þingmenn þinghelgi.
Alls greiddu 376 af 500 þing
mönnum atkvæði með tillögu þess
efnis.
Þingmenn stjórnarandstöðunn
ar, einkum Kúrdar, eiga nú á hættu
málshöfðun og jafnvel fangelsun
fyrir að hafa stutt réttindabaráttu
Kúrda.
Alls eru það 138 þingmenn, sem
nú verða sviptir þinghelgi. Þeir eiga
allir yfir höfði sér dómsrannsókn.
Flestir eru þeir þingmenn stjórn
arandstöðuflokkanna. Þar af er 51
úr CHP, flokki sósíaldemókrata, 50
úr HDP, flokki Kúrda, og einn er
utan flokka.
Hins vegar eru 27 þeirra úr
stjórnarflokknum AKP og níu úr
þjóðernisflokknum MHP, sem hefur
ásamt stjórnarflokknum lagt mikla
áherslu á þessa lagabreytingu.
„Þetta er árás á okkur,“ hefur
fréttastöðin Al Jazeera eftir einum
þingmanna Kúrdaflokksins HDP,
Meral Bestas.
Flokkurinn komst í fyrsta sinn
inn á þing í tveimur kosningum á
síðasta ári, fyrst í júní og svo aftur
í nóvember. Kúrdar höfðu áður
setið á þjóðþinginu sem óháðir
þingmenn, en buðu í fyrsta sinn
fram undir merkjum flokks síns á
síðasta ári.
Seta þeirra á þingi kemur hins
vegar í veg fyrir að flokkur Erdog
ans forseta hafi nægan meirihluta
til að geta komið í gegn stjórnar
skrárbreytingum til að styrkja völd
forsetans, sem Erdogan hefur ákaft
reynt að koma í gegnum þingið.
Meðan þetta gerist er Evrópu
sambandið að taka ákvörðun um
hvort veita eigi Tyrkjum heimild
til að ferðast til aðildarríkja sam
bandsins án vegabréfsáritunar.
Vegabréfafrelsi Tyrkja í Evrópu
sambandsríkjum er partur af
samkomulagi ESB við tyrknesk
stjórnvöld, sem gert var nýverið.
Tyrkir hafa lofað að taka í staðinn
við flóttafólki, sem farið hefur
ólöglega í gegnum Tyrkland yfir
til Grikklands og þaðan áfram til
Evrópu.
Auk þess að veita Tyrkjum vega
bréfafrelsi hefur ESB greitt Tyrkjum
þrjá milljarða evra, og hyggst greiða
þrjá milljarða til viðbótar standi
Tyrkir við sinn hluta samkomu
lagsins. Samtals eru þetta sex millj
arðar evra eða nærri 850 milljarðar
króna. gudsteinn@frettabladid.is
Kúrdar sviptir
þinghelgi í Tyrklandi
Ákvörðun tyrkneska þingsins getur orðið til þess að hrekja af þingi alla Kúrda
og stuðningsmenn þeirra. Þeir eiga nú yfir höfði sér málshöfðun fyrir að taka
þátt í réttindabaráttu Kúrda. Rúm 73 prósent þingmanna studdu tillöguna.
Hiti var í þingmönnum á tyrkneska þjóðþinginu í gær þegar gengið var til atkvæða um umdeilt lagafrumvarp. Fréttablaðið/EPa
138
þingmenn verða sviptir þing-
helgi í Tyrklandi og eiga allir
yfir höfði sér dómsrannsókn.
reykjavíkurborg Gríðarleg eftir
spurn ríkir eftir atvinnuhúsnæði í
Reykjavík um þessar mundir. Miklar
framkvæmdir eru því fram undan.
Fjörutíu og fjórum milljörðum
verður varið í núverandi áform um
hóteluppbyggingu, en einnig er
lögð mikil áhersla á uppbyggingu
atvinnuhúsnæðis undir þekkingar
starfsemi.
Á síðustu tólf mánuðum er borg
in búin að selja átta lóðir undir
atvinnustarfsemi, sem er mun meira
en í mörg ár þar á undan. Þetta kom
fram í máli Dags B. Eggertssonar
borgarstjóra á fundi Reykjavíkur
borgar í gærmorgun. „Ferðaþjón
ustan hefur leitt vöxtinn í atvinnu
húsnæði undanfarin misseri, en
aðrar greinar eru farnar að taka við
sér,“ sagði Dagur.
Á fundinum benti Dagur á að
þrátt fyrir mikla umræðu um bygg
ingu hótela sé byggingariðnaðurinn
að stofni til að byggja íbúðir sem
hann segir mjög jákvætt. „Öll þessi
hótelverkefni sem fóru í gang eru
einn tíundi af því sem fór í gang í
íbúðarhúsnæði,“ sagði Dagur.
Enn eru atvinnulóðir til sölu í
Reykjavík, má þar nefna Hlíðar
enda, Lambhagaveg, Gylfaflöt og
Krókháls 7a.
Næstu svæði sem verða byggð
upp eru meðal annars Suður
Mjódd, Köllunarklettur, og Esju
melar. Faxaflóahafnir eru að gera
nýja hafnargarða í Sundahöfn, nýtt
deiliskipulag er á Sprengisandi og
skipulagssamkeppni mun fara af
stað í Gufunesi, þar sem RVKStud
ios hefur keypt fjórar fasteignir. – sg
Hafa selt 8 lóðir undir atvinnustarfsemi
Ferðaþjónustan hefur leitt vöxtinn í atvinnuhúsnæði undanfarin misseri, að sögn
Dags b. Eggertssonar, borgarstjóra í reykjavík. Fréttablaðið/Ernir
2 1 . m a í 2 0 1 6 l a u g a r d a g u r8 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
2
1
-0
5
-2
0
1
6
0
3
:5
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
8
0
-9
E
7
8
1
9
8
0
-9
D
3
C
1
9
8
0
-9
C
0
0
1
9
8
0
-9
A
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K