Fréttablaðið - 21.05.2016, Side 90
15-60%
Hvaðan er þetta trend komið?
„Ég ætla svo sem ekki að þykjast
vita hvaðan nákvæmlega, en
þetta hefur verið notað dálítið á
tískupöllunum undanfarið. Ég fór
að taka eftir þessu fyrir nokkrum
árum og byrjaði að prófa mig
áfram með pensilinn.“
Hversu hár vesenisstuðull er á
þessu? „Ekki hár. Þetta er reyndar
mjög auðvelt. Helst ber að varast
að nota of kalda eða dökka tóna.
Þá geta freknurnar komið út eins
og fílapenslar frekar en freknur.
Það er eitthvað sem flestir vilja
forðast.“
Ísland er land óvæntra veðra og
vinda. Hvernig bregðast ámál-
aðar freknur við vonskuveðri?
„Sjálf nota ég yfirleitt vatnsheldar
vörur til að búa til freknurnar.
Ég þarf þá ekki að hafa neinar
áhyggjur af rigningunni. Ef ég nota
eitthvað sem ekki er vatnshelt þá
bjarga ég því með því að nota svo-
kallað setting-sprey yfir andlitið.“
Hverjar eru þínar uppáhalds
freknusnyrtivörur? „Ég hef mest-
megnis notað vörur sem ætlaðar
eru fyrir augabrúnir. Þær koma í
alls konar tónum og eru einmitt
oft vatnsheldar. Dipbrow pomade
frá Anastasia Beverly Hills nota
ég mikið, en sú vara er auðveld í
notkun og vatnsheld. Ég nota svo
eyeliner-pensil sem gerir það að
verkum að ég á auðveldara með
að búa til mismunandi stærðir.
Svo þykir mér reyndar líka gott að
nota augnabrúnablýanta í verkið.“
Eru einhver tilefni meira við-
eigandi en önnur til að henda
í freknur? „Mér finnst hægt að
setja þær á við öll tilefni. Ég set
þær þó helst þegar ég hef farðað
mig frekar drungalega, sem ég
á til, og langar að fríska aðeins
upp á mig. Ég fékk alltaf freknur
þegar ég var yngri en svo eftir að
ég hætti að stunda ljósabekki og
sólböð hafa þær lítið látið sjá sig.
Ég sakna þeirra svolítið.“
Freknunum flaggað
„Skemmtilegt að fá póst frá stelpum sem eru hættar að farða yfir sínar,“ segir Birna Magg förðunarfræðingur um
ámálaðu freknurnar sem orðnar eru að förðunartrendi. Hún segir freknur skemmtilega leið til að lífga upp á fésið.
Guðrún
Ansnes
gudrun@frettabladid.is
Ég svara slíkum
spurningum yfir-
leitt með spurningu á borð
við „hvers vegna í ósköp-
unum setur þú á þig kinna-
lit, eða gerviaugnhár?“
Freknóttu fólki hefur löngum verið sagt að freknurnar séu heilmikið hraustleikamerki, oftar en ekki í einhvers
konar huggunartóni. Nú er komið
annað hljóð í strokkinn en frekn-
urnar virðast hafa fengið uppreist
æru um þessar mundir ef marka
má tískuspekúlanta. Ójöfn dreifing
litarefnisins melaníns í húðinni
hefur aldrei verið vinsælli.
Förðunarfræðingurinn Birna
Magg hefur vakið tölu-
verða athygli á sam-
f é l a g s m i ð l u n u m
f y r i r va s k l e g a
framgöngu með
förðunarpensl-
ana. Hún leiðir
lesendur Frétta-
blaðsins í allan
s a n n l e i k a n n
um hið keypta
hraustleikamerki,
ámálaðar freknur,
og svarar spurning-
um sem gætu skotið upp
kollinum hjá óreyndum leik-
mönnum.
Allar líkur eru á að ansi mörg
Fréttablaðið/VilHElm
býsna raunveru-
legar, ekki satt?
Í byrjun tuttugustu aldar allt fram
á lokametra hennar blómstraði
andúð fegurðariðnaðarins á
freknum. Snyrtivöruauglýsingar
einkenndust af lausnum við hvim-
leiðum freknum.
Blessunarlega breytast tísku-
straumar í fyllingu tímans og með
vaxandi brúnkustemningu koma
freknur. Tískurisinn Chanel reið á
vaðið árið 1995 og kynnti til leiks
Le Crayon Rousseur, fyrstu gervi-
freknusnyrtivöruna. Þá þóttu þær
endurspegla heilbrigði, æsku og
eftirsóknarverða sólkyssta
húð. Nú rúmum tuttugu
árum síðar virðast
freknurnar aftur eiga
upp á pallborðið hjá
tískufrömuðunum.
freknufár
freknufésin hoppi
hæð sína, en ein-
hverra hluta vegna hafa
konur eytt dágóðum
tíma og drjúgum summum
í að hylja skellurnar. Nú snúast
leikar hins vegar við. Freknulausir
eru farnir að mála á sig freknur.
gudrun@frettabladid.is
Uppáhald
birnu.
2 1 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R58 L í f i ð ∙ f R É T T a B L a ð i ð
Lífið
2
1
-0
5
-2
0
1
6
0
3
:5
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
8
0
-9
9
8
8
1
9
8
0
-9
8
4
C
1
9
8
0
-9
7
1
0
1
9
8
0
-9
5
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K