Fréttablaðið - 21.05.2016, Side 66
ég hef nýlega unnið með líkömum
eiga í ákveðinni samræðu við verkin
með hestunum. Mannslíkamarnir
eru oft afmyndaðir, jafnvel blóð-
ugir og hlaðnir ofbeldi og óhugnaði
– nánast dýrslegir. En á sama tíma
leitast ég við að gera hestana nánast
mannlega. Þetta er leit að jafnvægi
sem ég þarf á að halda bæði í listinni
og lífinu. Mér líkar við þá hugmynd
að ég geti látið hlutina renna saman
og komið þannig á ákveðnu jafn-
vægi.“
Berlinde de Bruyckere segir að
þessir tveir pólar snúist ekki endi-
lega um hið karllæga og kvenlæga
eða eitthvað slíkt. „Fyrir mér er það
persónubundið fyrir hvern og einn
hvað felst í þessu. Ég hef í sjálfu sér
ekki mikinn áhuga á að vinna út frá
kynferði eða að því að sýna kyn í
mínum verkum. Í sumum teikning-
unum sést kynferðið en oftar en ekki
þá er kynferðið einfaldlega ekki til
staðar.“
Sköpun úr dauða
Faðir Berlinde de Bruyckere var
slátrari og var hún alin upp í húsinu
þar sem hann starfaði. Hún segist þó
alltaf hafa reynt að neita að það væri
tenging þar á milli og verka hennar.
„En í seinni tíð hef ég gert mér grein
fyrir því að auðvitað skiptir það máli.
Svarið er fólgið í því að það sem faðir
minn gerði var andstæða þess sem
ég geri. Hann hlutaði í sundur kjöt
til þess að við gætum borðað það.
En þegar ég fer og sé hræ af hesti þá
fyllist ég samkennd og eins og finnst
að ég verði að halda í þetta og skapa
eitthvað úr þessu. Ég er að reyna að
opna umræðu sem hefur að gera
með ótta, reiði, kvíða, von og dauða.
Að opna á umræðu um allt þetta, líf
og dauða, það er það sem ég leitast
við að gera og þarf að gera.“
Sýning á verkum belgísku listakonunnar Berlinde de Bruyckere er opnunarsýning myndlistarinnar á Listahátíð-inni í Reykjavík. Á sýningunni
gefur að líta verk frá síðustu fimmtán
árum af áratugalöngum og fádæma
farsælum ferli þessarar merku lista-
konu.
Stjarna hinnar belgísku Berlinde
de Bruyckere hefur risið hratt í heimi
myndlistarinnar frá árinu 2003 þegar
hún náði alþjóðlegri hylli á Feneyja-
tvíæringnum þar sem skúlptúrar
hennar voru sýndir í ítalska skál-
anum. Verk hennar búa yfir fádæma
orku og sérstöðu í veröld nútíma-
myndlistar þar sem hún sækir sér
áhrif og innblástur aftur til flæmska
skólans og þýsku endurreisnarinnar
sem brýst svo fram í ljóðrænum og
áhrifaríkum verkum. Verkum sem
ná í senn að ávarpa samtíma sinn og
sögu. Lífið og listina.
Það er því sérdeilis gleðilegt að
Listahátíðin í Reykjavík skuli opnuð
í dag með sýningu á verkum Berlinde
de Bruyckere í Listasafni Íslands. Á
sýningunni er að finna skúlptúra og
teikningar frá síðustu fimmtán árum
sem veita innsýn í sköpunarheim
þessarar merku listakonu.
Líf og dauði
Berlinde de Bruyckere segir að sýn-
ingin sé þannig hugsuð að það eigi sér
stað ákveðin samræða á milli verk-
anna innan rýmisins. „Ef litið er á verk
eins og skúlptúrinn með hestunum
tveimur sem renna saman í eina heild
þá held ég að það sé um margt lýsandi
fyrir virðingu fyrir dauðanum. Þetta
er ólíkt fyrstu verkunum þar sem ég
var að vinna með hesta en þetta á
rætur sínar að rekja til fyrstu heims-
styrjaldarinnar þar sem dauðir hestar
lágu á víð og dreif um göturnar. Ég var
að skoða þetta í ákveðnu verkefni og
í framhaldinu gerist það að hestarnir
verða að holdgervingi fyrir dauðann
í mínum verkum.
Hestarnir í þessum verkum lyftast
frá jörðinni og eru því nánast ekki
jarðneskir heldur upphafnir. Þeir
renna saman í eina heild og eru fyrir
mér Eros og Thanatos (Eros er tákn-
mynd lífsviljans en Thanatos tákn
fyrir dauðaþrá) og það er ekki hægt
að flýja þennan veruleika. Veruleik-
inn verður aldrei umflúinn. Líf og
dauði vernda og virða hvert annað
og líkamarnir vaxa saman í einn upp-
hafinn líkama. Ég er að tjá hugsun og
tilfinningu.
Fljótandi ferli
Stundum teikna ég fyrst en stundum
er það skúlptúrinn sem rekur mig
áfram. Þarna er ekkert fastbundið
heldur er þessi vinna flókið og erfitt
ferli bæði tæknilega og út frá sköp-
uninni.
Ég á í góðu samandi við háskóla
þar sem ég fæ hræ hestanna sem
ég síðan vinn með en í því er líka
falið ákveðið tilfinningalegt ferli
sem skiptir mig miklu máli. Það er
nefnilega ekki sama hvernig hest-
arnir eru og ég þarf að ná að mynda
við þá ákveðið samband til þess að
geta nýtt þá við þau verk sem ég er
að vinna að hverju sinni þó svo þessi
verk séu unnin á miklum hraða og
með fjölda aðstoðarmanna.
En teikningarnar mínar eru mér
líka mikilvægar vegna þess að þá
vinn ég ein. Það er í einu skiptin sem
ég get unnið án þess að vera með
aðstoðarmenn með mér. Þó það sé
gott að vinna með góðu fólki þá þarf
ég stundum einveruna sem ég get
ekki fengið þegar ég er að vinna stóru
verkin sem krefjast margra handa í
löngu og flóknu ferli.“
Í leit að jafnvægi
Hestar eru aðeins einn þáttur í
verkum de Bruyckere því manns-
líkaminn er einnig í stóru hlutverki,
bæði í teikningum sem og stórum
og afar áhrifaríkum vaxskúlptúrum.
Hún segir að þetta flæði þarna á milli
viðfangsefna, frá hrossunum og yfir í
mannslíkamann, gerist með ákaflega
náttúrulegum hætti. „Þau verk sem
Líkamarnir tjá
hugsun og tilfinningu
Sýning á verkum belgísku listakonunnar Berlinde de Bruyckere er opnunarsýning mynd-
listarinnar á Listahátíðinni í Reykjavík sem hefst í dag. Á sýningunni getur að líta verk frá
síðustu fimmtán árum af löngum og fádæma farsælum ferli þessarar sérstæðu listakonu.
Hestarnir sem renna saman eru magnað verk. Nánast ekki af þessum heimi. FréttabLaðið/SteFáN
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Þetta er leit að jafn-
vægi sem ég Þarf á að
halda bæði í listinni
og lífinu. mér líkar við
Þá hugmynd að ég geti
látið hlutina renna
saman og komið Þannig
á ákveðnu jafnvægi.
Berlinde De Bruyckere myndlistarkonaeinn af vaxskúlptúrum berlinde De bruyckere.
2 1 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R34 h e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
2
1
-0
5
-2
0
1
6
0
3
:5
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
8
0
-6
D
1
8
1
9
8
0
-6
B
D
C
1
9
8
0
-6
A
A
0
1
9
8
0
-6
9
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K