Fréttablaðið - 21.05.2016, Side 96

Fréttablaðið - 21.05.2016, Side 96
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Óttars Guðmundssonar Bakþankar Á mínum uppvaxtarárum var oft talað um hrekkisvín og grenjuskjóður. Þessi orð sem enginn notar lengur (sem betur fer) tákna gerendur og þolendur í ævafornu einelti. Ólafur Kára- son í Ljósvíkingi Laxness var t.d. stöðugt ofsóttur af vel meinandi fólki. Egill Skallagrímsson var svo liðtækur eineltisgerandi að hann drap jafnaldra sinn, Grím Heggsson. Einelti fylgir venjulega fyrirfram skrifuðu handriti. Hinir sterku finna veikan blett á einhverjum einum og sameinast um að ofsækja hann. Fjölmargir hoppa upp á vagninn og taka þátt í eineltinu af lífi og sál. Allir vilja vera í vinningsliðinu. Eng- inn vill vera liðsmaður hrópanda í eyðimörkinni sem einhugur ríkir um að sé fífl. Hjarðhegðun ræður för af fullkomnu miskunnarleysi. Í heimi fullorðinna á vinnu- stöðum og í félagasamtökum er einelti algengt og lýtur sömu lög- málum. Einelti á netinu gengur eins og endurtekinn faraldur, ekki síst meðal fullorðinna. Ákveðnir aðilar ráða ferðinni og finna höggstað á einhverjum sem ekki hefur við- teknar skoðanir eða sýnir einhvern veikleika. Orð hans eru gjarnan slitin úr samhengi og túlkuð á versta veg. Viðkomandi er svívirtur og velt upp úr alls kyns ávirðingum. Menn spara ekki stóryrðin og kalla viðfangið rasista, fávita og elliæran vitleysing. Þegar rætt er um einelti í skólum er þess krafist að skólinn uppræti það. Kennarar og skólastjórnendur eru harðlega gagnrýndir fyrir slæ- lega framgöngu. En er þessi gamla hjarðhegðun hluti af mannlegu eðli? Hvað geta skólarnir gert við því? Er hægt að ætlast til að börn hagi sér öðruvísi en fullorðnir? Getur einhver ætlast til til þess að einelti hverfi úr skólunum meðan það blómstrar í heimi fullorðinna? Svo læra börnin sem fyrir þeim er haft. Fullorðnir og börn Laugavegur - Kringlan - kunigund.is 15% kaupauki til brúðhjóna Setjið saman eigin brúðargjafalista á kunigund.is íslenskt Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka 2 1 -0 5 -2 0 1 6 0 3 :5 8 F B 0 9 6 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 8 0 -5 E 4 8 1 9 8 0 -5 D 0 C 1 9 8 0 -5 B D 0 1 9 8 0 -5 A 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.