Fréttablaðið - 21.05.2016, Page 96
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Óttars
Guðmundssonar
Bakþankar
Á mínum uppvaxtarárum var oft talað um hrekkisvín og grenjuskjóður. Þessi orð
sem enginn notar lengur (sem betur
fer) tákna gerendur og þolendur
í ævafornu einelti. Ólafur Kára-
son í Ljósvíkingi Laxness var t.d.
stöðugt ofsóttur af vel meinandi
fólki. Egill Skallagrímsson var svo
liðtækur eineltisgerandi að hann
drap jafnaldra sinn, Grím Heggsson.
Einelti fylgir venjulega fyrirfram
skrifuðu handriti. Hinir sterku finna
veikan blett á einhverjum einum
og sameinast um að ofsækja hann.
Fjölmargir hoppa upp á vagninn
og taka þátt í eineltinu af lífi og sál.
Allir vilja vera í vinningsliðinu. Eng-
inn vill vera liðsmaður hrópanda í
eyðimörkinni sem einhugur ríkir
um að sé fífl. Hjarðhegðun ræður för
af fullkomnu miskunnarleysi.
Í heimi fullorðinna á vinnu-
stöðum og í félagasamtökum er
einelti algengt og lýtur sömu lög-
málum. Einelti á netinu gengur eins
og endurtekinn faraldur, ekki síst
meðal fullorðinna. Ákveðnir aðilar
ráða ferðinni og finna höggstað á
einhverjum sem ekki hefur við-
teknar skoðanir eða sýnir einhvern
veikleika. Orð hans eru gjarnan
slitin úr samhengi og túlkuð á versta
veg. Viðkomandi er svívirtur og
velt upp úr alls kyns ávirðingum.
Menn spara ekki stóryrðin og kalla
viðfangið rasista, fávita og elliæran
vitleysing.
Þegar rætt er um einelti í skólum
er þess krafist að skólinn uppræti
það. Kennarar og skólastjórnendur
eru harðlega gagnrýndir fyrir slæ-
lega framgöngu. En er þessi gamla
hjarðhegðun hluti af mannlegu eðli?
Hvað geta skólarnir gert við því?
Er hægt að ætlast til að börn hagi
sér öðruvísi en fullorðnir? Getur
einhver ætlast til til þess að einelti
hverfi úr skólunum meðan það
blómstrar í heimi fullorðinna? Svo
læra börnin sem fyrir þeim er haft.
Fullorðnir
og börn
Laugavegur - Kringlan - kunigund.is
15%
kaupauki til
brúðhjóna
Setjið saman eigin
brúðargjafalista á
kunigund.is
íslenskt
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
2
1
-0
5
-2
0
1
6
0
3
:5
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
8
0
-5
E
4
8
1
9
8
0
-5
D
0
C
1
9
8
0
-5
B
D
0
1
9
8
0
-5
A
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K