Fréttablaðið - 30.11.2016, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 30.11.2016, Blaðsíða 19
fólk kynningarblað 3 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m I Ð v I K U D A G U r Snjóbrettavörur og búnaður fyrir börn og unglinga hafa verið mjög vinsæl á debe.is en þar fást meðal annars snjóbretti fyrir þau allra yngstu, minnstu brettin eru áttatíu sentimetrar að lengd. MYND/BURTON DéBé Bretti og stíll ehf. er með einkaumboð fyrir Burton á Ís­ landi og hefur fyrirtækið rekið vefverslunina debe.is síðastlið­ ið ár. Á síðunni er að finna breitt úrval af vörum frá Burton ásamt fleiri merkjum en áherslur fyrir­ tækisins eru á vörur og fatnað tengdan snjóbrettum, almennri útivist og jóga. debe.is sendir vörur út um allt land, og er enginn sendingarkostnaður á pöntunum sem eru yfir tíu þúsund krónur. Bæði snjóBretti og jóga „Hjá okkur er að finna jólagjafir fyrir alla fjölskylduna. Við erum með vandaðan fatnað allt frá sokk­ um og upp í útivistarfatnað sem þolir hvaða veður sem er. Auðvitað erum við með allt sem brettafólk­ ið þarfnast og gott úrval af bún­ aði og fatnaði fyrir börnin. Að auki bjóðum við gott úrval af vönduðum jóga­ og lífsstílsfatnaði, og frábær­ ar jógadýnur úr hrágúmmíi,“ segir Dagný Björk Reynisdóttir, eigandi debe.is. Burton­vörumerkið er einnig með töskulínu, frá snyrtiveskjum og einföldum pokum upp í stórar brettatöskur, græjutöskur og allt þar á milli. Hægt er að fá bakpoka sem henta öllum, meðal annars sérstaklega hannaða fyrir konur, og minni bakpoka fyrir yngri kyn­ slóðina. Breið almenn fatalína Að sögn Dagnýjar geta allir í fjölskyldunni fundið eitthvað við sitt hæfi á debe.is, og áhugi eða ástundun á snjóbrettum er alls ekkert skilyrði. „Það kemur skemmtilega á óvart hversu breið fatalínan frá Burton er. Gæði á fatnaðinum eru mikil og sérstak­ lega má nefna að allur útifatnaður á börn, er þannig búinn að hægt er að lengja skálmar og ermar á úlpum og buxum þannig að flíkin vex með barninu.“ Í haust­ og vetrarlínunni má finna hversdagsúlpur og ­jakka, goretex­útivistarfatnað með öndun og ýmsum skemmtilegum lausn­ um, eins og vatnshelt hulstur fyrir farsímann. „Burton tekur ábyrgð á goretex­flíkum, á líftíma þeirra en ábyrgðin nær meðal annars yfir goretex­húðina. Vandað er til vals á efnum í fatnaðinum frá Burton, og er hugað vel að smáatriðum,“ útskýrir Dagný. Búnaður fyrir Börn vinsæll Snjóbrettavörur og búnaður fyrir börn og unglinga hafa verið mjög vinsæl á debe.is en þar fást meðal annars snjóbretti fyrir þau allra yngstu. Minnsta brettastærðin sem fæst er áttatíu sentimetrar. „Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á útivistarfatnaðinum bæði fyrir börn og fullorðna. Parka­úlp­ ur hafa líka komið sterkar inn en við erum með nokkrar útgáfur, fyrir konur og karla. Ýmist fylltar með dúni, sem aflað er eftir vott­ uðum og siðferðilega ábyrgum leið­ um, eða með gervifyllingu sem er mjög hlý. Loðkragar sem eru á flík­ unum eru allir úr gervifeldi,“ segir Dagný og bætir við að hettupeysur hafi líka verið vinsælar. „Sérstak­ lega „soft shell“ peysurnar okkar, sem eru bæði vatns­ og vindheldar og eru frábærar í fjallið eða útivist­ ina þegar sólin fer að hækka á lofti á ný, og í mildara veðri.“ sýning um helgina Um næstu helgi verður hægt að skoða hluta af vörunum sem fást á debe.is, í aðstöðu Brettafélags Hafnarfjarðar, að Flatahrauni 14. „Þar verðum við með vel valdar vörur frá Burton og stefnum á að hafa gott úrval af vörum fyrir yngri kynslóðina og útivistarfatn­ að fyrir fullorðna. Að sjálfsögðu eru brettin og það sem þeim til­ heyrir með líka. Einnig ætlum við að vera með brot af því besta og vinsælasta í jógafatnaðinum og að sjálfsögðu dýnurnar frábæru frá JadeYoga,“ segir Dagný. Nánari upplýsingar um viðburð- inn er á Facebook, debe.is pop-up í borginni. allt í jólapakkann á deBe.is Débé kynnir Burton er eitt vandaðasta vörumerki innan snjóbrettaheimsins, en á næsta ári eru fjörutíu ár frá því að fyrsta snjóbrettið leit dagsins ljós. Burton hefur allt frá upphafi verið leiðandi framleiðandi snjóbretta og búnaðar sem tengist þeim. DéBé bretti og stíll ehf. rekur vefverslunina debe.is og er fjölskyldufyrirtæki í eigu þeirra Björgvins Hólm Birgissonar, Dagnýjar Bjarkar Reynisdóttur, Reynis Birgis- sonar og Birgis Arnar Tómassonar. 3 0 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 7 A -D 7 C C 1 B 7 A -D 6 9 0 1 B 7 A -D 5 5 4 1 B 7 A -D 4 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 2 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.