Fréttablaðið - 30.11.2016, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 30.11.2016, Blaðsíða 4
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlagsins | F i sk i slóð 39 „Ég klökknaði oft .. . Falleg og áhrifamikil bók sem engin leið er að leggja frá sér og á erindi við alla.“ brynhildur björnsdóttir / fréttablaðið „Bókin er skrifuð af mikilli yfirvegun og vel er vandað til verka.“ guðríður haraldsdóttir / vikan Venesúela BrasilíaEkvador Perú Bogotá Kólumbía ✿ Flugslysið í Kólumbíu Farþegaflugvél með níu manna áhöfn og 72 farþegum fórst í fyrrinótt. Heimildir: Fréttastofur Um borð var brasil- íska fót- bolta- liðið Chapecoense, sem átti að keppa í dag við Atletico Nacional í úrslitaleik um Suður-Ameríku- bikarinn 3.00 að ísl. tíma, 29. nóv: Farþegavél á vegum bólivíska flug- félagsins Lamia sendir út neyðar- kall vegna rafmagnsbilunar. Kólumbía Níu manna áhöfn og 72 farþegar voru um borð í flugvél af gerðinni British Aerospace 146 sem hrapaði í fjalllendi í Kólumb- íu í fyrrinótt, skammt frá borginni Medellin. Fimm manns lifðu af flugslysið en 76 fórust. Meðal farþeganna var brasilískt fótboltalið, Chapecoense, sem var á leiðinni til Medellin í Kólumb- íu, þar sem fyrri úrslitaleikur af tveimur við Atletico Nacional um Suður-Ameríkubikarinn, Copa Sudamericana, átti að fara fram í dag. Forseti Brasilíu lýsti af þessum sökum yfir þriggja daga þjóðarsorg. Þetta var í fyrsta sinn sem liðið komst í úrslit og í fyrsta sinn sem lið frá Santa Catarina-héraði í Bras- ilíu hefur komist í úrslit í alþjóða- móti í knattspyrnu. Þrír fótboltakappanna komust lífs af úr slysinu. Það voru mark- verðirnir Jackson Ragnar Follmann og Marcos Danilo Padilha ásamt Alan Luciano Ruschel. Þeir voru fluttir á sjúkrahús. Einnig lifðu tvö úr níu manna áhöfn vélarinnar slysið af, þau Ximena Suárez flugfreyja og Erwin Tumiri flugvélstjóri. Þau voru einn- ig flutt á sjúkrahús. Sjötti maðurinn, sem bjargað var úr vélinni og fluttur á sjúkrahús, lést þar stuttu síðar. Neyðarkall vegna rafmagnsbil- unar barst frá flugvélinni klukkan 10 á mánudagskvöld að staðar- tíma, eða þrjú að nóttu á íslensk- um tíma. Björgunaraðgerðir í fjalllendinu þar sem vélin hrapaði voru erfiðar vegna rigningar, þoku og myrkurs. – gb Þriggja daga þjóðarsorg lýst yfir í Brasilíu vegna flugslyss Víða í Brasilíu var flaggað í hálfa stöng í gær vegna slyssins. FréttaBlaðið/EPa ViðsKipti Verslunarkeðjan Ice- land Foods mun senda sendinefnd hingað til lands til viðræðna við utanríkisráðuneytið um mögulega lausn á deilu íslenskra yfirvalda og verslunarkeðjunnar um vöru- merkið Iceland Greint var frá því fyrir skömmu að utanríkisráðuneytið hefði hafið lagalegar aðgerðir gegn Iceland Foods. Tilefnið er að um árabil hefur verslunarkeðjan beitt sér gegn því að íslensk fyrirtæki geti auðkennt sig með upprunalandinu við mark- aðssetningu. – tpt Iceland sendir nefnd til Íslands ViðsKipti Eigendur FoodCo hafa átt í viðræðum vegna sölu á veitinga- staðnum Greifanum á Akureyri. Þetta staðfesti Jóhann Örn Þórarinsson, forstjóri og einn eigenda FoodCo, í samtali við Vísi. Hann segir einnig að sögusagnir þess efnis að búið sé að selja veitingastaðinn séu rangar. Greifinn var opnaður á Akureyri árið 1990 en FoodCo keypti staðinn árið 2006 og hefur rekið hann síðan. Ásamt Greifanum rekur FoodCo Eld- smiðjuna, Saffran, American Style, Pítuna, Aktu taktu og Roadhouse. – bo Ræða sölu á Greifanum Greifinn á akureyri. Kjaramál „Það gefur augaleið að verði þessi samningur felld- ur þá verður það mjög erfið og flókin staða,“ segir Ólafur Lofts- son, formaður Félags grunnskóla- kennara. Samninganefndir Félags grunnskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga komust að samkomulagi um kjaramál grunnskólakennara í gærkvöldi. Grunnskólakennarar hafa verið samningslausir frá 1. júní. Í tví- gang hafa samningar náðst en í bæði skiptin hafa grunnskóla- kennarar fellt samningana í atkvæðagreiðslu. Samningur- inn verður kynntur á trúnaðar- mannafundi klukkan tíu í dag. „Það var alveg ljóst að það urðu að nást samningar núna. Það var ekkert annað í boði,“ segir Ragn- ar Þór Pétursson, kennari í Norð- lingaskóla. Ragnar er einn af yfir hundrað grunnskólakennurum á landinu sem hafa sagt starfi sínu lausu vegna kjaradeilnanna. Í fyrradag bættust níu kennarar Árbæjarskóla í hóp þeirra sem hafa sagt upp starfi sínu. Nýi kjarasamningurinn á að gilda frá 1. desember í ár til 30. nóvember á næsta ári. „Ég held að tímalengd samningsins bendi til að hann sé gerður í trausti þess að það muni fara fram frek- ari vinna í kjaramálum kennara. Það mun valda einhverjum von- brigðum vegna þess að margir hafa fengið nóg af þessari deilu,“ segir Ragnar. Hann telur samninginn vera skref í rétta átt og fagnar áfang- anum. Hins vegar telur hann tímalengd samningsins benda til þess að prósentuhækkanir séu ekki miklar. „Þetta hefði getað farið miklu verr en nú er bara að sjá hvernig þetta fer,“ segir Ragnar. „Við auðvitað skrifum undir því við teljum samninginn vera ásættanlegan. Við vildum kom- ast lengra í viðræðunum en þetta er niðurstaðan og við teljum að samningurinn verði samþykkt- ur. Vonandi verður þetta til þess að þeir sem hafa sagt upp starfi geti hugsað sér að draga þær upp- sagnir til baka,“ segir Ólafur. Ragnar segir að stór hópur grunnskólakennara hafi ætlað að segja upp í hádeginu í dag. „Þetta verður til þess að það verður engin útganga í dag eins og búið var að skipuleggja. Því ber að fagna,“ segir Ragnar. Kennarar felldu í haust samn- ing sem fól í sér að laun þeirra áttu að hækka um 9,5 prósent á næstu þremur árum. Ásamt því hefðu kennarar fengið rúm- lega áttatíu þúsund króna upp- bót tvisvar á ári. Ekki liggur fyrir hvað felst í nýja samningn- um á þessari stundu. Niðurstaða atkvæðagreiðslu um samninginn mun liggja fyrir mánudaginn 12. desember. thorgeirh@frettabladid.is Kjarasamningurinn kemur í veg fyrir hópuppsögn kennara Félag grunnskólakennara og Samband íslenskra sveitarfélaga sömdu um kjaramál kennara í gærkvöldi. Fjöldi kennara ætlaði að segja upp störfum í hádeginu í dag en yfir hundrað kennarar hafa sagt upp í deil- unni. Þetta er þriðji samningurinn sem er gerður á milli aðila. Verði hann felldur blasir við alvarleg staða. Ólafur loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, fagnaði samningnum í hús- næði ríkissáttasemjara með því að fá sér gulrót. FréttaBlaðið/StEFán Vonandi verður þetta til þess að þeir sem hafa sagt upp starfi geti hugsað sér að draga þær uppsagnir til baka. Ólafur Loftsson, formaður FG 3 0 . n ó V e m b e r 2 0 1 6 m i ð V i K u D a G u r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð 3 0 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 7 A -B F 1 C 1 B 7 A -B D E 0 1 B 7 A -B C A 4 1 B 7 A -B B 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 2 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.