Fréttablaðið - 30.11.2016, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 30.11.2016, Blaðsíða 6
Landbúnaður „Við höfum setið á fundum með Matvælastofnun í dag til að fara yfir verkferla, úrræði og allt sem snýr að þessum málum. Stofnunin telur  að verkferlar  séu fullnægjandi,“ segir Kristján Skarp- héðinsson, ráðuneytisstjóri í atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytinu. Undir þetta tekur Jón Gíslason, forstjóri Matvælastofnunnar. „Já, ég tel það vera. Við höfum fengið mun betri löggjöf með nýjum lögum um dýravelferð og nýrri reglugerð um velferð alifugla. Þar eru mun betri heimildir til að koma á úrbótum og mun skýrari ákvæði um þá starf- semi sem við höfum eftirlit með,“ segir Jón. „Við erum búin að fara yfir allt málið í dag og höldum áfram að gera það. Við erum líka að endurskoða lögin um Matvælastofnun og gert er ráð fyrir því að það komi frumvarp um það fram eftir áramótin,“ segir Kristján. Kristján segir málið hafa komið inn í ráðuneytið með tölvupósti þann nítjánda desember árið 2013. Þáverandi skrifstofustjóri hafi falið einum starfsmanni skrifstofunnar að upplýsa málið og taka saman minnisblað. Sá starfsmaður hafi hætt störfum fimm vikum síðar. [Kristinn Hugason er umræddur starfsmaður – hann var rekinn og ætlar í mál þess vegna] Átti þá skrif- stofustjórinn að fela öðrum starfs- manni málið. Matvælastofnun telur verkferla sína vera fullnægjandi Ólafur arnarson, formaður Neyt­ endasamtakanna, segir grafalvarlegt að Brúnegg hafi ítrekað komist upp með að brjóta lög um velferð dýra. Gunnar bragi Sveinsson landbún­ aðar ráðherra segir grafalvarlegt ef menn noti merki um að vara sé vist­ væn til að blekkja neytendur. bónus, Krónan, Hagkaup og Mela- búðin tilkynna að egg frá Brúneggjum ehf. verði tekin úr sölu og viðskipta­ vinir geti skilað eggjunum. Bændasamtök Ís­ lands fordæma illa meðferð á dýrum í yfirlýsingu sem Sindri Sigurgeirsson formaður sendi frá sér. Þar segir að slæmur aðbúnaður varphænsna valdi vonbrigðum. Vigdís Hauksdóttir, fyrrverandi þing­ maður, gagnrýnir umfjöllun Kastljóss um Brúnegg og segir hana gerða til að kné­ setja landbúnað. Félag eggjaframleiðenda biður neyt­ endur afsökunar og segir aðbúnað og blekkingar gagnvart neytendum til skammar. Kristinn Gylfi Jónsson, einn eigenda Brúneggja, segir rekstrargrundvöll enn fyrir hendi. Næstu skref verði að byggja upp trúverðugleika Brúneggja. Kastljós sendir frá sér yfirlýsingu þar sem orð Vigdísar eru gagnrýnd og kölluð atvinnurógur. Starfsmenn skiptiborðs atvinnuvega­ og nýsköpunarráðuneytisins segja að Halldór Runólfsson, sem bar ábyrgð á því að málið týndist í ráðuneytinu, vísi fyrirspurnum til Matvælastofnunar. Ekki næst í hann í síma. Viðburðaríkur gærdagur Tryggingastofnun Laugavegi 114 | 105 Reykjavík Sími 560 4400 | tr@tr.is | tr.is um ellilífeyri Ný lög KYNNINGARFUNDIRAKUREYRI 1. des. kl. 16.00 – Greifanum 2. hæðÍSAFJÖRÐUR 6. des. kl. 14.00 – Stjórnsýsluhúsinu 4. hæð EGILSSTAÐIR 14. des. kl. 16.00 – Hótel Héraði REYKJAVÍK 15. des. kl. 10.00 – BSRB salnum við Grettisgötu Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. PIPAR\TBW A - SÍA - 165554 Landbúnaður „Það hefur verið vandamál að fólk leggur þetta að jöfnu, og hefur ekki gert greinarmun á því sem er kallað vistvænt og þess sem er lífrænt. Himinn og haf er þó á milli,“ segir Rannveig Guðleifs- dóttir, verkefnastjóri hjá Vottunar- stofunni Túni. Hún telur að ekki sé hægt að útiloka að umfjöllun Kast- ljóss um fyrirtækið Brúnegg geti haft neikvæð áhrif á þau fyrirtæki sem framleiða lífræna vöru þar sem almenningur hafi ekki alltaf skýra mynd af því hvað er hvað. Slíkt væri hins vegar mjög ómaklegt. Eins og alþjóð veit fjallaði Kast- ljós á mánudagskvöld um fyrirtækið Brúnegg ehf. og samskipti þess við Matvælastofnun. Umfjöllun Kast- ljóss leiddi í ljós að um árabil hefur fyrirtækið blekkt neytendur með sölu á eggjum undir merkjum vist- vænnar framleiðslu á sama tíma og aðbúnaður dýranna var með öllu óásættanlegur, að því er gögn Mat- vælastofnunar sýna mörg ár aftur í tímann. „Það er ekki hægt að kalla þetta vistvæna vottun, þegar engin vottun er að baki. Það er því sáralítið eða ekkert að baki þessari vottun þar sem enginn vaktaði að farið væri eftir reglum,“ segir Rannveig og minnir á að reglugerð um vistvæna vottun var felld úr gildi í fyrra, enda hafði ekki verið reglubundið eftirlit með þeim aðilum sem hana höfðu fengið. Reglugerðin var reyndar merk- ingarlaus, og hafði verið það lengi eins og Fréttablaðið fjallaði um ítarlega sumarið 2014. Sú umfjöllun ýtti við kerfinu og vinna innan ráðu- neytisins hófst við að endurskoða málið – þar sem niðurstaðan var að fella reglugerðina úr gildi. Þáverandi landbúnaðarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra, sagði á þeim tíma að ekkert væri því til fyrirstöðu að framleiðendur notuðu vottunina áfram þrátt fyrir að reglu- gerðarinnar nyti ekki lengur við. Lífræn ræktun gæti skaðast Notkun fyrirtækja á innihaldslausri vottun um vistvæna framleiðslu gæti spillt fyrir þeim sem hafa allt sitt á hreinu og lúta ströngu regluverki lífrænnar framleiðslu. Lífræn vara lýtur ströngu eftirliti byggðu á ESB-reglum. Rannveig treystir sér ekki til að meta hvort algengt sé að íslenskir framleiðendur haldi vistvænni fram- leiðslu á lofti – án innistæðu. Hins vegar séu þeir sem hafa vottun um lífræna framleiðslu undir ströngu eftirliti þar sem sýna þarf fram á að farið sé eftir ströngum reglum. Vott- unarstofan Tún sé svo aftur undir alþjóðlegu eftirliti og allt byggi ferlið á regluverki frá Evrópusambandinu. Rannveig staðfestir að eini stóri líf- ræni eggjaframleiðandinn, Nesbú, hafi aldrei fengið athugasemdir frá vottunarstofunni, sem sé óvenju- legt því oftast sé um einhver atriði að ræða sem þarf að laga. Stefán Már Símonarson, fram- kvæmdastjóri Nesbúeggja, segir að fyrirspurnum hafi rignt yfir fyrir- tækið í gærmorgun vegna umfjöll- unar Kastljóss. Spurt er um hvort eitthvað sé að marka vottun um líf- ræna framleiðslu. Spurður um hvort umfjöllunin geti skaðað lífræna framleiðendur vegna misskilnings sem gætir um ólíkar vottanir segir Stefán Már að slíkt sé erfitt að meta. Hins vegar úti- loki hann ekki að sitt fyrirtæki hafi misst viðskipti til fyrirtækis eins og Brúneggja þar sem vistvænni framleiðslu var haldið á lofti. „Það kemur þá í ljós núna sannleikurinn í þessu máli, en hugmyndin að baki vistvænni framleiðslu var mjög góð. En apparatið til að hafa eftirlit með þessu brást. Þetta varð aldrei neitt neitt, og svo fóru menn einfaldlega bara að sækja vottunarstimpilinn á netið,“ segir Stefán sem umbeðinn veitti heimild strax til að Frétta- blaðið fengi að mynda í húsum fyrir- tækisins. Fram kom í frétt RÚV í gær að Nesbú kaupir um eitt tonn á viku af annars flokks eggjum frá Brún- eggjum. Stefán segir þar að ekki sé búið að taka ákvörðun um hvort því verði hætt eftir umfjöllun Kastljóss á mánudagskvöld. Eggin eru seld til fyrirtækja og bakaría, en fara ekki á almennan markað. svavar@frettabladid.is Hænur Nesbúeggja í lífræna búinu að Miklholtshelli II hafa yfirbyggðan vetrargarð til umráða. FréttablaðIð/aNtoN „Þar hafa greinilega orðið mistök þannig að málið var ekki flutt yfir á annan starfsmann,“ segir Kristján. Jón segir  stofnunina hafa  sent málið til ráðuneytisins. Var þá talið að málinu hafi verið komið í réttan farveg. Það hafi hins vegar ekki farið í þá úrvinnslu sem stofnunin gerði sér vonir um. Sigurði Inga Jóhannssyni, þáver- andi landbúnaðarráðherra og núver- andi forsetisráðherra, var ekki gert kunnugt um málið á þeim tíma. – þea Við erum búin að fara yfir allt málið í dag og höldum áfram að gera það. Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri Það hefur verið vandamál að fólk leggur þetta að jöfnu, og ekki gert greinarmun á því sem er kallað vistvænt og þess sem er lífrænt. Rannveig Guðleifs­ dóttir, verkefna­ stjóri hjá Vottunar­ stofunni Túni 3 0 . n Ó V e M b e r 2 0 1 6 M I ð V I K u d a G u r6 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a ð I ð 3 0 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :1 2 F B 0 5 6 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 7 A -D 2 D C 1 B 7 A -D 1 A 0 1 B 7 A -D 0 6 4 1 B 7 A -C F 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 5 6 s _ 2 9 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.