Fréttablaðið - 30.11.2016, Blaðsíða 10
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871
fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkra-flutningamanna fer fram um allt land um þessar mundir eins og mörg undanfarin ár. Slökkviliðs-
menn heimsækja þá börnin í 3. bekk grunnskólanna og
fræða þau um eldvarnir. Börnin fá með sér heim handbók
Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins og sög-
una af Brennu-Vargi og Loga og Glóð. Þeim gefst jafnframt
kostur á að taka þátt í Eldvarnagetrauninni en heppnir
þátttakendur í henni fá jafnan afhent vegleg verðlaun á
112-deginum, 11. febrúar.
Auknar eldvarnir
Landssambandið hefur um langt árabil lagt áherslu á for-
varnastarf og hefur haldið Eldvarnaátakinu úti með dyggum
stuðningi fjölmargra aðila í rúma tvo áratugi. Það er því
gleðilegt að geta greint frá því að samkvæmt rannsóknum
sem Gallup hefur gert fyrir landssambandið og Eldvarna-
bandalagið skilar fræðsla af þessu tagi greinilegum árangri.
Gallup hefur kannað ástand eldvarna á heimilum lands-
manna á tveggja ára fresti undanfarin tíu ár og þróunin er
ótvíræð; heimilin auka eldvarnir sínar jafnt og þétt. Æ færri
hafa engan eða bara einn reykskynjara en að sama skapi
fjölgar þeim til muna sem hafa þrjá eða fleiri. Mun algengara
er nú en fyrir tíu árum að slökkvitæki og eldvarnateppi séu
á heimilum. Í könnun sem gerð var nú í haust kom fram að
helmingur heimila er með allt í senn reykskynjara, slökkvi-
tæki og eldvarnateppi en það er einmitt það sem okkar
menn mæla með. Við eigum verk að vinna en þessar niður-
stöður hvetja okkur sannarlega til dáða.
Sýnum aðgát á aðventunni
Fræðsla um eldvarnir á alltaf við en þó aldrei eins og nú
í byrjun aðventu. Um leið og við hvetjum fólk til að hafa
nauðsynlegan eldvarnabúnað á heimilinu leggjum við
ekki síður áherslu á mikilvægi þess að fara varlega í dag-
legri umgengni á heimilinu. Á næstu vikum ríður sérstak-
lega á að fara varlega með opinn eld, kertaljós og þvíum-
líkt. Og munið að slaka ekki á klónni þótt jólahátíðinni
ljúki og nýtt ár gangi í garð því reynslan sýnir að eldsvoðar
á heimilum eru ekki síður algengir á fyrstu vikum ársins
en á aðventu og um jól.
Gleðilega hátíð!
Fræðsla skilar árangri
Valdimar Leó
Friðriksson
framkvæmda-
stjóri Lands-
sambands
slökkviliðs- og
sjúkraflutninga-
manna
Garðar H.
Guðjónsson
verkefnastjóri
Eldvarnaátaksins
og Eldvarna-
bandalagsins
Fræðsla um
eldvarnir á
alltaf við.
Thera°Pearl margnota
hita- og kælipúðarnir
eru hannaðir af læknum.
Thera°Pearl eru með ól
sem auðveldar meðferð
meðan á vinnu eða leik
stendur.
Jólagjöfin
í ár
Eggjahræra á Bessastöðum
Forseti Íslands sendi frá sér
tilkynningu í gær þess efnis
að formenn Vinstri grænna og
Sjálfstæðisflokks hefðu hafið við-
ræður um myndun ríkisstjórnar.
Flokkana tvo vantar einn
þingmann til að hafa meirihluta
á Alþingi og ætla að koma sér
saman um helstu málamiðlanir
áður en leitað verður til þriðja
flokks. Á sama tíma er formaður
Viðreisnar kindarlegur, en hann
var búinn að segja spenntur
að meira væri í gangi á milli sín
og Sjálfstæðisflokksins en fólk
héldi. Viðreisn er greinilega ekki
tengdadóttirin sem Bjarni væri
til í að bjóða heim til landföður-
ins á Bessastöðum.
Hanastél
Kosningamyndbönd Katrínar
og Bjarna vöktu verðskuldaða
athygli fyrir kosningar. Bjarni
sýndi ótvíræða hæfileika í að
skreyta köku og Katrín blandaði
kokteil af mikilli fágun. Eftir hót-
anir um róttækar aðgerðir gegn
samstarfinu bíða flokksmenn VG
nú með öndina í hálsinum eftir
því að sjá hvort Katrínu takist að
kenna Bjarna hvernig á að skipta
kökunni með jöfnum og rétt-
látum hætti. Á sama tíma naga
Sjálfstæðismenn sig í handar-
bökin af ótta við að Vinstri græn
fari of geyst á fylleríinu þannig að
hellist úr glasinu. Það þarf svo að
passa að öll brúneggin lendi ekki
í sömu körfunni.
snaeros@frettabladid.is
Stundum fer íslenskt samfélag á hliðina á einu augabragði. Það gerðist síðast í gærkvöldi, og það mjög svo skiljanlega, þegar Kastljósið greindi frá herfilegum aðbúnaði hænsna á búum Brúneggs. Hvílík hörmung fyrir lítið samfélag þar sem það ætti nú vart að reynast
þrautin þyngri fyrir eftirlitsstofnanir og ráðuneyti að
sinna hlutverki sínu með þeim hætti að aldrei ætti að
þurfa koma til slíkrar smánar.
En skaðinn er skeður og nú keppast stofnanir og
ábyrgir aðilar við að ræða um verklag og verkferla
og hvað gat orðið til þess að skepnurnar máttu þola
slíka hörmungarmeðferð. Hverju það sætir að neyt-
endur hafi verið blekktir stórkostlega árum saman og
hvernig koma megi í veg fyrir að slíkt endurtaki sig.
Minna er rætt um persónulega ábyrgð þeirra sem vissu
hvernig málum var háttað en gerðu lítið eða ekkert
langtímum saman.
En það er líka dapurlegt til þess að hugsa að þetta
er ekkert nýtt. Í gegnum tíðina höfum við séð fjölda
mála um illa meðferð á dýrum. Skammt er að minnast
baráttu Dýraverndunarsamtaka Íslands fyrir því að
ríkið felli niður styrki í gegnum búvörusamninga til
aðila sem hafa orðið uppvísir að dýraníði. Samtökin
skoruðu á Alþingi að sjá til þess að innan samning-
anna yrði ákvæði sem gerði það heimilt að fella niður
opinbera styrki vegna alvarlegs eða opinbers dýraníðs.
Bændasamtök Íslands, Landssamband kúabænda og
fleiri lögðust gegn ákvæðinu og því fór sem fór.
Það sem var hvað mest sláandi við að horfa á
umfjöllun Kastljóssins í gærkvöldi var hversu svifa-
seint kerfið er. Hvernig það virðist smíðað utan um
hagsmuni þeirra sem eru í raun að bregðast skyldum
sínum, bæði gagnvart neytendum sem og viðkomandi
búfénaði. Að viðkomandi bú sé enn í rekstri og við-
brögð neytenda staðfestir svo ekki verður um villst
að svona viljum við sem þjóð ekki standa að málum.
En það sem mest er um vert þá sýnir það okkur líka
að eftirlitsstofnanir og yfirvöld þurfa líka að starfa í
umhverfi sem veitir þeim eftirlit og aðhald.
Það eftirlit verður að vera í höndum fjölmiðla fyrir
hönd almennings sem á rétt á að vita hvaðan matur-
inn kemur sem er borinn á borð heimila um allt land.
Það er í raun með ólíkindum að eftirlitsstofnun á borð
við Matvælastofnun geti ein og sér tekið ákvörðun um
það að leyna upplýsingum, halda þeim frá fjölmiðlum
og þar með almenningi, mánuðum og jafnvel árum
saman. Stofnanir og í raun allir opinberir aðilar sem
haga sér með slíkum hætti þurfa að segja landsmönn-
um hvað þeim gengur til með slíkri leynd. Svara því
hagsmuna hverra þeir eru að gæta. Því það eitt er víst
að ekki eru það hagsmunir neytenda sem eru hafðir
að leiðarljósi og hvað þá blessaðra dýranna.
Það virðist því miður vera að færast í vöxt að
opinberir aðilar takmarki aðgang fjölmiðla að upp-
lýsingum sem og viðburðum. Réttlætingin er oftar en
ekki sú að hér séu á ferðinni viðkvæm mál, en þegar
fjölmiðlar loks ná að miðla stöðu umræddra mála til
landsmanna, kemur því miður í ljós að málið reyndist
ekki fyrir viðkvæma. Þessu þarf að breyta.
Viðkvæm mál
Það virðist
því miður
vera að færast
í vöxt að
opinberir
aðilar tak-
marki aðgang
fjölmiðla að
upplýsingum
sem og
viðburðum.
3 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m I Ð v I K U D A G U r10 s K o Ð U n ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
SKOÐUN
3
0
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
7
A
-E
1
A
C
1
B
7
A
-E
0
7
0
1
B
7
A
-D
F
3
4
1
B
7
A
-D
D
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K