Fréttablaðið - 09.06.2016, Side 18
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
lífið: Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Fanney Birna
Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
Fræðsluyfirvöld Hafnarfjarðar hafa stigið stórt skref með samþykkt nýs sjálfstæðs grunnskóla í bæjar-félaginu en unglingaskólinn Nú tekur þar til starfa á
komandi hausti. Í skólanum verður lögð áhersla á íþróttir
og heilsusamlegan lífsstíl og byggja kennsluaðferðir á nýj-
ustu tækni. Þjónustusamningur milli skólans og bæjarins
vegna rekstrar hans var samþykktur í kjölfar viðurkenn-
ingar menntamálastofnunar á starfsemi hans.
Stofnun þessa nýstárlega skóla er í góðu samræmi
við málefnasamning meirihluta bæjarstjórnar Hafnar-
fjarðar en þar er lögð áhersla á nýsköpun og fjölbreytni á
öllum stigum skólastarfs. Að baki ákvörðun fræðsluráðs
liggur mikil og ígrunduð vinna en það hefur haft málefni
skólans til umfjöllunar í tæp tvö ár.
Með auknu sjálfstæði skóla, hvort sem er innan hefð-
bundna kerfisins eða þar sem kraftar einkaaðila eru
nýttir, felast sóknarfæri í menntun, tækifæri til umbóta
og aukins árangurs. Ein leið til að koma til móts við ólíkar
þarfir nemenda er að bjóða upp á fjölbreytni og aukið val.
Sjálfstætt starfandi skólar eru viðbót við öflugt opinbert
skólastarf. Valfrelsi gerir einstaklingum enn frekar mögu-
legt að vaxa og dafna á eigin forsendum og nýta styrkleika
sína sem best. Það veitir kennurum einnig fjölbreyttara
starfsumhverfi og er aukið val námsgagna þáttur í því.
Fyrir áhugafólk um menntamál er það einnig umhugsun-
arvert að á Norðurlöndunum er hlutur sjálfstætt rekinna
grunnskóla minnstur hér á landi og tö̈luvert stærri að
meðaltali í Evrópu. Nú þegar stunda á annað hundrað
hafnfirsk börn nám í sjálfstætt reknum grunnskólum,
innan sveitarfélagsins sem utan, og greiðir bæjarfélagið
með hverjum nemanda 75% af landsmeðaltali rekstrar-
kostnaðar grunnskóla eins og lög gera ráð fyrir. Greiðslur
með nemendum í nýja skólanum verða að hluta til viðbót
við þá heildarupphæð sem nú þegar er sett í fræðslumálin
í bæjarfélaginu. Í þjónustusamningi bæjarins við nýja
skólann er sett hámark á skólagjöld, innritunarreglur
skýrari en tíðkast í sambærilegum samningum sem og
ákvæði um eftirlit og mat á skólastarfinu. Það er ánægju-
legt að taka þátt í þeirri nýsköpun og frumkvöðlastarfi
sem verið er að ýta úr vör með því að samþykkja nýjan
unglingaskóla í Hafnarfirði. Og um leið skapa börnum
aukin tækifæri og nýja möguleika til menntunar.
Nýsköpun í skólastarfi
Það er
ánægjulegt
að taka þátt í
þeirri ný
sköpun og
frumkvöðla
starfi sem
verið er að
ýta úr vör
með því að
samþykkja
nýjan ung
lingaskóla í
Hafnarfirði.
Rósa
Guðbjartsdóttir
formaður bæjar-
ráðs og fræðslu-
ráðs Hafnar-
fjarðar
2.990 KR.*
ÓTAKMARKAÐ TAL, SMS
OG ÓTAKMARKAÐ
GAGNAMAGN
Endalaust
ENDALAUS
GSM
1817 365.is
*Greitt er aukalega fyrir farsímanotkun erlendis, til
útlanda og í upplýsinganúmer. Nánari upplýsingar á 365.is
Stelpurnar okkar í landsliðinu rúlluðu yfir hið makedónska í undankeppni Evrópumeistara-mótsins í fyrradag. Með sigrinum svo gott sem tryggðu þær sér sæti á mótinu sem fer fram næsta sumar. Fari svo að þær komist á mótið
verður það í þriðja sinn í röð sem stelpurnar keppa í
lokakeppni EM.
Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari var að vonum
sáttur við frammistöðu liðsins, sem hafði mikla yfir-
burði í leiknum og sigraði með átta mörkum gegn
engu. Stelpurnar hafa unnið alla sex leiki sína í undan-
keppninni með markatölunni 29-0, sem er magnaður
árangur. En landsliðsþjálfarinn var ekki síður ánægður
með stuðningsmenn liðsins. „Ég er fyrst og fremst
ánægður með mætinguna,“ sagði Freyr í samtali við
Fréttablaðið en á fimmta þúsund mættu á leikinn.
Mikið hefur verið rætt um fjölmiðlaumfjöllun og
mismunun kynjanna. Þar vita líklegast allir miðlar sem
yfirhöfuð fjalla um íþróttir upp á sig sökina. Hallbera
Guðný Gísladóttir landsliðskona skrifaði í maí afar
sterkan pistil á Facebook þar sem hún vakti athygli á
áhugaleysi á íslenskri kvennaknattspyrnu. Nefndi hún
litla umfjöllun í fjölmiðlum sem og lélega mætingu
áhorfenda á deildarleiki.
Hallbera sagðist í gegnum árin hafa þurft að sætta
sig við að hennar íþrótt skipti ekki jafn miklu máli
og íþróttin sem bræður hennar og frændur spiluðu,
þrátt fyrir að hún hafði lagt jafn mikið á sig og þeir
og hugsanlega meira. „Foreldrar mínir og fjölskylda
hvöttu mig að sjálfsögðu áfram en umhverfið sýndi
mér að mín vinna var einfaldlega ekki jafn mikilvæg.“
Ýmsar skýringar má finna á þessari ömurlegu stað-
reynd; að íþróttir kvenna virðast ekki skipta jafn miklu
máli og karla. Minni fjölmiðlaumfjöllun, mýtan um
meint getuleysi kvenna, minni peningar innan íþrótta-
liðanna og -hreyfinganna og fleira.
En stelpurnar okkar, fótboltastelpurnar, handbolta-
stelpurnar, fimleikastelpurnar, sundstelpurnar og allar
hinar sýna það svart á hvítu að við búum yfir heims-
klassa íþróttamönnum af báðum kynjum. Íslenska
kvennalandsliðið í knattspyrnu er til að mynda í
tuttugasta sæti á lista FIFA yfir bestu lið í heimi.
Fleiri og fleiri eru meðvitaðir um að kvennaíþróttir
eru nákvæmlega jafn góð skemmtun og karla. Á
leikinn á þriðjudaginn mættu fleiri en mæta alla jafna
á deildarleikina hjá körlunum. Tvö- til fjórfalt fleiri.
Efsta deild kvenna fær í sumar ítarlegri umfjöllun en
áður hefur þekkst, leikur í hverri umferð er sýndur auk
þess sem sérstakur markauppgjörsþáttur er á dag-
skrá Stöðvar 2 sport þar sem sýnt er úr öllum leikjum,
ásamt meiri vef-, blaða- og útvarpsumfjöllun.
Um er að ræða mikið framfaraskref, en dugir þó
ekki til. Áhugamenn um íþróttir þurfa að átta sig á að
sleppi þeir kvennaíþróttunum missa þeir af helmingi
veislunnar. Eins og að mæta í brúðkaup en fara áður en
kossinn á sér stað.
Stelpurnar
okkar – allar
Fleiri og fleiri
eru með
vitaðir um
að kvenna
íþróttir eru
nákvæmlega
jafn góð
skemmtun
og karla.
enn önnur lög á kjaradeilu
Innanríkisráðherra hefur með
lagasetningu skikkað flugum-
ferðarstjóra til að vinna yfir-
vinnu. „Ríkisstjórnin samþykkti
í morgun að grípa inn í þessa
deilu,“ sagði Ólöf Nordal í gær.
Þessi kjaradeila flugumferðar-
stjóra er vissulega ekki að koma
upp núna. Flugumferðarstjórar
hafa átt í kjaraviðræðum við
Samtök atvinnulífsins og Isavia
frá því í október á síðasta ári.
Eftir að þær samningaviðræður
höfðu ekki skilað neinu ákváðu
flugumferðarstjórarnir að hefja
yfirvinnubann í byrjun apríl.
Nú hafa flestallir samþykkt
svokallað Salek-samkomulag
en flugumferðarstjórar hlusta
ekki á neitt slíkt heldur ætla sér
stærri bita af kökunni.
ábyrgðarhlutinn
Það er hins vegar ljóst að
flugumferðarstjórar eru langt
í frá láglaunastétt hér á landi.
Margar stéttir hafa þurft að
berjast fyrir nokkrum þúsund-
köllum í viðbót í vasa sinn eftir
hver mánaðamót og hefur sú
barátta sumra skilað því. Salek-
samkomulagið gengur út á að
halda hér á landi stöðugleika
til þess að launaskrið framkalli
ekki verðbólgu og launarýrnun
þeirra lægst launuðu. Því er það
ábyrgðarhluti þegar starfstéttir
sem vissulega eru ekki á lægstu
töxtunum krefjast ríflegri launa-
hækkana en aðrar stéttir hafa
fengið. sveinn@frettabladid.is
9 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R18 s k o ð U n ∙ F R É T T A B L A ð I ð
SKOÐUN
0
9
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
A
F
-B
2
E
8
1
9
A
F
-B
1
A
C
1
9
A
F
-B
0
7
0
1
9
A
F
-A
F
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
8
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K