Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.06.2016, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 09.06.2016, Qupperneq 42
Fótbolti Þrettán leikmenn íslenska karlalandsliðsins í gegnum tíðina eiga það sameiginlegt að hafa verið á undan öllum öðrum íslenskum landsliðsmönnum í undankeppn- um Íslands fyrir Evrópumót lands- liða í fótbolta. Ísland komst loks á EM í tólftu tilraun og vonandi ná Fyrsta rauða spjaldið Pétur Arnþórsson á móti Noregi 23. september 1987 Framarinn Pétur Arnþórsson var fyrstur til að vera rekinn snemma í sturtu en hann fékk þá tvö gul spjöld í 1-0 sigur- leik Íslands í Ósló í undankeppni EM 1988. Fyrra spjaldið fékk hann á 40. mínútu fyrir brot en það seinna á 87. mínútu var klaufalegt en hann sparkaði þá boltanum í burtu eftir að dæmd hefði verið aukaspyrna. „Þetta var náttúrulega bara rugl. Fyrir það fyrsta átti ég aldrei að fá gult spjald fyrir þetta sakleysislega brot í fyrri hálfleik og í öðru lagi þá er fáránlegt að gefa rautt spjald fyrir það sem ég gerði,“ sagði Pétur í viðtali við Morgunblaðið eftir leik. Fyrsti varamaðurinn sem skorar Eyjólfur Sverrisson á móti Frakklandi 20. nóvember 1991 Eyjólfur var fyrstur til að skora eftir að hafa komið inn á sem varamaður en minnkaði muninn i 3-1 tapi á móti Frökkum í París með glæsilegu skoti fimmtán mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður. „Ég var að sjálfsögðu svekktur yfir því að sitja á bekknum. Annars hefði ég ekkert að gera hér,“ sagði Eyjólfur við Morgun- blaðið sem spurði líka þjálfarann. „Nei, ég sé ekki eftir því að hafa látið Eyjólf sitja á bekknum. Ég sagði fyrir leikinn að ég ætlaði að skoða Guð- mund Torfason. En Eyjólfur stóð sig mjög vel – og hefur gert það síðustu leikjum,“ sagði Ásgeir Elíasson lands- liðsþjálfari við Morgunblaðið eftir leikinn. Fyrsta markið beint úr aukaspyrnu Arnar Gunnlaugsson á móti Svíþjóð 1. júní 1995 Arnar Gunnlaugs- son, þá 22 ára gamall, kom Íslandi í 1-0 á móti Svíum í Stokkhólmi með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu af 25 metra færi strax á 3. mínútu. „Þetta var besta mark mitt á ferlinum. Ég hef aldrei áður skorað úr aukaspyrnu og hjá Nürnberg fæ ég ekki einu sinni að taka þær. Kannski breytist það núna,“ sagði Arnar við sænsku TT-fréttastofuna eftir leikinn. Ímyndið ykkur það að Lars eða Heimir myndu skora á móti Portúgal Þegar íslenska landsliðið mætir Portúgal í fyrsta leik sínum í úrslita- keppni EM eftir fimm daga þá verða liðin tæp 54 ár síðan Ísland spilaði sinn fyrsta landsleik í Evrópukeppni landsliða. Ísland skrifaði EM-söguna strax í fyrsta leik. Ef Lars Lagerbäck eða Heimir Hallgrímsson myndu skora fyrir íslenska landsliðið á móti Portúgal í fyrsta leik Íslands á EM í Frakklandi yrðu þeir ekki fyrstu landsliðsþjálfarar Íslands til að af- reka slíkt. Það gerist örugglega ekki enda hvorugur í hópnum en það var aftur á móti launalaus þjálfari íslenska liðsins í fyrsta leik þjóðar- innar í Evrópukeppni. 12. ágúst 1962 var ekki bara sögulegur dagur fyrir íslenska landsliðið heldur einnig fyrir sögu Evrópukeppni landsliða. Ríkharður Jónsson skoraði fyrsta mark Íslands í leiknum en hann var bæði spilandi þjálfari og fyrirliði íslenska liðsins í leiknum. Enginn annar þjálfari í sögu Evr- ópukeppninnar hefur náð að skora fyrir lið sitt og hvað þá að gera bæði mörkin eins og Ríkharður gerði í Dublin fyrir rúmri hálfri öld. Fyrstu mörkin í sigurleik Jóhannes Eðvaldsson og Ásgeir Sigurvinsson á móti Austur-Þýska- landi 5. júní 1975 Ísland vann sinn fyrsta sigur í undankeppni EM á móti Austur-Þýska- landi á Laugardals- vellinum 5. júní 1975. Jóhannes Eðvaldsson skoraði fyrra markið strax á 19. mínútu með glæsilegri hjólhesta- spyrnu og Ásgeir Sigur- vinsson kom Íslandi síðan í 2-0 á 30. mínútu eftir að hafa sloppið í gegn eftir langt útspark Sigurðar Dagssonar markvarðar. Austur- þýska liðið minnkaði muninn í seinni hálf- leik en íslenska liðið fagnaði tímamótasigri. Fyrsta fiskaða vítaspyrnan Pétur Pétursson á móti Austur-Þýska- landi 4. október 1978 Pétur Pétursson var bæði fyrstur til að fá vítaspyrnu og skora úr vítaspyrnu í útileik á móti Austur-Þýska- landi í undankeppni EM 1980. Pétur fékk stungusendingu á 15. mínútu og var brugðið illa. Hann skoraði af öryggi og jafnaði metin í 1-1 en Austur-Þjóð- verjar unnu leikinn á endanum 3-1. Fyrsta skallamarkið Atli Eðvaldsson á móti Albaníu 30. maí 1990 Fyrsta skallamarkið kom ekki fyrr en í fyrsta leik Íslands í undan- keppni EM 1992 þegar íslensku strákarnir unnu 2-0 sigur á Albön- um í Laugardalnum. Atli skoraði seinna markið á 86. mínútu með skutlu- skalla eftir fyrirgjöf frá Sigurði Grétarssyni. „Það var gamla marka- græðgin sem kom upp í mér þarna undir lokin. Síðan kom þessi glæsi- lega sending frá Sigga Gétars, boltinn sveif yfir varnarmennina og ég átti auðvelt með að skalla hann í netið,“ sagði Atli við DV eftir leik. Fyrsta stoðsendingin Þórólfur Beck á móti Írlandi 12. ágúst 1962 Þórólfur Beck var eini atvinnumaður- inn í íslenska liðinu í fyrsta leiknum á EM en hann kom til móts við liðið frá Dublin þar sem hann spilaði með St. Mirren. Þórólfur stýrði boltanum til Ríkharðs eftir að hafa fengið boltann frá Skúla Ágústs- syni. Sveinn Jónsson lagði upp hitt mark Ríkharðs í leiknum. Fyrsta gula spjaldið Teitur Þórðarson á móti Belgum 8. september 1974 Teitur Þórðarson var fyrstur Íslend- inga til að fara í bókina en hann fékk áminningu í leik á móti Belgum á Laugardalsvellinum haustið 1974. Þetta var fyrsti leikur Íslands í undan- keppni EM 1976 og eina spjaldið sem fór á loft þetta sunnudagskvöld í Laugardalnum. „Teitur barðist af krafti – stundum fullmiklum krafti,“ sagði í umfjöllun um Teit í Vísi eftir leikinn. Fyrsti varamaðurinn Matthías Hallgrímsson á móti Belgum 8. september 1974 Matthías Hallgríms- son var fyrsti vara- maður íslenska liðsins í undankeppni EM en engar skiptingar voru í fyrstu undankeppninni. Matth- ías kom inn á fyrir Ásgeir Elíasson á 77. mínútu í leik á móti Belgum á Laugar- dalsvellinum en þjálfari íslenska liðsins í leiknum var Tony Knapp. Matthías var kominn í byrjunarliðið í næsta leik og skoraði þá mark Íslands í 1-1 jafntefli í Austur-Þýskalandi. Fyrstur til að halda hreinu Sigurður Dagsson á móti Frakklandi 25. maí 1975 Ísland hélt fyrst hreinu í sínum fimmta leik í undankeppni EM en hann var á móti Frakklandi á Laugardalsvelli vorið 1975. Í markinu stóð Sigurður Dagsson, markvörður Vals, og faðir Dags Sigurðssonar, landsliðsþjálfara Þjóðverja í handbolta. „Kempan Sigurður Dagsson enn einu sinni frábær í marki,“ stóð í umfjöllun um leikinn í Vísi. Sigurður sem var þarna þrítugur var að spila sinn fyrsta landsleik frá 1972 eða í rétt tæp þrjú ár. Fyrsta sjálfsmarkið Ríkharður Daðason á móti Frakklandi 9. október 1999 Ríkharður Daðason skoraði skallamörk í báðum leikjunum á móti Frökkum í undan- keppni EM 2000 en því miður aðeins í rétt mark í öðrum þeirra. Eftir að hafa skorað með skalla framhjá Fab ien Barthez í marki Frakka á Laugardalsvellinum í fyrri leiknum varð Ríkharður fyrir því óláni að skalla boltann í eigið mark í seinni leiknum á Stade De France. „Það var svekkjandi að skora sjálfsmark en það má ekki láta slík atriði fara á sálina. Ég sá ekki boltann,“ sagði Ríkharður í viðtali við Morgunblaðið eftir leikinn. Einu sinni verður allt fyrst Íslenska karlalandsliðið mun stíga sín fyrstu spor á stórmóti á Evrópumótinu í Frakklandi í sumar og íslensku strákarnir munu þar upplifa mjög margt í fyrsta sinn. Fréttablaðið kannaði hvaða íslensku landsliðsmenn voru fyrstir til þess að gera hlutina á fyrstu hálfu öld Íslands í undankeppni EM. strákarnir okkar mörgum nýjum takmörkum á Evrópumótinu í Frakklandi. Hér á síðunni má sjá öll þessi söguleg skref íslenskra landsliðs- manna á fyrstu 54 árum Íslands í undankeppni Evrópumóts lands- liða. Fyrsta markið Ríkharður Jónsson á móti Írlandi 12. ágúst 1962 Ríkharður Jónsson skoraði fyrsta mark Íslands í EM og kom það í fyrsta leik liðsins sem var á móti Írum í Dublin. Markið skoraði Ríkharður á 37. mínútu með skoti út teignum eftir að hafa unnið návígi. Hann jafnaði þarna leikinn í 1-1 og átti síðan eftir að skora annað mark og minnka muninn í 4-2 sex mínútum fyrir leikslok. 9 . j ú n í 2 0 1 6 F i M M t U D A G U R30 s p o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð 0 9 -0 6 -2 0 1 6 0 4 :3 4 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 A F -E 9 3 8 1 9 A F -E 7 F C 1 9 A F -E 6 C 0 1 9 A F -E 5 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 8 _ 6 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.