Fréttablaðið - 09.06.2016, Side 52
Frumsýningar
Gaman- og hasarmynd
Aðalhlutverk: Russell Crowe,
Ryan Gosling og Angourie Rice.
Frumsýnd 8. júní
IMDb 7,9/10
The Nice guys
Glæpa- og gamanmynd
Aðalhlutverk: Dwayne Johnson,
Kevin Hart og Danielle Nicolet.
Frumsýnd 15. júní
ceNTral iNTelligeNce
Teiknimynd
Aðalhlutverk: Ellen DeGeneres,
Albert Brooks og Idris Elba.
Frumsýnd 16. júní
FiNdiNg dory
Kolbeinn pollslakur í einni senu myndarinnar. Hann ætti að vera nokkuð vanur rútuferðunum líkt og liðsfélagarnir.
KviKmyndir
Jökullinn logar
★★★★★
Leikstjóri: Sævar Guðmundsson
Framleiðendur: Sölvi Tryggvason og
Kristín Ólafsdóttir
Handrit og viðtöl: Sölvi Tryggvason
Kvikmyndataka: Víðir Sigurðsson,
Hákon Sverrisson og Ágúst Jakobs-
son
Hljóðhönnun: Gunnar Árnason
Tónlist: Les Fréres Stefson
Leið íslenska karlalandsliðsins í fót-
bolta á EM í Frakklandi hefur varla
farið fram hjá neinum Íslendingi,
jafnvel ekki þeim sem hafa tak-
markaðan áhuga á fótbolta. Eftir að
landsliðið var nálægt því að komast
á heimsmeistaramótið í Brasilíu sá
Sölvi Tryggvason ástæðu til að elta
liðið uppi og gera mynd um það.
Eins og oft vill verða með heimildar-
myndir gerast óvæntir hlutir í ferl-
inu og það gerðist sannarlega hér.
Sölvi og leikstjórinn Sævar Guð-
mundsson fylgja hér landsliðinu í
gegnum undankeppni EM og er farið
línulega gegnum ferlið, leik fyrir
leik, en samhliða því er áhorfandinn
kynntur fyrir helstu leikmönnum
liðsins og bakgrunni þeirra. Hér er
sögð saga þar sem við fáum að kynn-
ast persónunum aðeins. Í gegnum tár,
bros og takkaskó sést hvernig íslenska
karlalandsliðinu tókst að koma sér
alla leið á Evrópumeistaramótið í
knattspyrnu í fyrsta skipti í sögunni.
Það er best að geta þess strax
að undirritaður er einn af þessum
örfáu Íslendingum sem hafa mjög
takmarkaðan áhuga á fótbolta og
því ekki beint í markhópnum fyrir
þessa mynd. En þrátt fyrir áhuga-
leysið á fótbolta leiddist mér ekki.
Sölva Tryggvasyni, sem skrifaður
er hér fyrir handriti og viðtölum, og
leikstjóranum Sævari Guðmunds-
syni hefur tekist að gera líflega og
ágætlega skemmtilega mynd um
þessa frækilegu för landsliðsins. Það
er góður stígandi í myndinni, hún
flæðir vel og tekið er á efninu frá
mörgum hliðum. Það er ekki bara
talað um boltann heldur manneskj-
urnar á bak við hann og í kringum
hann, bæði leikmenn og þjálfara,
maka og aðdáendur. Áherslan er
samt fyrst og fremst á leikmennina.
Söguna þekkjum við öll en það
sem gerir þessa mynd þess virði að
horfa á eru persónuleikarnir. Mynd-
in er full af skemmtilegum litlum
karaktermómentum þar sem leik-
mennirnir fíflast hver í öðrum eða
viðurkenna veikleika sína. Húmor-
inn er heldur aldrei langt undan.
Engu að síður er fótboltinn aðal-
málið hérna og fyrir menn sem hafa
lítinn áhuga á því dalar myndin oft.
Það hjálpar heldur ekki að enda-
lokin eru augljós frá upphafi þó
Sölva og Sævari takist samt að
skapa smá spennu með góðri sam-
setningu. Helsta vandamálið er þó
að myndin er helst til of löng. Það
virðist vera einhver meinloka í fólki
að mynd sem er undir 90 mínútum
sé ekki alvöru bíómynd og því er
lopinn stundum teygður svo þeirri
lengd sé náð. Myndin er því svolítið
langdregin á köflum og missir líka
dampinn í seinni hlutanum, heldur
áfram of lengi eftir að endalokin eru
ljós og fjarar svolítið út þannig að
endirinn verður ekki nógu sterkur.
Sölvi og Sævar mega samt eiga
það að þeir missa sig ekki alveg í
þjóðrembunni þótt það örli samt
aðeins á henni. Þjóðarstoltið er
óneitanlega til staðar en tekur aldr-
ei alveg yfir, þetta er fyrst og fremst
saga um hóp manna sem tókst ætl-
unarverk sitt, að „fara á fokking EM“
svo vitnað sé í einn þeirra.
Atli Sigurjónsson
niðurstaða: Myndin er fagmannlega
gerð og ágætlega skemmtileg en líka of
löng og ekki nógu spennandi fyrir fólk
sem hefur ekki áhuga á fótbolta. Fót-
boltaáhugamenn mega bæta við einni
stjörnu á einkunnina.
Jökullinn logar: Tár, bros og takkaskór
sölvi Tryggvason og sævar guðmundsson leiddu saman hesta sína og fylgdu ís-
lenska karlalandsliðinu í knattspyrnu að draumnum um evrópumeistaramótið.
9 . J ú n í 2 0 1 6 F i m m t u d a G u r40 m e n n i n G ∙ F r É t t a B L a ð i ð
bíó
0
9
-0
6
-2
0
1
6
0
4
:3
4
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
A
F
-B
C
C
8
1
9
A
F
-B
B
8
C
1
9
A
F
-B
A
5
0
1
9
A
F
-B
9
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
8
_
6
_
2
0
1
6
C
M
Y
K