Víkurfréttir - 24.03.1983, Blaðsíða 2
2 Fimmtudagur24. marz 1983
VÍKUR-fréttir
n
mun
jíUUt
Útgefandi: VlKUR-fréttir hf.
Ritstj. og ábyrgöarm.: Emil Páll Jónsson, simi 2677
Páll Ketilsson, simi 1391
Afgrei&ala, ritstjórn og augl.: Hafnargötu 32, II. hæö
Sími 1717 - Pósthólf 125 - 230 Keflavík
Setning og prentun: GRÁGÁS HF. Keflavík
TÍj\lJS1AKlh,U.
TOVIISTAKSMMI
KdMir ára
Hjónin Kristján Jóhannsson og Dorriet
Kavanaugh í Félagsbíói á skírdag, 31. marz
n.k. kl. 14.30. Undirleikari Guðrún Kristins-
dóttir.
Forsala aðgöngumiða í Félagsbíói föstu-
daginn 25. marz (á morgun) frá kl. 15-17.
Sandgerðingar
Leitið ekki langt yfir skammt
Opið fimmtudaga til kl. 20
Opið föstudaga til kl. 22
Opið laugardaga kl. 10-13
Verslunin SKIPHÓLL
Sandgerði - Sfmi 7480
lönsveinafélag
Suðurnesja
Aðalfundur
verður haldinn laugardaginn 9. apríl n.k. kl.
13.30 í húsi félagsins, Tjarnargötu 7, Kefla-
vík. - Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf. - önnur mál.
Reikningar félagsins liggja frammi á skrif-
stofu félagsins frá og með mánudeginum
28. marz n.k.
Stjórnin
Ragnarsbakarí með nýja pökkunarvél:
Geymsluþol vör-
unnar þrefaldast
- segir Ragnar Eðvaldsson
Ragnarsbakari er eitt þeirra fyrirtækja hér á Suöurnesj-
um sem hefur veriö stööugt f sviösljósinu undanfarin ár og
er þaö kannskl ekki aö furöa, þar sem ávallt hafa komið frá
þvf nýjungar sem vakiö hafa athygli og i flestum tilfellum
náö vinsældum hjá fólki.
Ragnar Eövaldsson er eigandi þess, og hann hefur
bakaö brauö og kökur fyrlr okkur Suöurnesjabúa i 19 árog
oröinn löngu landsþekktur fyrir. Ekki alls fyrir löngu fékk
Ragnarsbakari nýja vél til pökkunar á kökum, sem gerir
þaö aö verkum aö geymsluþol vörunnar þrefaldast.
Af einskærri forvitni um þessa nýju vél og ýmislegt
annaö um fyrirtækiö fengum viö Ragnar i stutt spjall.
LOFTÞÉTTAR
UMBÚÐIR
,,Þessi nýja vél sér um aö
pakka kökum, öllum mögu-
legum stærðum af kökum,
og pakkar þeim í sérstaka
filmu sem er algerlega loft-
þétt. Hingað til hefur kökum
veriö pakkaö í þannig pakn-
ingar að eftir vissan tíma
hefur varan þornað, en
þessi nýja vél pakkar kök-
unum þannig aö ekkert loft
kemst að, sem gerir það aö
geymsluþolið þrefaldast.
Með tilkomu þessarar vélar
gerir hún mér kleift að skrá
framleiösludag, geymslu-
þol og verö, en þessir þrír
liðir þykja nú norðið nauð-
synlegir og er Ragnars-
bakarí fyrsta bakaríiö á land
inu sem merkir vöruna
svona. Enn eitt atriðið er, að
varan verður mun smekk-
legri i þessum pakningum
og allir vita hversu stórt atr-
iði það er.“
VERÐ GÆTI LÆKKAÐ
UM 5-7%
„Hin mikla afkastageta
vélarinnar getur haft það í
för með sér að verð vörunn-
ar lækkar. Hún getur fram-
leitt 20-50 pakningar á
mínútu og síðan eru kök-
urnar settar í sérstaka kassa
og ef kaupmaðurinn kaupir
í kassavís, sem hann getur
gert núna vegna hins mikla
geymsluþols, þá verður til-
tektin á pöntuninni svo
miklu hagkvæmari að verð
vörunnar mun lækka, og
getur þaö munaö 5-7%, en
SOLUAUKNINGIN
UM 50-100%
Á HVERJU ÁRI
„Frá því ég byrjaði árið
1964 hefur salan aukist um
50-100% á hverju ári og nú
sendi ég vörur um allt land í
miklum mæli. Þessmágeta,
að árið 1981 var Ragnars-
bakarí fimmti stærsti mat-
vælaframleiðandi á landinu
(innsk. blm.) Það má segja
að það hafi byrjað af alvöru
þegar ég kom meö Heilsu-
þrauðiö og þá hafi brauða-
byltingin sem nú gengur
yfir landiö, byrjað. Síðan þá
sendi ég brauð og kökur út
um land allt í miklum mæli.
Ég legg mikla áherslu á að
koma með einhverjar nýj-
ungar öðru hverju, því ef
maður hættir að koma með
eitthvað nýtt, getur maður
bara pakkað saman og
haett."
DRAUMUR AÐ OPNA
LÍTIÐ BAKARf
,,Það hefur alltaf verið
dramur hjá mér að opna litla
búð, huggulega búð á góð-
um stað, þvi fólk kemur í
bakarí til að dæma bakar-
ann, en uppbyggingin hér á
þessum stað og vöxturinn á
fyrirtækinu hefur verið svo
mikill, að það hefur ekki
gefist tími til að íhuga það
nógu nánar.
tg vil taka það fram, að
Ragnarsbakarí væri ekki
orðið að því sem það er, ef
Suðurnesjamenn hefðu
ekki tekið vörunni vel og
verslað við sitt eigið fyrir-
tæki hér fyrir sunnan og
stutt það í gegnum árin,"
sagði Ragnar Eðvaldsson
að lokum. - pket.
Lionessur með
kökubasar
Kleinurnar settar á bandiö.
Koma út I loftþéttum umbúÐum mefi merklmlöa.
Til fermingargjafa
Hin sívinsælu teppi
Verð kr. 696.
Sængur - Koddar
Sængurverasett.
DRAUMALAND
Hafnargötu 37 - Keflavík
Sími 3855
þetta er bara spursmál
hvernig verslunarmaðurinn
tekur vörunni."
BYRJAÐI Á HRING-
BRAUTINNI MEÐ TVÆR
AÐSTOÐARSTÚLKUR
„Ég byrjaði árið 1964 á
Hringbrautinni og hafði þá
tvær aöstoöarstúlkur. Árið
1972 flutti ég síðan á Há-
túniö og var þá á tveimur
stöðum, en svo fyrir tveim
árum síöan eða 1981 flutti
ég hingað uþþ á Iðavelli og
hef hér bakarí og sel einnig
útlitsgallaöar vörur á lágu
verði, sem er nokkurs konar
verksmiðjuútsala."
Þann 26. maí sl. varstofn-
aður Lionessuklúbbur
Keflavíkur, sá þriðju hér á
landi. Stofnendur voru 32.
Lionessu-hreyfingin er
öflug um allan heim og
vinnur aö svipuðum verk-
efnum og I tengslum við
Lions-hreyfinguna.
Fyrsta fjáröflun til líknar-
sjóðs félagsins veröur n.k.
laugardag 26. marz kl. 14.
Þá munu félagskonur vera
með kökubasar í Gagn-
fræðaskólanum og treysta
þær á góðan stuðning Kefl-
víkinga.
Auglýsingasiminn er 1717