Víkurfréttir - 26.04.1985, Blaðsíða 25
VÍKUR-fréttir
FöstudaguF 26. apríl 1985 25
Loftvamabyrgi í Keflavík
Annar inngangur í byrgið er úr kjallara hússins.
Að Vesturbraut 6 í Kefla-
vík stendur virðulegt hús
sem byggt var á stríðsárun-
um, eða 1945. Þetta hús
byggði Sveinbjörn Gísla-
son, sem þá var bygginga-
fulltrúi, og í því er eina loft-
varnabyrgið sem vitað er
um í Keflavík.
Byrgið er undir stétt sem
liggur að húsinu og eru
veggirnir u.þ.b. 40 cm
þykkir og loftið eitthvað
álíka. I loftinu er gluggi úr
þykku gleri og að utan má
sjá vírnet yfirglugganum til
að verja glerið. Sveinbjörn
flutti til Reykjavíkur og
dundaði sér í fríum sínum
hér suður frá við að úibúa
þetta loftvarnabyrgi.
í dag er þetta kannski
ekki í mjög góðu ástandi,
en að sögn eiganda hússins
stendur til að gera húsið
upp og verður þetta þá
tekið með. - kmár.
Undir þessari stétt er byrgið t.v. má sjá gluggann með vírnetinu
yfir.
Feitir bitar
Eins og fram kom í
næst síðasta tbl. er starf
byggingafulltrúans í
Keflavík laust innan fárra
vikna. Sumir telja að hér sé
um feitan bita að ræða, þ.e.
gott starf. En það eru fleiri
störf sem eru laus eða eru
að losna hér, sem eru mun
feitari, ef nota má það orð.
Starfs skólameistara og
aðstoðarskólameistara við
Fjölbrautaskóla Suður-
nesja er þar á meðal. Um-
sóknarfrestur um fyrra
starfið er runnið út og von-
andi tekur ráðherra hlið-
sjón af samþykki skóla-
nefndar og ræður Hjálmar
Arnason í starfið.
Staða yfirlögregluþjóns
við embætti lögreglustjór-
ans í Keflavík, Njarðvík,
að losna
Grindavíkur og Gull-
bringusýslu er laust og
verður auglýst á næstunni.
Og innan örfárra missera
kemur annað starf sem
fellur undir sama flokk,
þ.e. starf símstöðvarstjóra í
Keflavík. - epj.
Oskum öllum
launþegum til
hamingju með
1. maí.
l'JHWcUuOÍr
Sendum öllum launþegum
á Suðurnesjum
hamingjuóskir í tilefni
hátíðisdags uerkalýðsins,
l. maí.
Sparisjóðurinn í Keflavík
Sendum öllum launþegum
á Suðurnesjum
hamingjuóskir í tilefni
hátíðisdags uerkalýðsins,
l. maí.
Útvegsbanki íslands
Hafnargötu 60 - Keflavík
Sendum öllum launþegum
á Suðurnesjum
hamingjuóskir í tiiefni
hátíðisdags uerkalý^sins,
l. maí.
Verslunarbankinn
Vatsnesvegi 14 - Keflavík