Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.10.1985, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 03.10.1985, Blaðsíða 15
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 3. október 1985 15 Sjúkrahús - Heilsugæslustöð: Hvað dvelur gjaldtöku af sérfræðingum - fyrir veitta aðstöðu og þjónustu? Hin háu rekstrargjöld hjá Sjúkrahúsi Keflavíkur- læknishéraðs hafa vakið mikla athygli að undan- förnu, enda er um að ræða önnur hæstu daggjöld sem leyfð eru á sjúkrahúsum hér á landi. I fréttum útvarps var fyrir skemmstu vitnað í Pál Sigurðsson ráðuneytis- stjóra, þar sem hann sagði að ástæðan fyrir þessum háu gjöldum væri hin mikla sérfræðingaþjónusta sem hér væri veitt. Áður hefur komið fram hér í blaðinu að rekstrarein- ing er hér mjög dýr, þar sem legurúm eru frekar fá, miðað við þá þjónustu sem hér er til staðar. En með því að veita þessa þjónustu hér syðra, þurfa Suðurnesja- menn ekki að sækja sér- fræðingaþjónustu á höfuð- borgarsvæðið. Vegna hins takmarkaða fjölda sjúkra- rúma, kemur minna inn á móti og því eru daggjöldin þetta há. Þá hefur stjórn Sjúkra- hússins og Heilsugæslu- stöðvarinnar marg ítrekað og bókað um það á fundum Útvegsmiðstöðin í frétt um undirskrifta- lista starfsfólks Utvegsmið- stöðvarinnar, sem það afhenti Verkalýðs- og sjó- mannafélagi Keflavíkur og nágrennis og Verkakvenna- félagi Keflavíkur og Njarð- víkur, var nafn fyrirtækis- ins rangt í öllum tilvikum. Fyrirtækið heitir Utvegs- miðstöðin hf., en ekki Ut- flutningsmiðstöðin hf. Leiðréttist þetta hér með. Krístín Guðmundsdóttir 90 ára - 7. október 1985 Einn af góðborgurum Keflavíkur, frú Kristín Guðmundsdóttir, Suður- götu 3, verður 90 ára 7. október n.k. Það er harla erfitt að trúa því að Stína mín sé að verða 90 ára, svo vel ber hún ald- urinn, enda alltaf svo jákvæð, sér ætíð það besta í öllu og öllum, talar alltaf' vel um alla, aldrei hef ég heyrt hana hallmæla nein- um. Kristín kom til Keflavík- ur 1929 svo árin hér eru orðin 56, eða jafnmörg og hjónabandsárin með sjnum góða manni, Einari Olafs- syni, ep hann andaðist sl. sumar. Þau eignuðust 4 börn, elst er Katrín, gift John S. Warren. Þau eru búsett í Kaliforníu og eiga 2 börn. Elín, gift Sigurði Markús- s^yni, eiga þau 3 dætur. Olafía, gift Áðalbergi Þór- arinssyni, eiga þau 4 börn, þær eru báðar búsettar hér í Keflavík. Yngstur er Guð- mundur, kvæntur Svein- gerði Hjartardóttur, eiga þau 2 börn og eru búsett í Mosfellssveit. Barnabörn- in eru því 11 og langömmu- börnin eru 3, öll sólargeisl- ar langömmu, eða Happy ömmu, eins og Ólafía litla kallaði hana. Þessi síunga heiðurskona brá fyrir sig betri fætinum í sumar og fór í heimsókn til Katrínar dóttur sinnar og kom heim aftur yngri en nokkru sinni. Eg er ekki viss um að mín góða vinkona, Stína, kæri sig hætishót um að ég skrifi um hana afmælisgrein, en ég bara stóðst það ekki, ég hef líka verið PLÁGAN hennar í svo mörg ár, hef verið heimagangur á Suð- urgötu 3 síðan ég man eftir mér, og besta vinkona mín er hún Kata, við kynntumst þegar við vorum 3ja ára og sú vinátta helst enn. Já, elsku Stína mín, þú fyrirgefur mér þetta eins og annað, en mig langaði bara að óska þér allra heilla á af- mælisdaginn og vona að hann verði þér bjartur og fagur og ánægjulegur, bið góðan Guð að blessa þér ævikvöldið og að við fáum að hafa þig hjá okkur lengi svona hressa og káta. Börn- um þínum og þeirra fjöl- skyldum óska ég líka til hamingju með að fá að eiga svona góða mömmu í öll þessi ár. Kristín og fjölskylda hennar ætla að taka á móti vinum og kunningjum á GLÓÐINNI n.k. sunnu- dag 6. okt. kl. 14-17 og vona að sjá sem flesta. Hanna Kristins að forstöðumaður stofnan- anna gangi frá samningum við sérfræðingana um greiðslu þeirra til SK og HSS fyrir veitta aðstöðu og þjónustu. Átti gjaldtaka þessi að hefjast 1. ágúst sl. í síðasta lagi. Samt stendur málið enn þannig, að sér- fræðingarnir greiða ekkert fyrir þá aðstöðu sem þeir njóta hér. Vonandi hættirforstöðu- maðurinn að humma þetta fram af sér, svo þessar nauðsynlegu stofnanir fái þann gjaldstofn sem þeim ber að fá. - epj. Verkalýðs- og sjómanna- félag Keflavíkur og nágrennis Allsherjar- atkvæðagreiðsla Ákveöið hefur veriö aö viðhafa allsherjar- atkvæðagreiðslu í Verkalýðs- og sjó- mannafélagi Keflavíkur og nágrennis, um kjör aðal- og varafulltrúa á 12. þing Verka-. mannasambands íslands. Tillögur um 6 fulltrúa og jafn marga til vara, skulu sendar skrifstofu félagsins í síðasta lagi fyrir kl. 19, mánudaginn 21. október n.k. Hverri tillögu skal fylgja tilskilinn fjöldi meðmælenda. Kjörstjórnin Þjónustuaugiýsingar LEIGAN )\ NTAG..« -1729 - HRAUNAS Hraunsvegi 25 - Njarövík MYNDATÖKUR við allra hæfi mjmuinD Hafnargötu 26 - Keflavík - Simi 1016 Gengiö inn frá bílastæði. uiiiTiin lniRÍRI I Sparisjóðurinn í Keflavík Keflavík - Sími 2800 Afgreiðslut ími frá kl. 9.15-16 alla virka daga nema laugardaga (opið í hádeginu). - Síðdegisafgreiðsla föstudaga frá kl. 17—18. •ni i Afgreiðslutími frá kl. 9.15-12.30 og 13.30-15.30 alla virka daga --------------H nema laugardaga. Afgreiðslustími frá kl. 9.15-16 alla virka daga nema \ laugardaga (opið í hádeginu). r5 Garður - Sími 7100 Njarðvík - Sími 3800 Augiýsið Víkur-fréttum VEGHÚS V4v skiltapfcrö Suöurgötu 9 - Keflavik Simi 1582 GÓLF- SLÍPUN TÖKUM AÐ OKKUR STEYPUVINNU, JÁRNALÖGN OG GÓLFSLlPUN. - Föst tilboð. - Uppl. gefur Einar í síma 3708. Steinsteypusögun Sögum m.a.: gluggagöt, stiga- og hurðagöt, í gólf og inn- keyrslur. Föst verö- tilboö. Uppl. í síma 3894. Margeir Elentínusson

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.