Fréttablaðið - 17.09.2016, Page 2

Fréttablaðið - 17.09.2016, Page 2
Veður Gengur í allhvassa sunnanátt suðaustan til á landinu, annars hægari vindur. Víða talsverð rigning, jafnvel mikil á Suð- austurlandi, en úrkomulítið vestanlands og einnig við Húnaflóa. Hiti 8 til 14 stig. Snýst í vestanátt um kvöldið og hvessir syðst á landinu. sjá síðu 44 Garðeigendur geta fengið rukkun vegna trjágróðurs Byggingarreglugerð skyldar garðeigendum að halda gróðri innan lóðarmarka. Ef gróðurinn sem vex út fyrir lóðarmörk og hindrar vegfarendur, geta starfsmenn borgarinnar klippt hann á kostnað garðeigenda. Eftir góða tíð í sumar hefur trjágróður sprottið vel og víða vaxið inn á stíga og götur. Eru starfsmenn borgarinnar þessa daga að skoða hvar líklegt er að gróður hindri för snjóruðningstækja og sorphirðu. Fréttablaðið/gva Selva og Madonna 9 daga skíðaferðir VITA | Skógarhlíð | Sími | VITA.IS Verð frá 129.900 kr. og 12.500 Vildarpunktar á mann í tvíbýli með morgunverði á Garni St. Hubertus. Verð án Vildarpunkta: 139.900 kr.Flogið með Icelandair 12.–21. janúar fasteignir Á fasteignavef Vísis voru í gær 35 íbúðir í jafnt einbýlis- og fjölbýlishúsum auglýstar til sölu fyrir meira en 100 milljónir króna. Dýrasta eignin er glæný íbúð á tíundu hæð á Lindargötu 39. Tvær fasteignasölur bjóða íbúðina, önnur á 229 milljónir króna en hin á 211 milljónir. Íbúðin er 256 fermetrar með 109 fermetra þak- garði. „Mikið útsýni til sjávar og yfir Reykjavík og nágrenni,“ segir í auglýsingu fasteignasölunnar Stak- fells. Talsvert er einmitt af íbúðum í nýjum eða nýlegum fjölbýlis- húsum meðal dýrustu eignanna. Af áðurnefndum 35 eignum eru fimmtán í fjölbýlishúsum, nítján í einbýlishúsum og eitt raðhús er á listanum. Dýrasta einbýlishúsið stendur á sjávarlóðinni Skildinganesi 54. Það er 457 fermetrar og ásett verð er 189 milljónir króna. Hús á Fjólu- götu 19, sem er lítið eitt minna, eða 421 fermetri, er til sölu fyrir 180 milljónir. Á Selbraut 1 á Seltjarnar- nesi er 402 fermetra einbýlishús til sölu á 175 milljónir króna. Eina raðhúsið á listanum er í boði á 110 milljónir króna. Það er húsið Bakkavör 2 á Seltjarnarnesi. Það er 278 fermetrar að flatarmáli. Nokkuð er af eignum í nýjum hverfum. Í Kópavogi er til dæmis húsið Asparhvarf 16 á 149 milljón- ir. Eignin er samtals 501 fermetri. Inni í þeirri tölu er 60 fermetra hesthús. gar@frettabladid.is Úrval íbúða sem kosta yfir hundrað milljónir Í augnablikinu bjóðast 35 íbúðarhús og íbúðir á yfir 100 milljónir króna á fasteignavef Vísis. Dýrust er þakíbúð á Lindargötu sem er föl fyrir 229 milljónir. Einbýlishúsið á sjávarlóðinni Skildinganesi 54 fæst fyrir 189 milljónir króna. götuheiti tegund Fermetrar Millj. kr. lindargata 39 10. hæð 256 fm 211-229 Safamýri 89 Einbýli 498 fm 210 Skildinganes 54 Einbýlishús 457 fm 189 Fjólugata 19 Einbýlishús 421 fm 180 Selbraut 1 Einbýlishús 402 fm 175 vatnsstígur 20-22 10. hæð 174 fm 165 vatnsstígur 20-22 9. hæð 174 fm 155 laufásvegur 22 Einbýlishús 252 fm 150 garðastræti 36 Einbýlishús 274 fm 150 vatnsstígur 14 Þakíbúð 182 fm 150 asparhvarf 18 Einbýlishús 501 fm 149 vatnsstígur 22 Fjölbýli 183 fm 145 garðatorg 2 Fjölbýli 187 fm 145 garðatorg 2B Fjölbýli 195 fm 145 laufásvegur 79 Einbýlishús 372 fm 142 ✿ íbúðir til sölu á yfir 100 milljónir visir.is Allur listinn er á Vísi. Dómsmál Innanríkisráðuneytið hafnaði tillögu nefndar um dóm- arastörf þess efnis að heimild yrði sett í dómstólalög um að haldin yrði opinber skrá um eignarhluti dómara í félögum og atvinnu- fyrirtækjum. Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins. Nefndin sendi til- löguna frá sér í apríl 2014 ásamt tillögu um að haldin yrði opinber skrá um aukastörf dómara. Sú til- laga fór inn í frumvarp að nýjum dómstólalögum sem Alþingi sam- þykkti í júní. Í svari ráðuneytisins segir að þegar tekin sé afstaða til þess hvaða upplýsingar um eignarhluti eru birtar í skrá vegist á sjónarmið um friðhelgi einkalífsins og almanna- hagsmuni. Reglurnar hafa verið óbreyttar síðan árið 2000. – hlh Dómarar höfðu betur samfélag Mjög fágætur íslenskur hundrað krónu seðill frá árinu 1919, sem metinn er á 3-4 milljónir króna, verður boðinn upp á upp- boði hjá þýsku uppboðsfyrirtæki í næstu viku, ásamt rúmlega tuttugu öðrum sjaldgæfum íslenskum seðl- um. Einungis er vitað um sex eintök af þessum seðli í einkaeign í heim- inum en um er að ræða 100 krónu seðil frá Íslandsbanka. Slíkir seðlar voru aðeins í umferð hérlendis um tuttugu ára skeið og höfðu mjög hátt verðgildi, eða sem nemur 150 þúsund krónum á núvirði hver. Samanlagt byrjunarverð seðl- anna er tæplega tíu milljónir króna. Þeir verða boðnir upp 20. og 21. september næstkomandi hjá virtu þýsku u p p b o ð s - fyrirtæki. E i n k a r fátítt er að ja f n g o tt ú r v a l a f íslenskum seðlum rati á uppboð. Á upp- boðinu í Þýskalandi eru alls tuttugu og tveir íslenskir seðlar, elsti þeirra var gefinn út árið 1792 en sá yngsti árið 1929. Af öðrum sjaldgæfum íslenskum seðlum á uppboðinu má nefna 50 króna seðil frá árinu 1925, útgefinn af Ríkissjóði Íslands. Byrj- unarverð á honum er sett 12 þúsund evrur, eða rúmlega 1,5 milljónir króna. - snæ Íslenskir seðlar boðnir upp á milljónir Seðlarnir 22 sem boðnir verða upp kosta hið minnsta 10 milljónir. 1 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 7 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :3 1 F B 1 0 4 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 9 D -6 0 F 4 1 A 9 D -5 F B 8 1 A 9 D -5 E 7 C 1 A 9 D -5 D 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 0 4 s _ 1 6 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.