Fréttablaðið - 17.09.2016, Blaðsíða 26
MÁLSTOFA UM HEILAHEILSU
Árlega er alþjóðlega Alzheimersdagsins hinn 21. september minnst
um heim allan. Alzheimersamtökin munu í tilefni dagsins standa fyrir
málstofu á Reykjavík Natura, (gamla Hótel Loftleiðir) miðvikudaginn
21. september 2016 kl. 17-19 undir heitinu Heilaheilsa.
Dagskrá:
• Hreyfing og heilaheilsa
Janus Guðlaugsson PhD, lektor við Íþrótta- og heilsubraut HÍ
• Tengsl milli svefns og heilabilunar
Guðlaug Þórsdóttir öldrunarlæknir
• Oooooog....brosa!
Sr. Oddur Bjarni Þorkelsson, prestur í Dalvíkurprestakalli
• Það er eins og það lifni eitthvað inní mér
Magnea Tómasdóttir, söngkona og tónlistarkennari
• Ný heimasíða kynnt
Sirry Sif Sigurlaugardóttir, fræðslustjóri Alzheimersamtakanna
Umræður og fyrirlesarar munu svara fyrirspurnum.
Málstofustjóri verður Vigdís Hauksdóttir, aþingismaður
Allir velkomnir, aðgangur ókeypis
þá allt í einu nýr stjórnmálamað
ur innan úr Katrínu sem virtist vera
algjör sérfræðingur í stálgrindar
fjósum. Til að toppa sérfræðinginn
í stálgrindarfjósum komu tveir eldri
karlar út úr gamalli rútu sem var á
hlaðinu, annar með nikku og hinn
með neftóbak. Þeir sungu hátt og
mikið „Kátir voru karlar“. Þetta er
líklega svona „you had to be there“
saga, skilar sér illa á prenti. En mér
varð hugsað til Friðriks Þórs í smá
stund,“ segir Lísa.
Föt í stíl við málefnin
Ingveldur Sæmundsdóttir, aðstoðar
maður Sigrúnar Magnúsdóttur
umhverfisráðherra, segir óvenjuleg
ustu verkefnin jafnan þau skemmti
legustu. „Sigrún á föt fyrir öll tæki
færi, t.d. kjól sem táknar skipulag og
hún klæddist þegar hún flutti tillögu
um landskipulagsstefnu á Alþingi.
Mér fannst t.d. mjög skemmtilegt
að velja sérstakt dress sem minnir
á landgræðslu og loftslagsmál, með
ráðherra, það var sérstök pæling á
bak við það,“ segir Ingveldur.
Sunna Gunnars Marteins
dóttir, aðstoðarmaður Gunnars
Braga Sveinssonar utanríkisráð
herra, minnist þess helst þegar hún
þurfti að spjalla um hreindýrarækt
heila kvöldstund í Tromsø í Noregi
við ræktanda sem hafði áhuga á
Vestfjörðum í því tilliti. „Var nokkuð
heppin að hafa unnið í kring um
hreindýr í Fjölskyldu og húsdýra
garðinum á menntaskólaárunum
sem auðveldaði málið,“ segir Sunna.
Engir tveir dagar eins
Enginn dagur er dæmigerður að
sögn Sunnu. „Því alltaf eru nýjar
áskoranir. Ég mæti yfirleitt fremur
úfin eftir morgunverkin heima
fyrir, ég á dóttur sem var að byrja
fyrsta skólaárið sitt og er að venjast
nýrri rútínu. Hleyp stundum beint
á fund eða fer yfir fjölmiðlana með
GBS fyrir daginn yfir kaffibolla, ef
þingstörfin kalla á það þá undirbý
ég pappíra t.d. fyrir óundirbúnar
fyrirspurnir sem eru óútreiknan
legar en stundum er ég heppin og
hitti á það sem spurt er um,“ segir
Sunna sem fer svo yfir minnis
blöð og setur inn athugasemdir til
ráðherra ef einhverjar eru. „Svo er
hlaupið um að afla upplýsinga eða
setið á fundum fram að hádegi um
ólíklegustu vandamál eða lausnir.
Stundum koma inn óskir um við
töl við ráðherra um málefni og þá er
reynt að undirbúa það faglega fyrir
hann. Svo eru það símtöl við kjós
endur, en fólk á það til að leita til
okkar með mjög fjölbreytt mál eða
leita ráða. Dagarnir geta verið langir
en kl. 18 hættir síminn að hringja og
ráðuneytið tæmist og þá gefst tími
fyrir tölvupóstana og önnur skrif
áður en haldið er heim,“ segir hún.
Erfiðustu verkefnin
Erfið verkefni lenda á herðum
aðstoðarmanna. Sum þeirra erfið
vegna þess að þau eru vandræða
leg eða flókin. Og önnur vegna þess
að þau varða neyð fólks sem leitar
aðstoðar ráðherra og þingmanna.
„Erfiðast, eða vandræðalegast
kannski, hingað til var að fara með
henni í búðir að reyna að fá hana til
að klæðast einhverjum blússum fyrir
verkefni sem við vorum í. Þar var ég
algjörlega komin út fyrir endimörk
getu minnar sem aðstoðarmaður,“
segir Eva, aðstoðarmaður Oddnýjar.
„Að hjálpa til við að móta ákvarð
anir sem varða lífsafkomu fólks. Ekk
ert veldur manni meiri streitu,“ segir
Sunna, aðstoðarmaður Gunnars.
„Það koma oft upp erfið verkefni
og aðstæður en Katrín er mögulega
besti yfirmaður norðan Alpafjalla
og þó víðar væri leitað og í góðu
teymi leysast öll verkefni,“ segir Lísa,
aðstoðarmaður Katrínar.
„Erfiðasti tíminn í þessari vinnu
var tvímælalaust þegar verkföll
heilbrigðisstarfsfólks stóðu yfir.
Það gekk mjög nærri okkur öllum og
var reynsla sem ég myndi seint vilja
endurupplifa,“ segir Inga, aðstoðar
maður Kristjáns.
„Það erfiðasta hefur mér alltaf
fundist þegar fólk leitar til manns
með mjög erfið raunveruleg vanda
mál sem það vonast til að fá úrlausn
á, en ég hef ekki tök á að gera neitt
til að hjálpa fólki. Það er langversta
tilfinningin í þessu starfi,“ segir
Jóhannes Þór, aðstoðarmaður Sig
mundar.
„Það mál sem hefur verið rauði
þráðurinn í gegn um þetta kjörtíma
bil er klárlega Ramminn. Það eru
vandfundin jafn tilfinningaþrungin
mál sem allir virðast hafa einhverja
skoðun á, en áskorunin var að leyfa
ferlinu og lögunum að hafa sinn
gang,“ segir Ingveldur, aðstoðar
maður Sigrúnar.
Sérfræðingar af ýmsu tagi
En hvaða eiginleika þarf til að sinna
starfinu? Aðstoðarmennirnir búa
yfir margvíslegri sérfræðikunnáttu. Í
þeirra hópi er að finna kennara, fyrr
verandi blaðamenn, almannatengla,
lögfræðinga og sérfræðinga í ýmsum
þjóðmálum.
„Ég er lærður sagnfræðingur, og
einhver sagði að til að skapa söguna
þyrfti fólk að þekkja söguna,“ segir
Jóhannes Þór sem starfaði líka sem
kennari í áratug. „Það eru ótrúlega
margar mikilvægar lífslexíur sem
ég lærði í því starfi og hef tekið með
mér í pólitíkina,“ segir hann.
Ingvar Pétur, aðstoðarmaður
Ragnheiðar Elínar, hefur fjöl
breyttan bakgrunn. Hann var við
loðandi sveitarstjórnarpólitík í
12 ár og hefur starfað með Sjálf
stæðisflokknum í 20 ár. Þá hefur
hann mikla reynslu af skrifum og
kynningarstörfum. „Ég starfaði
fyrir Landsvirkjun um árabil við
almannatengsl og kynningarstörf
og þekki orkumálin vel. Síðan var ég
starfandi blaðamaður áður en ég hóf
störf sem aðstoðarmaður ráðherra
og þar kynntist maður samfélaginu
enn betur og lærði að tileinka sér
vinnubrögð sem nýtast vel í þessu
starfi – ekki síst að greina kjarnann
frá hisminu. Öll þessi reynsla hefur
komið mér afar vel og nýtist mér á
hverjum einasta degi.“
Unnsteinn, aðstoðarmaður Ótt
ars, er menntaður í skapandi verk
efnastjórnun og leiðtoga og frum
kvöðlafræði frá danska skólanum
KaosPilot. Þá hefur hann unnið
mikið í sjálfboðavinnu. Hann hefur
brennandi áhuga á stjórnmálum. „Í
mér hefur alltaf blundað pólitíkus og
þegar ég var að fermast ætlaði ég inn
á þing. Ég er týpan sem kom heim
eftir skóla, hitaði mér örbylgjupítsu
og í stað þess að læra heima stillti ég
á Alþingisrásina,“ segir hann.
Inga, aðstoðarmaður Kristjáns,
hefur einnig unnið í mörg ár fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, bæði á skrifstof
unni og síðast sem framkvæmda
stjóri þingflokksins. „Ég þekki því
Alþingi og starfið í flokknum mjög
vel. Ráðherra hefur aðgang að mik
illi þekkingu í ráðuneytinu í þeim
reynslumiklu sérfræðingum sem þar
starfa, þannig að aðstoðarmaðurinn
þarf ekki endilega að vera enn einn
slíkur. Hann er hins vegar í mörgum
tilfellum framlenging á ráðherra eða
milliliður við þá sem eiga erindi við
hann eða hann vill eiga við orð. Þá
reynir á samskiptahæfni og hæfi
leikann til að fylgja eftir málum,“
segir hún.
Lísa Kristjánsdóttir segir sína sér
þekkingu liggja í verkefnastjórnun.
„Ég hef verið í kosningastjórn fyrir
VG í nokkrum kosningum og hér
áður var ég aðstoðarleikstjóri í kvik
myndum og þetta er ekki ósvipað,“
segir hún.
Kristín, lögfræðilegur aðstoðar
maður Ólafar, hefur mikla sérhæf
ingu á sviði lögfræði. „Ég hef fjöl
breytta reynslu á sviði lögfræði og
stjórnsýslu sem ég tel að nýtist vel
við stefnumörkun og úrlausn þeirra
margvíslegu viðfangsefna sem koma
á borð ráðherra,“ segir hún.
Þórdís segir Ólöfu ekki hafa þekkt
sig áður en hún réð hana til starfa
og nú stefnir hún sjálf á pólitískan
frama. „Ólöf tók ákvörðun um að
ráða mig sem aðstoðarmann, unga
konu með mikinn áhuga á stjórn
málum, menntun sem nýtist í starfi
og einhverja mannkosti sem hún
hafði heyrt að ég hefði. Við þekkt
umst ekkert þegar hún réð mig. Ég er
lögfræðingur með sérstaka áherslu á
stjórnskipunarrétti, skrifaði meist
araritgerðina um vandaða lagasetn
ingu og hef kennt stjórnskipunarrétt
við lagadeild Háskólans í Reykjavík
sem stundakennari frá árinu 2013.
Starfið snýst hins vegar mikið um að
koma málum áfram og vera í sam
skiptum við alls konar fólk, sam
skiptahæfni og að halda boltum á
lofti er því ákveðin sérfræðikunn
átta líka.“
Eva, aðstoðarmaður Oddnýjar,
starfaði áður sem blaðamaður. „Sér
þekking mín er á sviði íslenskra og
alþjóðastjórnmála og félagsvísinda
en svo hef ég sérstakan áhuga á heil
brigðismálum og jafnréttismálum.
En oft er þetta ekki ólíkt starf og
blaðamennska, þannig að maður
þarf að vita eitthvað smávegis um
allt og geta reddað sér,“ segir hún.
Sunna, aðstoðarmaður Gunnars,
er menntaður almannatengill. „Ég
er ung femínísk kona og hef starfað
með Framsóknarflokknum síðan
2009. Ég þekki hvernig Alþingi virk
ar frá fyrri störfum og fólkið sem við
störfum með í kjördæminu en einn
ig þá stefnu sem við vinnum með
bæði í ríkisstjórn og innan flokksins
sem ég hef tekið þátt í að móta. Þá
er atriði sem Gunnari Braga finnst
mjög mikilvægt, að ég þori að vera
ósammála honum og segja það beint
við hann,“ segir hún.
Svanhildur segir marga eiginleika
einkenna góðan aðstoðarmann.
„Mér finnst alltaf svolítið asnalegt að
tíunda eigið ágæti, og það sem gerir
mann að góðum aðstoðarmanni er
samtala mjög margra hluta. Á feril
skránni minni er lögfræðimenntun
og áralöng reynsla af fjölmiðlum og
svo á ég gott með alla textavinnu
sem er mikil þörf á í þessu starfi þar
sem endalaust þarf að vera að skrifa
ræður.“
Ef óvEnjulEgt Er
Eitthvað sEm Ekki
gErist á hvErjum dEgi,
þá má t.d. nEfna hluti
Eins og að skipulEggja
northErn futurE
forum og sitja inni í
fundarhErbErgi mEð
forsætisráðhErra
brEtlands að byggja
lEgo-Endur.
Jóhannes Þ.
Skúlason,
aðstoðarmaður
Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar
mér fannst t.d.
mjög skEmmtilEgt
að vElja sérstakt
drEss sEm minnir
á landgræðslu og
loftslagsmál, mEð
ráðhErra, það var
sérstök pæling
á bak við það.
Ingveldur
Sæmundsdóttir,
aðstoðarmaður
Sigrúnar
Magnúsdóttur
umhverfisráðherra
staðreyndir um
aðstoðarmenn ráðherra
12 ár er lengsti starfstími aðstoðarmanns, en ármann kr. ólafsson starfaði fyrir þrjá ráðherra í fimm ráðuneytum.
3 af 10
ráðherrum ríkisstjórnarinnar eru fyrrverandi aðstoðarmenn.
Heimildir: Hverjir verða aðstoðarmenn ráðherra? Fræðigrein eftir Gest Pál
Reynisson, stjórnmála- og stjórnsýslufræðing, og Ómar H. Kristmundsson,
prófessor við Háskóla Íslands.
FlEStir
aðStoðarmEnn
Þeir ráðherrar sem
hafa verið með flesta
aðstoðarmenn og
ráðgjafa eru Davíð
oddsson, Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson
og Jóhanna Sigurðar-
dóttir.
raGnhEiður Elín
ÁrnaDóttir
starfaði sem
aðstoðarmaður í 9 ár.
Styst starfaði
BJörn
DaGBJartSSon
eða í 115 daga
1979-1980.
EnGinn
aðStoðarmaður
Frá 1991 hefur það
aðeins gerst einu sinni
að ráðherra hafi ekki
ráðið sér aðstoðar-
mann. Það var Kol-
brún halldórsdóttir
sem var ráðherra árið
2009 í nokkra mánuði.
Tvenn hjón hafa verið aðstoðarmenn ráð-
herra. Jón Þór Sturluson og anna Sigrún
Baldursdóttur, Geir haarde og inga Jóna
Þórðardóttir. Sonur Ingu Jónu starfaði sem
aðstoðarmaður, Borgar Þór Einarsson.
mESta umFJöllunin Sá aðstoðarmaður sem mest hefur verið fjallað
um er aðstoðarmaður hönnu Birnu Kristjánsdóttur, Gísli Freyr Valdórs-
son, sem hætti vegna leka á upplýsingum um hælisleitanda.
DæmiGErður aðStoðarmaður rÁðhErra
Háskólamenntaður karl í kringum 36 ára aldurinn.
Kynjahlutföllin hafa verið að lagast, sér í lagi með
þessari ríkisstjórn og síðustu. Fjölmiðlafólk hefur
orðið algengara á síðustu árum.
FarSælir Margir fyrrverandi aðstoðarmenn hafa
fengið framgang í atvinnulífinu. Til að mynda ari Edwald,
Ásdís halla Bragadóttir og orri hauksson, forstjóri Símans.
Bræðurnir Páll og Árni magnússynir hafa báðir starfað sem aðstoðarmenn.
↣
1 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r26 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
1
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
9
D
-A
1
2
4
1
A
9
D
-9
F
E
8
1
A
9
D
-9
E
A
C
1
A
9
D
-9
D
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K