Fréttablaðið - 17.09.2016, Side 28
Ferðalangar geta keypt sér heitan mat, vistir eða nytsaman varning til útivistar, sem ef til vill gleymdist að taka með í farangri, í
tveimur amerískum skólarútum
frá sjöunda áratugnum.
„Þetta er eins og hliðarheimur,
menningarútópía,“ segir Katla um
hið sérstaka samfélag sem mynd-
ast í kringum búðina. „Hingað
kemur fólk sem er annaðhvort að
leggja af stað í göngu eða að koma
úr göngu. Því fylgir mikil gleði
og eftirvænting,“ segir Katla sem
hefur eignast vini um allan heim
vegna starfsins.
Fjallabúðin er fjölskyldufyrir-
tæki. Faðir Kötlu, Þorleifur Sívert-
sen, og móðir hennar, Helga Krist-
insdóttir, ásamt bræðrum hennar
hófu rekstur úr skottinu á gömlum
Land Rover fyrir tuttugu og sex
árum og seldu fisk. Nú rekur föður-
bróðir Kötlu verslunina.
„Það þurfti að grisja í vötn-
unum og því var veiddur fiskur og
eldaður fyrir útivistarfólk. Ef eitt-
hvað var afgangs þá var það selt.
Svo vatt reksturinn upp á sig, það
vantaði krydd á fiskinn, smjör
með, mjólk og brauð. Seinna voru
keyptar þessar amerísku skóla-
rútur sem ég held að hafi orðið
eftir hér á landi þegar herinn fór,“
segir Katla.
kristjanabjorg@frettabladid.is og
Stefán Karlsson ljósmyndari
Hliðarheimur í
Landmannalaugum
Katla Þorleifsdóttir afgreiðir ferðalanga á leiðinni í göngu um
ýmsan nauðsynjavarning og gefur þeim líka ókeypis faðmlög.
„Nálægðin við náttúruna er góð og á kvöldin fer ég í laugina og hitti þá marga af viðskiptavinum dagsins.“
Katla setti upp skilti sem á stóð að í boði væru ókeypis faðmlög. „Viðtökurnar létu
ekki á sér standa, fólk hefur bæði gaman og gott af því að fá faðmlag.“
„Ég get loksins unnið við þetta því börnin eru orðin nógu gömul en mig hefur lengi langað til að vera hér,“ segir Katla.
En hvað skyldi vera óvenjulegasta fyrirspurn frá viðskiptavini? „Inniskór, eða svona
flip-flops,“ segir Katla og hlær.
PANTAÐU FRÍAN TÍMA
Í SKOÐUN STRAX Í SÍMA
893-0098
ERTU LÖNGU HÆTTUR AÐ TAKA Í NEFIÐ
EN SITUR UPPI MEÐ SKEMMDIRNAR!
Ármúla 21, 2. hæð • S. 893 0098 • snyrtistofanhafblik@gmail.com
Snyrtistofan Ha lik
1 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r28 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
1
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
9
D
-8
D
6
4
1
A
9
D
-8
C
2
8
1
A
9
D
-8
A
E
C
1
A
9
D
-8
9
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K