Fréttablaðið - 17.09.2016, Blaðsíða 32
Áhugi minn á útivist kviknaði þegar ég var í sveit í Trékyllis-vík á Ströndum sem er að mínu mati ein fallegasta náttúru-
paradís Íslands. Mér fannst eitt-
hvað framandi við fjallgöngufólkið
sem kom á sumrin til að takast á við
fjöllin í sveitinni. Ég sá þetta draum-
kennt fyrir mér og dreymdi um að
gera slíkt hið sama. Það sem situr
samt mest í minningunni eru þó
fjöruferðirnar, þar gat ég eytt heilu
dögunum og spáð í náttúruna, tínt
skeljar og pælt í fuglunum. Þessi
áhugi hefur svo fylgt mér alla tíð,“
segir Pálína Ósk Hraundal, spurð
hvaðan áhugi hennar á útivist komi.
Pálína Ósk er menntaður ferða-
málafræðingur og búsett í Ósló
ásamt manni sínum, dóttur og
hvolpnum Millý. Fjölskyldan eyðir
markvisst miklum tíma í útiveru og
notar alls konar ólíkar aðferðir til
þess að upplifa náttúruna saman.
„Við erum sannfærð um að úti-
vera bætir og kætir, því reynum við
að flétta útivist inn í dagsdaglegt
líf okkar með alls konar skemmti-
legum hugmyndum. Gönguferðir
og útieldun eru í miklu uppáhaldi,“
segir hún og bætir við að fátt sé
skemmtilegra en að ganga inn í dali
og upp á fjöll og góður prímus eyði-
leggi aldrei upplifunina.
Óhætt er að segja að útivist er
töluvert aðgengilegri í dag en hér
áður fyrr, en það getur verið krefj-
andi að byrja að stunda markvissa
útivist.
„Ef þú áttir erfitt með að komast í
skátastarf eða björgunarsveit þá var
frekar erfitt að finna stað til að byrja
hér áður fyrr. Í dag er það þó breytt
og tel ég marga aðila vera að vinna
gott starf til að auðvelda krökkum
og unglingum að komast af stað.
Hægt er að fara í siglingaklúbba,
nýliðaprógrammið hjá björgunar-
sveitunum og Ferðafélag unga fólks-
ins svo eitthvað sé nefnt,“ segir hún.
Uppskrift fyrir útistund
„Ef við fjölskyldan ætlum að gera
okkur glaðan dag þá tökum við
gjarnan pönnukökudeig með í flösku
og steikjum okkur nokkrar pönnsur
úti yfir prímus. Það er létt og auðvelt
að ferðast með þetta í bakpokanum
og lítil fyrirhöfn, Pönnukökurnar eru
frábærar, t.d. á sunnudögum þegar
við getum sest niður í ró og næði og
notið þess að gera vel við okkur. Allir
elska pönnsurnar og þær bragðast
enn þá betur úti.
Nú þegar berjatíðin er í fullum
gangi er fátt sem toppar það að taka
með sér prímus og pönnukökudeig
og setjast niður í berjapásunni og
njóta þess að fá sér pönnukökur
með ferskum berjum. Í okkar huga
er þetta toppurinn.“
Útistundir og
ævintýri í faðmi
fjölskyldunnar
Pálína Ósk Hraundal ferðamálafræðingur nýtur útivistar
og gönguferðir og útieldun eru sérstaklega í uppáhaldi.
Skemmtilegt er að elda úti, þar sem öll fjölskyldan getur tekið þátt í eldamennskunni. Myndir/Pálína
Margt sniðugt er hægt að gera sér til skemmtunar, og um að gera að leyfa hug-
myndafluginu að ráða ferðinni.
Matur eldaður úti undir beru lofti bragðast einfaldlega betur.
Pálína Ósk Hraundal ferðamálafræð-
ingur segir útivist með fjölskyldunni
vera holla og góða skemmtun fyrir alla.
Fjölskyldan nýtur þess að vera úti og finnst fátt skemmtilegra en að njóta samveru-
stunda í náttúrunni.
Guðrún Jóna
Stefánsdóttir
gudrunjona@frettabladid.is
Skemmtileg
haustævintýri
nálægt Reykjavík
l Hvaleyrarvatn
l Úlfarsfell
l Haustferð á Þingvelli
Búum til útistundir og ævintýri
Fréttablaðið fékk Pálínu Ósk til
að setja fram hugmyndir fyrir úti
stundir og ævintýri sem hægt er
að skipuleggja með fjölskyldunni á
fallegum haustdögum
1. Mikilvægt er að öll fjölskyldan sé
með í undirbúningnum.
2. Pakkið tímanlega niður fyrir
ævintýrin og leyfið börnunum að
taka þátt í undirbúningnum. Ef
við erum vel undirbúin og búin að
pakka niður í tíma þá hættum við
síður við ævintýrin og útistundirnar.
3. Ekki vera hrædd við að setja
markmiðin hátt. Vinnið saman að
þeim og njótið þeirra. Það er allt
í lagi þó svo það taki tíma. Aðal
atriðið er að njóta samverunnar.
4. Hugsið út í það þegar farið er í
útistund eða hversdagsævintýri að
pakka létt en ekki spara hugguleg
heitin. Ef maður vill taka uppá
haldsbangsann sinn með í ferðina
eða önnur leikföng, þá tökum við
það endilega með og búum til
minningar saman. Einnig getur einn
súkkulaðimoli gert kraftaverk fyrir
stemninguna.
5. Fáið endilega aðrar fjölskyldur
með ykkur í ævintýrastundina og
notið tækifærið og hittist úti með
börnin. Ekki verra að leika sér í
stærsta herbergi veraldar, nátt
úrunni sjálfri, þar sem enginn þarf
að stressa sig yfir því þótt eitthvað
hellist niður eða að kexið fari í sófa
settið. Það fylgir því ákveðið frelsi
að vera úti!
6. Veljum ævintýri sem hentar
öllum, ekki bara börnunum. Full
orðnir verða líka að njóta ef við
ætlum að hafa útilíf sem lífsstíl.
7. Munið að þetta þarf ekki að vera
svo flókið! Aðalatriðið er að skella
sér út saman og aðeins 30 mínútur
á dag gera kraftaverk fyrir andlega
og líkamlega heilsu allra í fjöl
skyldunni.
Við erum sannfærð
um að útiVera bætir
og kætir, þVí reynum
Við að flétta útiVist
inn í dagsdaglegt líf
okkar með alls konar
skemmtilegum Hug-
myndum.
1 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r32 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
útivist
1
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
9
D
-6
5
E
4
1
A
9
D
-6
4
A
8
1
A
9
D
-6
3
6
C
1
A
9
D
-6
2
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K