Fréttablaðið - 17.09.2016, Page 34

Fréttablaðið - 17.09.2016, Page 34
Sigurborg segir að dagskráin verði mjög fjölbreytt. „Það má segja að hún samanstandi af afmælisgjöf- um til okkar sem við gefum svo áfram til vina og velunnara skól- ans. Stærsta gjöfin er fyrirlestra- dagskrá sem stendur alla vikuna. Við höfum fengið mjög fjölbreyttan hóp af fyrrverandi nemendum sem koma og segja núverandi nemend- um og þeim sem vilja koma frá því sem þeir hafa verið að gera, störf- um sínum og fræðum. Við köllum fyrirlestraröðina „Aftur til framtíð- ar“ af því að fyrrverandi nemend- ur koma úr fortíðinni til framtíðar- innar og gefa aftur af sínum fróð- leik inn í skólann sinn.“ Fyrirlestrarnir verða klukkan 11.15, 12.00 og 12. 30 og alltaf fleiri en einn í gangi í einu. Aðgangur að fyrirlestrunum er ókeypis og allir eru velkomnir. Nánari dagskrá má sjá á www. mh.is. Fjölbreytt dagskrá En fleira er á dagskrá í þessari af- mælisviku. „Við höfum alltaf út- skrifað mikið af leikurum og leik- listarkennarar núverandi og fyrr- verandi standa fyrir dagskrá á miðvikudagskvöldið sem kall- ast Leiktu þér betur! þar sem nú- verandi og fyrrverandi nemendur keppa í Leikhússporti, spunahóp- ur tekur yfir salinn og rifjuð verða upp atriði úr leiklistarsögu skólans. Á fimmtudagskvöldið koma Hamraskáldin til okkar, óskaplega mikið af flottum rithöfundum sem við höfum haft í skólanum, og ætla að lesa úr verkum sínum og kannski rifja upp gamla tíma í MH. Á föstudeginum verða svo hádegistónleikar á Miklagarði þar sem tónlistarmenn safnast að gamla flyglinum okkar sem er jafn gamall skólanum og syngja og leika á ýmis hljóðfæri.“ Opið hús Laugardagurinn 24, september er svo hinn eiginlegi afmælisdag- ur. „Þá eru fimmtíu ár síðan skól- inn var fyrst settur, á laugardegi, í stærstu skólastofunni en sú skóla- bygging sem við þekkjum í dag var ekki tilbúin,“ segir Sigurborg og bætir við: „Þá byrjum við á opnu húsi milli tvö og fjögur þar sem verða opnar kennslustofur, leið- sögn um skólann, dans- , tónlistar- og leikatriði hefjast þegar minnst varir. Sögu skólans verða gerð skil með sýningum á bókasafni, á göngum og í stofum og gagnvirk myndlistarsýning verður í gangi. Klukkan fjögur hefst afmælisdag- skrá á hátíðarsal skólans þar sem meðal annars verður farið yfir skrautlega byggingarsögu hans og þar kemur Kór Menntaskólans við Hamrahlíð fram sem er eitt af því sem við erum hvað stoltust af og hefur borið hróður skólans um allan heim. Á laugardagskvöldið verða svo tónleikar þar sem við fáum enn fleiri gjafir þegar hluti þeirra fjöl- mörgu MH-inga sem hafa getið sér gott orð um víðan völl stillir saman strengi. Afmælisvikunni lýkur svo á sunnudaginn eftir viku með skákmóti í minningu fyrsta rekt- ors skólans, Guðmundar Arnlaugs- sonar.“ Að lokum er Sigurborg spurð hver hún telji að sé sérstaða Menntaskólans við Hamrahlíð. „Þetta er skólinn sem þróaði áfangakerfið og við höfum lagt áherslu á að nemendur beri ábyrgð á sínu námi og fái að velja sem mest. Okkur finnst mjög áríðandi að halda skólabragnum þannig að allir geti verið eins og þeir vilja.“ Mh Fagnar 50 ára aFMæli Menntaskólinn við Hamrahlíð fagnar fimmtugsafmæli sínu um þessar mundir. Sigurborg Matthíasdóttir er konrektor skólans og segir hér frá afmælishátíðahöldunum sem hefjast á mánudaginn og standa í heila viku. Elín Albertsdóttir elin@365.is Menntaskólinn við Hamrahlíð á sér ýmsar hefðir. Hér situr Sigurborg á Matgarði þar sem nemendahópar helga sér borð og hafast við þegar þeir eru ekki í tímum. MYND/GVA Sigurborg tekur þátt í busavígslu á Miklagarði 1988. MYND/VICTOR HELGASON Nemendur MH á sólskinsdegi í vor. MYND/KENT LÁRUS BJÖRNSSON Námsaðstaða nemenda á Miðgarði. Hér má sjá Miðgarðsorminn hlykkjast milli súlna en nemendur hafa prjónað orminn síðan 1991. MYND/KENT LÁRUS BJÖRNSSON 1 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r2 F ó L k ∙ k y n n i n G A r b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G A r b L A ð ∙ h e L G i n 1 7 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :3 1 F B 1 0 4 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 9 D -A F F 4 1 A 9 D -A E B 8 1 A 9 D -A D 7 C 1 A 9 D -A C 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 0 4 s _ 1 6 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.