Fréttablaðið - 17.09.2016, Page 53
| AtvinnA | LAUGARDAGUR 17. september 2016 15
Skóla- og frístundasv
Stærðfræðikennari - Vættaskóli
Laust er til umsóknar starf stærðfræðikennara á unglinga-
stigi í Vættaskóla.
Um er að ræða 100% starf í teymiskennslu.
Vættaskóli er heildstæður grunnskóli með bekkjardeildir
frá 1. - 10. bekk auk Valvers á unglingastigi. Vættaskóli er
starfræktur á tveimur starfsstöðum í Grafarvogi.
Nemendur eru um 500 og starfsmenn um 90 talsins.
Skólinn vinnur að því að efla nám við hæfi hvers nemanda
meðal annars með auknum námstækifærum, nýjungum í
kennsluháttum og fjölbreyttu námsmati.
Einkunnarorð Vættaskóla eru: Vellíðan - metnaður - árangur.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og KÍ
Umsóknarfrestur er til 28.9.2016
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Jóhanna S Vilbergsdóttir í síma 4117750 og tölvupósti
johanna.s.vilbergsdottir@rvkskolar.is
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut
kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það
margbreytilega samfélag sem borgin er.
Stjórnandi við Öldrunar-
heimili Akureyrar
Viltu taka þátt í spennandi þróun-og nýsköpun
samhliða uppbyggingu EDEN heimilis?
Staða forstöðumanns við Birki-, Lerki-, Reyni – og Skógarhlíð á
Öldrunarheimilum Akureyrar (ÖA) er laus til umsóknar. Tímabundnar
dvalir eru mikilvægur hluti í starfsemi heimilisins. Um fullt starf er að
ræða og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Á Öldrunarheimilum Akureyrar fer fram fjölbreytt og áhugaverð
starfsemi sem stöðugt er í þróun. Heimilin hafa alþjóðlega viður-
kenningu sem EDEN heimili og starfa á grunni EDEN hugmynda-
fræðinnar sem leggur áherslu á sjálfræði, heimilisbrag og aukin
lífsgæði íbúa.
Öldrunarheimili Akureyrar reka fimm sjálfstæð heimili, tímabundna
dvöl auk dagþjálfunar. Heildarfjöldi stöðugilda er um 210.
Helstu verkefni:
• Forstöðumaður stjórnar og ber ábyrgð á hjúkrun og
umönnun íbúa heimilanna, daglegum rekstri, áætlanagerð
og starfsmannahaldi auk þess sem hann sér um þróun og
uppbyggingu heimilanna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólapróf í hjúkrunarfræði, íslenskt starfsleyfi og
löggilding frá Landlæknisembættinu.
• Æskilegt er að viðkomandi hafi lokið framhaldsnámi í
stjórnun, öldrunarfræðum eða öðru sambærilegu námi.
• Þekking og reynsla af EDEN hugmyndafræðinni er æskileg.
• Hæfni til stjórnunar, nýsköpunar og innleiðslu nýrra hug
mynda og vinnubragða.
• Reynsla af stjórnun skilyrði.
• Þekking og reynsla af teymisvinnu, starfsemi heima-
þjónustu og heimahjúkrunar er kostur.
• Þekking á „samfélagshjúkrun Buurtzorg módelsins“ er
kostur.
• Hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum, frumkvæði og
lausnarmiðun og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Metnaðarfullur leiðtogi með framtíðarsýn.
• Góð færni í að nota tölvur og viðeigandi hugbúnað.
• Hafi gott vald á íslensku máli og a.m.k. einu erlendu
tungumáli.
• Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor
og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans
samrýmist starfinu.
Nánari upplýsingar um starfið er að finna á heimasíðu
Akureyrarbæjar, www.akureyri.is þar sem sótt er um rafrænt.
Umsóknarfrestur er til og með 26. september 2016
Viltu takast á við krefjandi verkefni?
Sensa leitar eftir reynslumiklum og metnaðarfullum starfsmönnum með mikinn drifkraft, til að
takast á við krefjandi verkefni hjá okkur. Mikil áhersla er lögð á velferð starfsmanna, góðan
starfsanda, og hvetjandi starfsumhverfi. Við leggjum upp með gleði í vinnunni og höfum
leikherbergi og líkamsræktarstöð til afnota.
Tæknilegur sérfræðingur (gagnageymslur og netþjónar)
Sensa leitar að sérfræðingi á sviði gagnageymslna (e. Storage) fyrir
gagnageymslu- og afritunarlausnaframboð NetApp, ásamt
netþjónum og lausnum frá Cisco. Tæknilegur sérfræðingur kemur að
rekstri, þarfagreiningu og ráðgjöf á virðisaukandi lausnum fyrir
viðskiptavini og innviði Sensa. Hlutverk tæknilegra sérfræðinga hjá
Sensa er að koma sér upp og viðhalda djúpri þekkingu á sínu sviði.
Tæknilegur sérfræðingur í öryggislausnum
Sensa leitar að sérfræðingi til að vinna með viðskiptavinum okkar í
þeim öryggislausnum sem Sensa býður upp á. Cisco, Palo Alto,
Fortigate, RSA og F5 eru meðal þeirra framleiðanda sem við vinnum
með. Í starfinu felst þróun, kynningar og innleiðingar ásamt viðhaldi
á bæði hýstum og staðbundnum lausnum.
Tæknilegur sérfræðingur í netkerfum
Sensa leitar að sérfræðingi á sviði netkerfa, (Routing og Switching).
Verkefnin felast í þróun, hönnun, uppsetningu og rekstri netkerfa hjá
viðskiptavinum og í hýsingarumhverfi okkar. Það er mikið að gerast
á þessum markaði og mögulegt fyrir rétta starfsmanninn að snerta
allt það nýjasta sem kemur að SDN.
Sérfræðingur á Tækniborð Sensa
Sensa leitar að starfsmanni í krefjandi og skemmtilegt þjónustustarf
á Tækniborði Sensa. Sérfræðingar Tækniborðs veitir viðskiptavinum
þjónustu bæði í fjarvinnu og á þeirra heimavelli.
Tækniborðið tekur fullan þátt í rekstri upplýsingainnviða
viðskiptavina Sensa, sem hefur að skipa eina öflugustu framlínu
sérfræðinga landsins við úrlausn verkefna í fyrstu snertingu.
Mikilvægir eiginleikar:
Reynsla og þekking á
gagnageymslulausnum.
Reynsla og þekking á netþjónum,
diskastæðum og afritun.
Starfstengdar gráður t.d. frá
Netapp eða Cisco. Brennandi
áhugi á gagnageymslum.
Mikilvægir eiginleikar:
Reynsla og þekking á NGFW,
WAF, IPS og öðrum
netöryggislausnum.
Starfstengdar gráður frá
framleiðendum tengdum
öryggislausnum er kostur.
Brennandi áhugi á öllu sem
tengist gagnaöryggi.
Mikilvægir eiginleikar:
Reynsla og þekking á netkerfum.
Starfstengdar gráður frá Cisco
eða öðrum aðilum æskilegar.
Þekking á scripting mikill kostur,
til dæmis Python.
Mikilvægir eiginleikar:
Framúrskarandi þjónustulund og
samskiptahæfni.
Áhugi, eldmóður og frumkvæði.
Nám í kerfisstjórnun eða
sambærileg menntun.
Starfsreynsla á hverju sviði fyrir sig er nauðsynleg og menntun ávallt góð, en ekki skilyrði. Ef þú telur þig hafa það sem til
þarf að ná árangri í krefjandi umhverfi, sendu umsókn á starf@sensa.is.
Umsóknarfrestur er til og með 23. september 2016. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Sensa leggur áherslu á vönduð og fagleg vinnubrögð og hefur ávallt þarfir viðskiptavina í fyrirrúmi. Sensa er í fararbroddi
í hýsingar-, rekstrar- og samskiptalausnum þar sem sterk liðsheild, hátt þekkingarstig og verðmæt viðskiptasambönd
spila stórt hlutverk. Sensa er Cisco Gold Partner og stærsti sölu- og þjónustuaðili Cisco samskiptabúnaðar á Íslandi. Þá er
Sensa Microsoft Cloud Solutions Provider og Gold Partner.
www.hagvangur.is
Sterk tengsl í íslensku atvinnulífi
1
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
1
0
4
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
9
D
-C
8
A
4
1
A
9
D
-C
7
6
8
1
A
9
D
-C
6
2
C
1
A
9
D
-C
4
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K