Fréttablaðið - 17.09.2016, Síða 100
Ráðstefna í HR 20. september
STJÓRNUN NÝSKÖPUNAR
INNAN FYRIRTÆKJA OG
STOFNANA
FYRIRLESARAR:
· Dr. Marc J. Epstein, prófessor við Rice University í Bandaríkjunum heldur inngangserindi á
ráðstefnunni. Dr. Epstein hefur skrifað fjölda bóka og greina um nýsköpun skipulagsheilda,
þ.á.m. bókina Making Innovation Work, ásamt því að sinna ráðgjöf fyrir nokkur af áhrifamestu
fyrirtækjum heims s.s. Apple og Google.
· Dr. Páll M. Ríkharðsson, prófessor og forseti viðskiptadeildar HR
· Ragnheiður H. Magnúsdóttir, Business Manager, Inside Sales hjá Marel
· Már Másson, forstöðumaður dreifileiða og nýsköpunar hjá Íslandsbanka
· Guðmundur Óskarsson, forstöðumaður markaðssviðs og viðskiptaþróunar hjá Icelandair
· Sigurður Helgason, skrifstofustjóri hjá fjármálaráðuneytinu
· Hallur Þór Sigurðarson, aðjúnkt í nýsköpunarfræðum við HR
Aðgangseyrir: 29.000 kr. | Dagskrá ráðstefnunnar og skráning: www.ru.is/opnihaskolinn
Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og Opni háskólinn í HR, í samstarfi
við Icelandic Startups, bjóða til ráðstefnu um nýsköpun innan fyrirtækja
og stofnana þriðjudaginn 20. september 2016, kl. 8:00 - 12:30.
Menntaskóladrengurinn Brynjar Steinn, betur þekktur sem binniglee,
heldur úti vinsælum Snapchat-
aðgangi sem hefur laðað að sér
næstum 14.000 aðdáendur. Það sem
heillar mest við Brynjar er einlægni
hans og hversu opinskár hann er
um líf sitt. Hann leyfir fylgjendum
sínum að fylgjast með sér reyna fyrir
sér í förðun og hefur vakið mikla
athygli fyrir það.
Vinsældir hans hafa vaxið hratt
en hann gerði aðganginn opin-
beran í apríl á þessu ári. „Frá því að
ég byrjaði með aðganginn í apríl
þangað til í maí var ég kominn með
5.000 fylgjendur. Það var ótrúlega
gaman og mér leið þvílíkt vel. Ég
hélt að enginn mundi nenna að
horfa á þetta en markmið mitt var
að fá 1.000 fylgjendur. Fyrst fann
ég fyrir smá pressu á mér að vera
alltaf með gott „story“ en svo hætti
ég að pæla í því og hef bara verið ég
sjálfur. Það skiptir ekki máli hvort
það eru 40 manns eða 14.000 manns
að fylgjast með mér.“
Brynjar fær mikið sent af snyrti-
vörum enda hefur hann mikinn
áhuga á förðun og er með marga
fylgjendur sem finnst gaman að
fylgjast með því sem hann gerir.
„Ég byrjaði að mála mig í fyrsta
skipti í apríl en þá fékk ég mikið
af vörum til að prófa. Ég fékk samt
áhugann fyrir þessu í fyrra en þá var
ég ekki kominn út úr skápnum. Ég
kom loksins út úr skápnum þann
24. desember í fyrra og þá gat ég
loksins byrjað.“
Hann hefur verið duglegur að
Líður vel að
hjálpa öðrum
Binniglee heldur úti einum vinsælasta
Snapchat-aðgangi landsins en hann er kom-
inn með tæpa 14.000 fylgjendur. Hann er
einlægur, opinskár og góð fyrirmynd fyrir þá
sem eiga erfitt með að koma út úr skelinni.
Grime-listamaðurinn Skepta hlaut Mercury-verðlaunin á fimmtudaginn og sló þar
með út meðal annars David Bowie,
Radiohead og The 1975.
Skepta hlaut verðlaunin fyrir
plötuna sína Konnichiwa og er það
í annað sinn sem grime-tónlistar-
maður fær þessi eftirsóttu verðlaun.
Árið 2003 fékk Dizzee Rascal verð-
launin fyrir plötuna sína Boy in da
Corner.
Grime hefur verið að rísa í vin-
sældum en þessi tónlistarstefna
varð til í austurhluta London fyrir
aðeins um áratug. Það að grime-
plata hljóti Mercury-verðlaunin er
afar táknrænt fyrir þennan upp-
gang tónlistarstefnunnar sem má
nú heyra á stærstu útvarpsstöðvum
Bretlands sem og annars staðar í
heiminum.
Skepta þakkaði meðal annars
inter netinu í sigurræðu sinni og
talaði um áhrif þess við að koma
óþekktum en hæfileikaríkum tón-
listarmönnum á framfæri. Jarvis
Cocker afhenti Skepta verðlaunin
og sagði við það tækifæri að ef
David heitinn Bowie væri að fylgjast
með athöfninni að ofan væri hann
alveg áreiðanlega sammála því að
verðlaunin ættu að ganga til Skepta,
enda var David Bowie alla sína tíð
mikill tónlistaraðdáandi og áhuga-
samur um allt nýtt í heimi tónlistar.
Ásamt því að taka við verðlauna-
grip fékk Skepta 25.000 pund í sinn
hlut eða sem nemur um 4 millj-
ónum króna. Ekki slæmt það. – sþh
Skepta hlýtur
Mercury-verðlaunin
Brynjar er duglegur
að sýna fylgjendum
sínum förðunar-
vörurnar sínar og
hendir reglulega í
förðunarmyndbönd
á Snapchat.
FréttaBlaðið/anton
Skepta með Mercury-verðlaunin eftirsóttu.
segja fólki frá upplifunum sínum
og er óhræddur við að farða sig áður
en hann fer út. „Ég hef fengið skila-
boð frá fólki sem sagði að ég hafi
hjálpað því að koma út úr skápnum.
Svo eru líka strákar sem hafa sent
mér að þeir hafi byrjað að þora að
mála sig út af mér. Mér líður svo vel
að heyra það og það sýnir bara að
það er betra að vera maður sjálfur
í staðinn fyrir að vera alltaf að
þykjast. Ég hlusta ekki á neikvæðu
raddirnar því ég veit að það eru fleiri
sem standa með mér heldur en eru
á móti mér.“
Brynjar leyfir fylgjendum sínum
reglulega að fylgjast með sér setja á
sig förðun og þar notar hann ýmsar
skemmtilegar vörur sem hann hefur
eignast á seinustu mánuðum. „Ég
elska make up og mundi helst vilja
vinna við þetta. Mér finnst ég þurfi
að læra meira en ég er enn þá bara
byrjandi. Uppáhaldsförðunarvör-
urnar mínar eru bökunarvörur en
þær gefa á húðinni betri áferð áður
en ég hefst handa. Vinkonur mínar
koma oft í heimsókn og við prófum
okkur áfram.“
Þrátt fyrir að Brynjar sé orðinn
þekkt nafn hjá ungu kynslóðinni
og eigi sér marga aðdáendur reynir
hann alltaf að svara öllum sem
senda honum skilaboð og fylgist vel
með öðrum Snapchat-notendum.
„Ég fæ mjög mikið af skilaboðum
sem er ótrúlega gaman en stundum
er það svo mikið að ég næ ekki allt-
af að svara öllum, en ég reyni mitt
besta. Það er til svo ótrúlega mikið
af skemmtilegum snöppurum en
ef ég þyrfti að nefna þrjá þá eru
það notendurnir hinseginleik-
inn, sigrun sigurpals og gsortveit-
makeup.“ – gj
1 7 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r60 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð
1
7
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:3
1
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
9
D
-8
3
8
4
1
A
9
D
-8
2
4
8
1
A
9
D
-8
1
0
C
1
A
9
D
-7
F
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
0
4
s
_
1
6
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K