Fréttablaðið - 03.09.2016, Page 2

Fréttablaðið - 03.09.2016, Page 2
VITA | Skógarhlíð | Sími | VITA.IS Verð frá 60.900 kr. Á mann m.v. 4 í íbúð með 1 svefnherbergi á Gerona Mare. Verð frá: 89.900 kr. á mann m.v. 2 í íbúð. 2 fyrir 1 á flugsætum í pakka. Krít 8. sept. 11 nætur Ljósin kveikt Þessir harðduglegu menn unnu að því að setja saman sviðið fyrir tónleika kanadíska söngvarans Justins Bieber. Tvennir tónleikar verða haldnir í Kórnum í Kópavogi þann 8. og 9. september og marka þeir upphaf Evrópuhluta tónleikaferðalags Biebers. Fréttablaðið/anton brink Stjórnmál Vaxandi þrýstingur er á Sigurð Inga Jóhannsson, forsætis- ráðherra og varaformann Fram- sóknarflokksins, að bjóða sig fram til formanns á flokksþingi sem fara mun fram fyrir kosningarnar 29. október. Heimildarmaður úr Framsóknar- flokknum sem Fréttablaðið talaði við segist skynja vaxandi þrýsting á Sigurð Inga úr flokknum, enda talar Sigurður Ingi á öðrum nótum nú en hann hefði áður gert. Heimildar- maðurinn sagði að Eygló Harðar- dóttir, ritari flokksins, myndi að öllum líkindum styðja Sigurð Inga gegn Sigmundi ef hann byði sig fram. Eygló svaraði ekki skilaboðum blaðsins þegar reynt var að hafa samband við hana. Á Fundi fólksins, sem fram fór í gær, var Sigurður Ingi spurður út í mögulegt formannsframboð á komandi flokksþingi. Hann sagðist aldrei hafa útilokað eitt né neitt. „Ég hef sagt að ég muni ekki bjóða mig fram gegn sitjandi formanni en ég sagði það jafnframt að ég hef tekið að mér öll þau verkefni sem flokkur- inn hefur falið mér.“ Sigurður Ingi vildi ekki svara spurningum blaðamanns um það hvort Sigmundur Davíð yrði beðinn um að hætta við formannsframboð. „Okkar flokkur hefur þær aðferðir að við erum ekki að skylmast í fjöl- miðlum. Í sumum flokkum hafa menn gengið svolítið langt í því að ráðast á forystu flokksins. Það gerum við ekki í Framsóknarflokkn- um. Við bara fjöllum um þetta á okkar vettvangi og það munum við gera,“ sagði Sigurður Ingi. Höskuldur Þórhallsson, þingmað- ur Framsóknarflokksins í Norðaust- urkjördæmi, ritaði flokksmönnum bréf í vikunni þar sem hann sagðist hafa hug á að bjóða sig fram gegn Sigmundi sem oddviti kjördæmis- ins. Einnig hvatti hann Sigurð Inga forsætisráðherra til að gefa kost á sér sem formaður flokksins. Líneik Anna Sævarsdóttir, þing- maður Framsóknarflokksins í sama kjördæmi, gefur kost á sér í 1. til 3. sæti. Þá hefur fréttavefur Stundarinnar greint frá því að þing- maðurinn Þórunn Egilsdóttir gefi líka kost á sér í 1. sætið í þessu sama kjördæmi. jonhakon@frettabladid.is Aukinn þrýstingur á Sigurð Inga í framboð Þrýst er á Sigurð Inga Jóhannsson forsætisráðherra að bjóða sig fram til for- manns Framsóknarflokksins. Útilokar ekki framboð. Sigmundur Davíð Gunn- laugsson nýtur ekki óskoraðs trausts sem oddviti flokksins í kjördæmi sínu. Sigurður ingi Jóhannsson tók við embætti forsætisráðherra í apríl eftir að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði af sér embætti. Fréttablaðið/Ernir Veður Hæg austlæg átt, víðast hvar í dag. Skýjað með köflum eða bjartviðri, en skúrir á stöku stað, einkum sunnan- og vestanlands síðdegis. Hiti 8 til 14 stig. Sjá Síðu 44 HúSnæðiSmál Það er mat ASÍ að skattfrjáls nýting séreignarsparn- aðar til kaupa á fyrstu íbúð gagnist í bráð fyrst og fremst þeim sem eiga eigið fé og hafa greiðslugetu til þess að standast greiðslumat hjá fjár- málastofnun. Aðgerðin gagnist hins vegar lítið þeim sem eru í mestum vanda á húsnæðismarkaði. Þetta kemur fram í umsögn AlÞýðusambandsins um lagafrum- varp um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð. Að mati ASÍ felast lausnir í húsnæðismálum fyrir ungt fólk og tekjulág heimili í því að ráðast að rót vandans, sem eru háir vextir, gallað húsnæðislánakerfi og skortur á hagkvæmu leiguhúsnæði. Því sé brýnt að forgangsraða í stuðning og uppbyggingu á leigu- íbúðakerfinu sem gæfi ungu fólki tækifæri á öruggu húsnæði á við- ráðanlegum kjörum. – sa ASÍ gagnrýnir frumvarp um húsnæðiskaup Akureyri Bæjarráð Akureyrar hefur ákveðið að veita Menningarfélagi Akureyrar (MAk) 75 milljóna króna fyrirframgreiðslu vegna slæmrar fjárhagsstöðu félagsins. Er slæm fjárhagsstaða rakin til ófullnægjandi bókhaldsvinnu og óreiðu í fjármálum sem voru í höndum Gunnars I. Gunnsteins- sonar, fyrrverandi framkvæmda- stjóra MAk, sem sagði upp í nóv- ember. Verður fjárhæðin dregin af framlögum bæjarins næstu tvö rekstrartímabil. „Staðan þegar ég kom inn í félag- ið var þröng, nokkurs konar óvissu- ástand, og erfið fyrir starfsfólkið þannig að ég leitaði fljótlega til bæj- arins eftir ráðleggingum og aðstoð,“ segir Þuríður Helga Kristjánsdóttir, núverandi framkvæmdastjóri MAk. „Bærinn veitti bæði stuðning og ráð- gjöf sem endar núna í því að bærinn veitir okkur fyrirframgreiðslu.“ Í lok nóvember síðastliðins sagði Gunnar I. Gunnsteinsson upp störf- um af persónulegum ástæðum, eins og sagt var í yfirlýsingu frá félaginu. Nú hefur komið á daginn að fjár- málaóreiða var ein stærsta ástæða þess að Gunnar hætti. Þuríður Helga segir það hafa tekið um tvo mánuði að ná yfirsýn yfir rekstur félagsins og hafði KPMG aðstoðað við endurskoðun til að hægt væri að átta sig á stöðunni. „Við vonumst eftir því núna að vinna okkur úr þessari stöðu. Það eru allir starfsmenn boðnir og búnir að vinna að þessu verkefni,“ segir Þuríður Helga. – sa Óreiða í fjármálum olli tapinu Þuríður Helga kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Mak 3 . S e p t e m b e r 2 0 1 6 l A u G A r D A G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð 0 3 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 1 0 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 7 4 -0 4 7 C 1 A 7 4 -0 3 4 0 1 A 7 4 -0 2 0 4 1 A 7 4 -0 0 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 1 0 4 s _ 2 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.