Fréttablaðið - 03.09.2016, Side 4
Sigurður Ingi Jóhannsson
forsætisráðherra
sagði boðaða
1,5 milljarða
króna
bónus-
greiðslu
til starfs-
manna
Kaupþings
í raun og veru
mjög taktlausa
og jafnvel siðlausa. Forsætisráð-
herrann sagði Íslendinga illa þola
óréttláta skiptingu.
Kári Stefánsson,
forstjóri
Íslenskrar
erfðagrein-
ingar,
kvaðst
vera að
safna liði
sem mun
fylgjast grannt
með því hvernig
núverandi stjórnarflokkar sinna
heilbrigðiskerfinu fyrir kosningar.
Ef ekki verði gert raunverulegt átak
muni lið hans gera allt til þess að
sannfæra kjósendur um að hunsa
flokkana í kosningum.
Guðný Hrund
Karlsdóttir,
sveitarstjóri í
Húnaþingi
vestra,
segir
mælinn
fullan hvað
varðar við-
bragðstíma
lögreglunnar í
neyðartilvikum. Lögreglan var
í tvær klukkustundir að koma á
staðinn þegar maður drukknaði í
bíl í höfninni á Hvammstanga þar
sem mannskapurinn var á
skotæfingu.
Þrjú í fréttum
Bónusgreiðsla,
bið eftir löggu
og fíkniefni
Vikan 28.08.16-03.09.16
121
tilkynning um kynferðisbrot hefur
borist lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu það sem af er ári. Tilkynnt var
um 27 kynferðisbrot í júlí.
30
milljörðum
króna nam
velta Vín-
búðanna
í fyrra.
Þar af
voru
tæpir 10
milljarð-
ar af sölu
tóbaks.
16
stiga sigur á Sviss,
88-72, unnu
strákarnir í íslenska
landsliðinu í körfu-
bolta í undan-
keppni EM 2017.
1,5
milljarða bónus-
greiðsla til starfs-
manna Kaupþings
var samþykkt.
40-50
tilkynningar um að reynt hafi
verið að tæla barn upp í bíl
berast lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu árlega.
48%
aukning hefur orðið í sölu lúxusbíla á
árinu miðað við sama tímabil í fyrra.
1.800
tonn af lambakjöti eru eftir í frysti frá
síðustu slátrun haustið 2015. 10.000
tonn eru framleidd árlega. 3.000 tonn
eru flutt út á hverju ári.
Danmörk Íbúar fríríkisins Krist-
janíu í Danmörku rifu í gær kanna-
bissölubása á Pusher-stræti, göngu-
götu sem fræg er fyrir opna sölu
kannabisafurða. Lögregla kallaði á
fimmtudag eftir slíkum aðgerðum í
kjölfar skotárásar á strætinu. 25 ára
bosnískættaður Dani skaut þá tvo
lögreglumenn og einn ferðamann.
Árásarmaðurinn lést af sárum sínum
í gær en eftir að hann flúði vettvang
hafði lögregla upp á honum, til skot-
hríðar kom og varð árásarmaðurinn
fyrir skoti. Annar lögreglumannanna
liggur enn á gjörgæslu.
Danska ríkissjónvarpið (DR) sýndi
frá því þegar um þúsund íbúar Krist-
janíu mættu á Pusher-stræti með
sagir, borvélar og kúbein til þess
að taka sölubásana niður. Risenga
Manghezi, talsmaður íbúa, sagði í
samtali við DR að niðurrifið væri
mikilvægt. „Það er mikilvægt að
gera þetta í dag og hugsa til særða
lögreglumannsins. En við getum því
miður ekki tryggt að básar sem þessir
rísi ekki á ný,“ sagði Manghezi.
„Við getum ekki tryggt að básarnir
rísi ekki á ný. Til þess þörfnumst við
hjálpar frá öllum Dönum. Ef þið
styðjið Kristjaníu þá hættið þið að
kaupa kannabisið ykkar hér,“ segir
í fréttatilkynningu sem Manghezi
sendi út í gær. Þar fordæmir hann
einnig kannabismarkaðinn og segir
hann glæpsamlegan, enda er sala á
kannabisi ólögleg í Danmörku.
Hulda Mader, annar talsmaður
íbúa, sagði í viðtali við DR að mjög
fáar reglur giltu í Kristjaníu. „Ein
þeirra er engin vopn. Önnur er ekk-
ert ofbeldi. Þessi árás var kornið sem
fyllti mælinn,“ sagði Mader. „Það
voru allt of margir básar og allt of
margir utanaðkomandi seljendur
sem við þekktum ekki. Þeir voru
grímuklæddir og Kristjanía skipti þá
engu máli,“ bætti Mader við.
Talsmenn Amaq, áróðursdeildar
hryðjuverkasamtakanna sem kenna
sig við íslamskt ríki, sögðu árásar-
manninn í gær hafa verið einn af
hermönnum þeirra. Lögregla hafði
áður greint frá því að sönnunargögn
bentu til þess að maðurinn væri
fylgjandi málstað Íslamska ríkisins,
þó væri ósannað að það væri orsök
árásarinnar. thorgnyr@frettabladid.is
Kannabismarkaður Kristjaníu
rifinn niður í kjölfar skotárásar
Kannabissölubásar á Pusher-stræti í Kristjaníu voru teknir niður í gær af íbúum fríríkisins. Maður á þrítugs-
aldri skaut tvo lögreglumenn og einn ferðamann á fimmtudag og er sagður liðsmaður Íslamska ríkisins.
Talsmaður íbúa segir árásina kornið sem fyllti mælinn en ein af fáum reglum ríkisins er bann við ofbeldi.
Íbúar Kristjaníu rífa niður kannabissölubása á Pusher-stræti. NordicPhotos/AFP
45 ár frá stofnun
Fríríkið Kristjanía var stofnað árið
1971 í hjarta Kaupmannahafnar.
Borgaryfirvöld segja Kristjaníu
kommúnu innan borgarmarkanna
en lög um Kristjaníu frá árinu 1989
gefa fríríkinu nokkurt vald yfir því
hvernig málum þess er háttað.
Sala kannabisefna hefur verið
nokkuð frjálsleg í Kristjaníu í ára-
tugi en frá og með árinu 2004 hafa
áhlaup lögreglu verið tíð.
17
milljarðar króna er talin
árleg velta kannabismark-
aðar Kristjaníu.
3 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L a U G a r D a G U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
LANGTÍMALEIGA
Núna er rétta tækifærið til að gera langtímaleigusamning hjá Átak bílaleigu.
Þeir sem gera langtímasamning til 24 mánaða eða lengur fyrir 10. september
fá 30% afslátt af fyrsta mánuðinum og 10.000 kr. eldsneytisinneign hjá Olís.
Bifreiðagjöld • tryggingar • sumardekk • vetrardekk • þjónustuskoðanir
dekkjaskipti • olíuskipti • hefðbundið viðhald • 2.000 km á mánuði.
30%
30% afsláttur af
fyrsta mánuðinum
10.000 kr. inneign á
eldsneyti hjá Olís
10Þús. kr.INNIFALIÐ Í ÞJÓNUSTUNNI
Knarrarvogi 2 • 104 Reykjavík • Sími: 554 6040 • atak@atak.is • www.atak.is
Þú færð alþrif á bílnum einu sinni í mánuði
NÚNA ER RÉTTA TÆKIFÆRIÐ
0
3
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
7
4
-1
8
3
C
1
A
7
4
-1
7
0
0
1
A
7
4
-1
5
C
4
1
A
7
4
-1
4
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
0
4
s
_
2
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K