Fréttablaðið - 03.09.2016, Side 16

Fréttablaðið - 03.09.2016, Side 16
Golf Ólafía Þórunn Kristinsdóttir freistar þess nú að komast inn á bandarísku atvinnumannaröðina í golfi, LPGA, samhliða því að keppa á Evrópumótaröðinni. Ólafía Þórunn flaug í gegnum fyrsta stig úrtök- umótaraðarinnar um helgina. Ólafía tók þátt í móti í Kaliforníu ásamt tæplega 350 öðrum kylfing- um og komust 92 áfram á næsta stig mótaraðarinnar en úrtökustigin eru alls þrjú. Þeir sem komast alla leið vinna sér inn þátttökurétt á LPGA- mótaröðinni sem hefst á næsta ári. „Þetta var skemmtilegt og gekk ótrúlega vel. Ég púttaði vel og var raunar óvenjulega afslöppuð. Það var ekkert vesen á mér,“ segir Ólafía. Hún spilaði vel alla helgina og var aðeins einn af fimm kylfingum sem voru aldrei yfir pari. Hún var á sam- tals sjö höggum undir pari, þremur höggum á eftir sigurvegaranum Daniela Darquea frá Ekvador. Spila þurfti á sex höggum yfir pari til að komast áfram á næsta stig. Ólafía Þórunn á þó mjög erfiða leið fyrir höndum til að komast alla leið. Sem dæmi má nefna að á næsta stigi bætast í hópinn 150 bestu kylf- ingar Symetra-mótaraðarinnar sem er næststerkasta mótaröð Banda- ríkjanna og þeir kylfingar á LPGA- mótaröðinni sem eiga ekki öruggt sæti á næsta keppnistímabili. Áttatíu bestu kylfingarnir kom- ast á lokastigið og þá eiga enn eftir að bætast við þeir bestu kylfingar heims sem sækjast eftir að komast á LPGA-mótaröðina en eru ekki með öruggt sæti. „Til samanburðar má nefna að það eru bara tvö stig á úrtökumót- inu fyrir Evrópumótaröðina og þá komast 25 efstu inn að lokum,“ bendir Ólafía Þórunn á en hún var í þeim hópi sem komst inn á Evr- ópumótaröðina fyrir núverandi keppnistímabil. Matarkostnaður tínist saman Það hefur þó gengið erfiðlega að komast inn á mót á Evrópumóta- röðinni vegna mikillar aðsóknar kylfinga sem hafa rétt á að keppa á mótunum. Ólafía hefur tekið þátt í tveimur og eftir erfitt fyrsta mót náði hún frábærum árangri á móti í Plzen í Tékklandi þar sem hún hafn- aði í 16. sæti og fékk fyrir það rúma hálfa milljón króna í verðlaunafé. „Ég hef skráð mig inn á öll mót og samkvæmt öllu hefði ég átt að komast inn á fleiri. En það hefur ekki gengið eftir. Ég er þó komin inn á tvö mót í september sem eru frábærar fréttir,“ segir hún. Mótin sem Ólafía Þórunn keppir á fara fram í Þýskalandi og á Spáni en það fyrra hefst á fimmtudag. Annað stig í úrtökumótaröð LPGA fer svo fram í Flórída í síðari hluta októbermánaðar. Ólafía Þórunn er í hópi þeirra íslensku kylfinga sem njóta góðs af því að fá framlag úr Forskoti, styrktarsjóði kylfinga á Íslandi, sem sér um að greiða mótsgjöld, ferða- kostnað og gistingu. „Ég sé um allan mat sjálf og það getur tínst saman. Ég borga líka kylfubera og hann fær bónus ef mér gengur vel. En það er mjög gott að geta verið í þessu án þess að þurfa að hugsa um peninginn og geta bara einbeitt mér að golfinu,“ segir hún. Ólafía segir enn fremur að hún hafi lært mikið af fyrsta ári sínu sem keppandi á Evrópumótaröðinni enda sýndi hún á Íslandsmótinu á Akureyri í sumar að hún er í frábæru formi. „Ég hef tekið framförum og hef verið að spila marga hringi undir pari. Ég skildi svo nokkur högg eftir úti á velli og því er alltaf svigrúm til bætingar.“ eirikur@frettabladid.is Ég var óvenjulega afslöppuð Ólafía Þórunn Kristinsdóttir komst í gegnum fyrsta stig úrtökumótanna fyrir bandarísku LPGA-mótaröð- ina í golfi með glans. Hún keppir næst á tveimur mótum á Evrópumótaröðinni í mánuðinum. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir vill komast inn á sterkustu mótaröð heims. Fréttablaðið/Ernir Ég sé um allan mat sjálf og það getur tínst saman. Ég borga líka kylfubera og hann fær bónus ef mér gengur vel. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir Undankeppni EM 2017, U-21 árs n-Írland - Ísland 0-1 0-1 Heiðar Ægisson (87.). Stjörnumaðurinn Heiðar Ægisson tryggði U-21 árs liðinu gríðarlega mikilvægan sigur í Belfast. Með sigrinum komst Ísland á topp riðils 3 en liðið er í góðri stöðu til að tryggja sér sæti í lokakeppninni í Póllandi á næsta ári. Nýjast Meistarakeppni HSÍ kvenna Grótta - Stjarnan 32-31 Tvær framlengingar þurfti til að knýja fram úrslit í þessum árlega leik Íslands- og bikarmeistaranna. Keppni í Olís-deild kvenna hefst um næstu helgi. Þar mætir Grótta ÍBV og Stjarnan fær Hauka í heimsókn. Í dag 08.55 F1: Æfing - Ítalía Sport 11.50 F1: tímataka - Ítalía Sport 18.30 Deutsche bank Ch. Golfst. inkasso-deildin: 14.00 Grindavík - Fjarðab. Grindav. 14.00 leiknir F. - Þór Fjarðab.höll 16.00 Ka - Selfoss Akureyrarvöllur Á morgun 11.30 F1: Kappakstur - Ítalía Sport 17.00 Deutsche bank Ch. Golfst. Undankeppni HM: 16.00 Slóvakía - England Sport 16.00 Danmörk - armenía Sport 2 18.45 noregur - Þýskaland Sport 18.45 tékkland - n-Írland Sport 2 18.45 Malta - Skotland Sport 3 LEiðin Á EM HELDUr ÁFrAM Íslenska karlalandsliðið í körfu- bolta mætir Kýpur í öðrum leik sínum í undankeppni EM 2017 í dag. Strákarnir eru með tvö stig í A-riðli eftir góðan sigur, 88-72, á Svisslendingum á miðvikudaginn. Sama dag töpuðu Kýpverjar með 19 stiga mun, 46-65, fyrir Belgum á heimavelli. Þetta er fyrsti af þremur útileikjum Íslands í röð. Á miðvikudaginn leika íslensku strákarnir við Belga og eftir viku mæta þeir Sviss öðru sinni. Ísland og Kýpur mættust síðast á Smáþjóða- leikunum í Lúxem- borg fyrir þremur árum. Þá steinlá íslenska liðið, 81-52. KOLBEinn MEiDDUr Kolbeinn Sigþórsson leikur ekki með íslenska fótboltalandsliðinu þegar það mætir því úkraínska í undankeppni HM 2018 á mánudaginn. Kolbeinn er meiddur á hné og ákveðið var að tefla honum ekki fram í leiknum í Kænugarði. Kolbeinn snýr nú aftur til Tyrklands þar sem hann fer í nánari skoðun og meðferð hjá læknateymi Galatasary sem hann gekk til liðs við á dögunum. Enginn leikmaður var kallaður inn í íslenska hópinn í stað Kolbeins. Skrifstofa eigna og atvinnuþróunar ı s. 411 11 11 Ráðhús Reykjavíkur ı reykjavik.is/leiga Óskað er eftir hugmyndum að starfsemi og tilboðum í leigu garðskálans að Fríkikjuvegi 11b. Við val á væntanlegum leigutaka verður horft til þess að starfsemin gæði miðborgina meira lífi. Vakin er athygli á að garðskálinn uppfyllir ekki heilbrigðiskröfur um hefðbundna matsölu. Garðskálinn er til sýnis miðvikudaginn 7. sept., kl. 11. Tilboðum með upplýsingum um fyrirhugaða starfsemi og opnunartíma skal skila til þjónustuvers Reykjavíkurborgar Borgartúni 12 - 14 fyrir kl. 16.00, þriðjudaginn 13. september 2016. Nánari upplýsingar á reykjavik.is/leiga Hugmyndir fyrir garðskála að Fríkirkjuvegi 11b Hugmyndaleit R E Y K J A V Í K U R B O R G 3 . S E p t E M b E r 2 0 1 6 l A U G A r D A G U r16 S p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð sport 0 3 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 1 0 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 6 K _ n ýt t. p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 7 3 -F F 8 C 1 A 7 3 -F E 5 0 1 A 7 3 -F D 1 4 1 A 7 3 -F B D 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 0 4 s _ 2 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.