Fréttablaðið - 03.09.2016, Page 24
hann og það kom í minn hlut að
fara með hann heim. Hann bjó hjá
pabba sínum og ég ætla að tala við
hann. En það er enginn heima. Það er
miði á borðinu og á honum stendur:
Skrapp á Akureyri og kem á mánu-
dag. Strákurinn opnar ísskápinn og
hann er tómur. Ég gaf honum fimm
hundruð kall. Hann varð vinur minn,
þessi strákur,“ segir Hörður hryggur.
Sársauki á bak við hvert mál
„Svo var það eitt sinn að á afmörkuðu
svæði var ítrekað verið að kveikja í.
Það skildi enginn í þessu en þetta var
bara um helgar. Það endar með því að
lögreglan finnur einn tólf ára gamlan
við þessa iðju. Af hverju? Hann var
einn á heimilinu með foreldrum
sínum, þau voru á fylleríi um helgar,
hann forðaði sér út og þau tóku ekki
eftir því að hann var farinn. Lausnin
var að þau hættu þessum fylleríum,“
segir Hörður og segir oft gríðarlegan
sársauka á bak við eitt stakt vanda-
Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur hefur rannsakað bakgrunn þeirra sem eru
vistaðir í fangelsi. Fréttablaðið/ValGarður
Helgi Gunnlaugsson afbrota-fræðingur tekur undir með Herði. Afbrot ungmenna
verði aldrei leyst eingöngu með
refsingum.
„Upptökuheimili ungmenna
heyra nú nánast sögunni til og
hertar refsingar hvorki fækka
brotum né skila ungmennum á
farsælan hátt út í samfélagið að
nýju. Brot barnanna eru oft einsog
ákall á athygli og hjálp enda er þessi
hópur yfirleitt afskiptur og van-
ræktur,“ segir Helgi og segir miklu
skipta að vinna með síbrotaungl-
ingum í þeirra nánasta umhverfi.
„Í tengslum við bakland þeirra sem
yfirleitt er veikt,“ bendir Helgi á og
segir margvíslega örðugleika eins
og ofvirkni eða lesblindu koma iðu-
lega í ljós og taka verði á þeim um
leið og stuðningur við fjölskylduna
er efldur.
Hækkun sakhæfisaldurs
Tíð búsetuskipti einkenni oft
síbrota unglinga með tilheyrandi
rofi á félagstengslum. „Við ættum
alvarlega að íhuga hækkun sak-
hæfisaldurs í 18 ár við endurskoð-
un kerfisins. Ákærumeðferð barns
ýtir jafnvel undir ný brot eins og
rannsóknir hafa sýnt og spurning
hvort önnur úrræði eigi ekki að
vera meira ráðandi. Sáttamiðlun
milli gerenda og þolenda gæti í
þessu samhengi skipað hærri sess
í málefnum ungmenna. Að ung-
mennum á glapstigum sé gerð grein
fyrir afleiðingum brota sinna fyrir
þolendur og samfélagið allt um leið
og þau fá tækifæri til að bæta fyrir
brotið og sjá raunhæfa möguleika
að tengjast því á uppbyggilegan
hátt í framtíðinni.“
Fortíðin blóraböggull
Hörður nefnir að þeir sem nái aldr-
ei að snúa við blaðinu séu þeir sem
ná ekki að sættast við bernskuna.
Helgi segir rannsóknir sínar í fang-
elsum hafi leitt í ljós að margir
síbrotamanna beri þungar klyfjar
úr bernsku sem þeir telji rótina að
vanda sínum. „Umkomuleysi, van-
ræksla og ofbeldi í bland við mikla
óreglu á æskuheimilinu eru algeng
stef. Um leið og þeir fá aðstoð til að
takast á við þennan bagga úr æsku
sinni til að lifa í sátt við hann verða
þeir einnig að átta sig á að for-
tíðin má aldrei verða blórabögg-
ull eða réttlæting á nýjum brotum.
Ábyrgðar kennd á eigin lífi verður
að rækta og efla,“ segir Helgi.
brýnt að efla menntun
Hörður segir lögreglu í góðri
aðstöðu til að beita sér og Helgi
tekur undir það og einnig þá
afstöðu Harðar að stundum þurfi
afskiptin ekki að vera mikil af
hálfu lögreglu til að beina börnum
á réttar brautir. „Nærvera lögreglu
er mikilvæg þegar hlutir fara úr
böndum til að skakka leikinn,
t.d. á heimilinu eða þegar brotið
er á borgaranum. Brýnt er að
menntun lögregluþjóna verði efld
og flutningur námsins á háskóla-
stig er jákvæður til að gera lög-
reglunni betur kleift að takast á
við erfið og viðkvæm mál í návígi.
Fleiri aðilar verða þó að koma að
málinu og skiptir miklu að sam-
starf við ólíka aðila einsog félags-
þjónustu og barnavernd sé heild-
stætt og markvisst í framhaldinu
þegar börn undir 18 ára eiga í hlut.
Mikil afskipti réttarvörsluaðila
af börnum í vanda eru ekki alltaf
heppileg,“ segir Helgi.
Brot barnanna ákall á hjálp
Hörður um áfengisneyslu á heimilum fólks: „Þar er fólk sem líður illa, fast í aðstæðum sem það ræður ekki við. Þar erum við að eyðileggja æskuna. Fréttablaðið/GVa
mál. „Þetta hefði getað orðið einhver
listi af vandamálum. Vandamálið
var eitt par. Þau bara sátu og sulluðu.
Hann var bara með eldspýturnar og
gerði eitthvað af vanlíðan.“
Hann nefnir að það séu ekki mörg
ungmenni sem þurfi að gæta að. „Fæst
lenda í vandræðum og við eigum að
láta þau í friði. Tæplega fjörutíu þús-
und eru á unglingsaldri. Þau sem eru
í vandræðum eru kannski hundrað,
þar af eru kannski svona fjörutíu eða
fimmtíu í verulegum vandræðum.
Á bak við hvert þessara ungmenna
er fjölskylda, heimili. Og þar liggur
vandinn.“
Stundum þarf lítið inngrip og hann
nefnir annað dæmi um drengi sem
voru í vandræðum en þó ekki veru-
legum. „Á svipuðum slóðum og við
fundum strákinn sem var að skera
og skemma voru tveir strákar í því að
slást og ráðast á aðra. Það vissu allir
hverjir þetta voru. Það var bara farið
með þá á boxæfingu, þeir hafa ekki
sést síðan. Þeir fóru að æfa íþróttir.“
Hann þreytist ekki á að nefna að
áfengisneyslan hafi mikil og eyði-
leggjandi áhrif á barnæskuna. „Það
er verið að kenna dópinu um allt og
áfengið fær einhvern veginn að flæða
um allt. Það líður ekki hálfur sólar-
hringur hér án þess að við sinnum
einhverju sem er bein afleiðing
af áfengisneyslu. Mjög oft fer hún
fram á versta stað, inni á heimilum
fólks. Þar er fólk sem líður illa, fast í
aðstæðum sem það ræður ekki við.
Þar erum við að eyðileggja æskuna,“
segir Hörður. „Sem betur fer eru börn
og unglingar hér á landi í góðum
málum. Við höfum því reynt að beina
athygli okkar og félagsmálayfirvalda
að þeim örfáu sem eru í vandræðum.
Við leitumst þannig við að hafa áhrif
á hegðun einstaklingsins sem þarf á
leiðbeiningu að halda í stað þess að
messa yfir öllum árganginum. Lög-
reglan er í ágætri aðstöðu til að beita
sér og á að gera það.“
börn teljast sakhæf
þegar þau verða 15 ára
gömul, þ.e. við lok 15
ára afmælisdags. frá
15 ára aldri bera öll
börn refsiábyrgð á
afbrotum sínum, óháð
þroska hvers og eins.
þetta hefði getað
orðið einhver listi af
vandamálum. vanda-
málið var eitt par.
þau bara sátu og sull-
uðu. hann var bara með
eldspýturnar og gerði
eitthvað af vanlíðan.
↣
3 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r24 h e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
0
3
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
7
4
-4
9
9
C
1
A
7
4
-4
8
6
0
1
A
7
4
-4
7
2
4
1
A
7
4
-4
5
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
0
4
s
_
2
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K