Fréttablaðið - 03.09.2016, Side 30
Myndatexti Nequaes tibusa aditatem velliquia volorum serum nihilit, tecati occaerum vellis volor sum liciendem. Nem que
occus, simporem faccae parchiliquos niscienis et aut es quibusamus, quament volupta tiusam dolupta deri consed molupta
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
ÚtgefaNdi: 365 Miðlar | ÁbyrgðarMaður: Svanur Valgeirsson
uMsjóNarMeNN efNis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir,
liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367
Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358
Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 söluMeNN: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 |
Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is,
s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
starri freyr
jónsson
starri@365.is
garðar gunnlaugsson, knattspyrnumaður með Ía og nýráðinn hótelstjóri, sér fram á spennandi tíma. MyNd/aNtON
Knattspyrnumaðurinn Garðar
Gunnlaugsson stendur á tímamót
um um þessar mundir. Í vor út
skrifaðist hann með hæstu eink
unn úr námi í hótelstjórnun og
veitingahúsarekstri við Háskól
ann í Reykjavík en námið fer fram í
samstarfi við einn af virtustu skól
um heims í hótel og veitingahúsa
rekstri, César Ritz Colleges í Sviss.
Nýlega tók hann svo við stöðu hótel
stjóra fjögurra stjörnu hótels sem
er í byggingu í Borgarnesi og verð
ur opnað á næsta ári. Það eru því
spennandi tímar framundan en
fyrst á dagskrá er að klára tíma
bilið með Skagamönnum og næla í
gullskóinn sem veittur er marka
hæsta leikmanni Pepsideildar.
Sem atvinnumaður í knatt
spyrnu bjó Garðar í fimm löndum
um nokkurra ára skeið. Fyrir vikið
hefur líf hans einkennst mikið af
ferðalögum og hótelupplifunum
til bæði skemmri og lengri tíma
að eigin sögn. „Ég lék í Skotlandi,
Svíþjóð, Búlgaríu, Austurríki og
Þýskalandi fyrir utan auðvitað Ís
land. Það má því segja að ég hafi
verið talsvert heppinn að hafa
fengið tækifæri til að ferðast svo
víða. Auk þess hefur hver flutning
ur milli landa haft í för með sér
a.m.k. eins mánaðar búsetu á hót
eli áður en ég hef náð að koma mér
formlega fyrir. Það má því segja
að ég þekki hótelgeirann út og inn
sem neytandi og það í fimm mis
munandi löndum og menningar
heimum.“
næstum einkakennsla
Garðar stundaði nám í viðskipta
fræði við Háskólann á Bifröst
um nokkurra ára skeið en sá ekki
fram á að klára námið. „Þá sá ég
kynningu á náminu í HR. Mér
leist mjög vel á það enda er ferða
mannabransinn að springa út
hérna og er líka ört vaxandi alls
staðar í heiminum. Ég tala þýsku,
ensku og sænsku nokkuð vel og
taldi að það myndi klárlega nýt
ast mér í þessu starfi. Það er mjög
mikil eftirspurn eftir faglærðu
fólki í ferðamannabransanum. Til
að mynda spáði greiningardeild Ís
landsbanka að það þyrfti að flytja
inn 5.000 starfsmenn til að anna
eftirspurn á næstu árum. Þann
ig að framtíðarmöguleikarnir eru
gríðarlegir.“
Námið var mjög skemmtilegt og
spennandi þar sem aðkoma César
Ritz Colleges skipti miklu máli að
sögn Garðars. „Við fórum m.a. í
vettvangsheimsóknir til margra
virtra ferðaþjónustufyrirtækja,
hótela og veitingastaða. Þær gefa
manni strax greiða leið inn í at
vinnulífið og stækka tengslanet
ið til muna.“
Hann segir helsta kost náms
ins hafa verið hversu fámennur
hópurinn var en í honum voru ein
ungis ellefu nemendur og því fékk
hver og einn nánast einkakennslu.
markaskorari í nýju hlutverki
Knattspyrnumaðurinn Garðar Gunnlaugsson útskrifaðist með hæstu einkunn úr námi í hótelstjórnun og
veitingahúsarekstri í vor. Nýlega tók hann við stöðu hótelstjóra fjögurra stjörnu hótels sem verið er að byggja í
Borgarnesi. Hann spáir mikilli fjölgun ferðamanna á Vesturlandi næstu árin og hlakkar til krefjandi verkefna.
„Hópurinn var mjög samheld
inn og skemmtilegur. Það mynd
uðust góð tengsl innan hans sem
munu eflaust haldast út ævina.
Við tölum enn reglulega saman og
það er mjög gaman að fylgjast með
þeim sem fóru í framhaldsnámið
úti í Sviss. Sjálfur er ég að klára
BS í viðskiptafræði, með áherslu
á ferðaþjónustu, frá Bifröst sem
mun veita mér aðgang að því fram
haldsnámi. Ég ætla þó að einbeita
mér 100% að nýja hótelinu um
ófyrirséða framtíð.“
Fjölgun utan reykjavíkur
Aðdragandinn að nýja starfinu var
skammur en Garðar hefur undan
farna mánuði aflað sér reynslu
á Oddsson Ho(s)teli í vesturbæ
Reykjavíkur. Fyrir stuttu fékk
hann símtal frá manni sem vildi
fá hann til að reka fyrir sig hótel
sem hann væri að byggja í Borg
arnesi. „Eftir nokkra fundi sáum
við að þetta gæti orðið mjög far
sælt samstarf og ákveðið var að ég
tæki til starfa strax. Hótelið verð
ur vonandi opnað seinni hluta sum
ars 2017. Núna er öll undirbúnings
vinna í gangi og er ég að leita til
boða frá ýmsum aðilum í allt sem
tengist hótelinu sem verður fjög
urra stjörnu hótel á fimm hæðum.“
Ferðamannastraumurinn hefur
vaxið mjög mikið undanfarin ár og
það eru virkilega spennandi tímar
framundan. „Vöxturinn á þó klár
lega eftir að hægja á sér þegar
fram líða stundir. Hins vegar sé
ég fram á fjölgun ferðamanna utan
Reykjavíkur enda borgin nú þegar
þanin og maður heyrir af óánægju
meðal bæði borgarbúa og ferða
manna.“
vesturland sækir á
Hann segir Vesturlandið ört vax
andi sem ferðamannastað enda
hefur landshlutinn upp á margt að
bjóða, bæði tengt fallegri náttúru
og sögunni. „Ég spái því að Vestur
land eigi eftir að taka til sín stór
an hluta ferðamanna næstu árin.
Sérstaklega þar sem bæjarfélögin
eru að verða meðvitaðri um þær
miklu tekjur sem ferðaþjónust
an er að skapa, bæði í beinum og
óbeinum tekjum. Vitinn á Akra
nesi er t.d. búinn fá til sín þúsund
ir ferðamanna það sem af er árinu.
Nýverið samþykkti bæjarstjórnin
að hafa Vitann opinn allt árið og
að upplýsingamiðstöð ferðamanna
yrði færð þangað. Þetta er dæmi
um jákvæða breytingu á hugar
fari bæjarfélaga gagnvart ferða
mannaiðnaðinum.“
Hann segir þó hótelbransann á
ákveðnum krossgötum um þessar
mundir. „Hann hefur verið eins í
marga áratugi en með nýrri tækni
og breyttri kauphegðun neyt
enda verða hótelstjórar að laga
sig að breyttum aðstæðum, sér
staklega ef hægja fer á straumi
ferðamanna. Neytendur eru hvat
vísari en áður og núna skiptir oft
meira máli að fá góða umfjöllun á
t.d. TripAdvisor heldur en að hafa
stjörnugjöf á bak við sig.“
Frábær umgjörð
Garðar er markahæstur í Pepsi
deild karla þegar fimm umferðir
eru eftir. Þrátt fyrir að vera orð
inn 33 ára gamall sýnir hann engin
ellimerki en tímabilið er hans
besta að eigin sögn síðan hann lék
í Svíþjóð árið 2007. „Eftir brösuga
byrjun höfum við unnið síðustu 8
af 10 leikjum okkar. Öll umgjörðin
í kringum liðið er frábær og þjálf
arateymið, þ.m.t. sjúkraþjálfarar
og sálfræðingur, á stóran þátt í ár
angri okkar.“
Hann segir leikmannahópinn og
stemninguna í klefanum einstaka
og að hún eigi stærstan þátt í gengi
liðsins og um leið hversu vel honum
sjálfum gengur. „Það er alveg sama
hvað bjátar á, gott eða slæmt, þá er
alltaf jafn gott að koma í klefann.
Það eru allir vinir í liðinu enda er
hópurinn samansettur mestmegnis
af heimamönnum og svo frábærum
aðkomumönnum.“
Framundan er róleg helgi sem
hófst í gærkvöldi með liðshitt
ingi hjá félögum hans í ÍA. „Helg
in verður að öðru leyti mjög róleg
en þó fer ég til Keflavíkur með
krakkana mína þar sem við fylgj
umst með Hektori, syni mínum,
keppa í úrslitakeppni Íslandsmóts
ins í 5. flokki.“
Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind – Levi ś Glerártorgi
511
SLIM
FRÁ KR.
13.990
3 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r2 F ó L k ∙ k y n n i n G A r b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G A r b L A ð ∙ h e L G i n
0
3
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
7
4
-1
D
2
C
1
A
7
4
-1
B
F
0
1
A
7
4
-1
A
B
4
1
A
7
4
-1
9
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
2
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K