Fréttablaðið - 03.09.2016, Síða 34
Hugmyndin að því að endurnýja
heitin að víkingasið vaknaði hjá
þeim Thomasi og Ragnheiði þegar
þau sóttu víkingahátíð nærri Ár
ósum í Danmörku á síðasta ári.
„Þegar við áttuðum okkur á að
29. júlí árið 2016 myndum við eiga
tíu ára brúðkaupsafmæli á vík
ingagátíðinni í Moesgaard, fannst
okkur tilvalið og skemmtilegt að
láta gefa okkur saman að heiðnum
sið, en þegar við giftum okkur á
sínum tíma var það hjá sýslumann
inum í Reykjavík,“ segir Thomas.
Hann segir undirbúninginn í raun
ekki hafa verið mikinn fyrir utan
saumaskapinn en hann saumaði
sjálfur öll brúðkaupsklæðin á sig
og konu sína, auk þess sem dóttir
þeirra, Karen, fékk ný klæði.
„Þetta var töluvert verk,“ viður
kennir Thomas en hann hefur allt
af haft gaman af því að skapa með
höndunum. „Þá skiptir ekki máli
hvort það er að sauma, smíða eða
eitthvað annað,“ segir Thomas
sem saumar flest fötin í höndun
um. „Stundum svindla ég og nota
saumavél, en ullina þarf alltaf að
handsauma,“ segir hann glettinn.
Útkoman var stórglæsileg eins
og sjá má á myndunum. Ragn
heiður var í fallegum bláum hörk
jól, með hvíta ullarsvuntu með
spjaldborða og með fallegt skart
að víkingasið. Um hálsinn bar hún
hvítan loðfeld. „Þetta er græn
lenskur refur sem hún fékk að gjöf
frá tengdamóður minni,“ upplýsir
Thomas. Sjálfur var hann höfðing
legur í hvítum buxum, dökkblár
um kyrtli, í leðurskóm og með leð
urtösku sem hann bjó sjálfur til. Á
hausnum bar hann loðhúfu og um
hálsinn loðfeld.
Veisla að víkingasið
Athöfnin fór fram á ströndinni
á víkingahátíðinni í Moes gaard.
„Veðrið var afar fallegt og vin
kona okkar úti, Guðrún Viktoria,
sem er völva, gaf okkur saman.
Við höfðum farið yfir skipulagn
inguna með henni fyrr um sumar
ið en þegar til kom var raunveru
leikinn mun fallegri en við hefð
um getað ímyndað okkur,“ segir
Thomas.
Um þrjátíu manns voru við
staddir, þar á meðal foreldrar
og fjölskylda Thomasar frá Dan
mörku. Einnig víkingavinir þeirra
hjóna frá Íslandi, Þýskalandi og
víðar. „Síðan var efnt til veislu
að víkingasið,“ segir Thomas en
veislan var haldin í tjaldbúðum ís
lensku víkinganna á hátíðinni.
Víkingar af lífi og sál
Thomas segir víkingaáhuga sinn
hafa blundað með sér frá unga
aldri. „Við höfðum síðan í mörg ár
farið á víkingahátíðina í Hafnar
firði en árið 2010 fór ég að taka
myndir á hátíðinni fyrir Jóhannes
sem rekur Fjörukrána. Síðan byrj
aði ég í víkingafélaginu Rimmu
gýgi fyrir þremur árum og Ragga
fylgdi á eftir, líkt og dóttir okkar.“
Víkingalífið hefur æ síðan verið
afar stór hluti af lífi fjölskyldunn
ar. „Við erum stanslaust í ein
hverju sem tengist víkingastarf
inu. Við hittumst reglulega yfir
vetrartímann til að sauma og sinna
öðru handverki. Þá er ég líka bar
dagamaður og við æfum okkur
tvisvar í viku í sverða og bardaga
tækni.“
Thomas og Ragnheiður hafa
farið á tvær víkingahátíðir í út
löndum í fyrra og í ár. Þeim hefur
líkað svo vel að þau stefna á að
gera það að árlegum viðburði.
„Þetta er rosa skemmtilegt. Maður
hittir svo mikið af fólki, bæði
gamla vini og eignast nýja. Það
er mikið bræðralag sem mynd
ast milli víkinga, þótt þeir séu frá
ólíkum löndum.“
Gefin saman
af VölVu
Thomas Aagaard og Ragnheiður Hjálmars-
dóttir endurnýjuðu heitin á Víkingahátíð í
sumar í tilefni af tíu ára brúðkaupsafmæli sínu.
Athöfnin fór fram í blíðskaparveðri á fagurri
strönd í Danmörku.
Um þrjátíu manns voru viðstaddir, þar á meðal for-
eldrar og fjölskylda Thomasar frá Danmörku. Einnig
víkingavinir þeirra hjóna frá Íslandi, Þýskalandi og víðar.
Maður hittir svo
mikið af fólki,
bæði gamla vini og eign-
ast nýja. Það er mikið
bræðralag sem myndast
milli víkinga, þótt þeir séu
frá ólíkum löndum.
Thomas Aagaard
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
Athöfnin fór fram á ströndinni nærri víkingahátíðinni og var ákaflega vel lukkuð. Mynd/GíSli dúi
Vinkona hjónanna, sem er völva, stjórnaði athöfninni. Thomas saumaði brúðkaupsklæðin á sig og konu sína. Mynd/GíSli dúi
Karen, dóttir Thomasar og Ragnheiðar,
tekur fullan þátt í víkingalífinu.
Mynd/ThoMAS AAGAARd
KAUP
AUKA
TILBOÐ
Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana.
Eitt mesta selda
liðbætiefnið á Íslandi
P
R
E
N
T
U
N
.IS
NUTRILENK GEL fylgir FRÍTT
með sem kaupauki.
3 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r6 F ó L k ∙ k y n n i n G A r b L A ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G A r b L A ð ∙ h e L G i n
0
3
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
7
4
-5
3
7
C
1
A
7
4
-5
2
4
0
1
A
7
4
-5
1
0
4
1
A
7
4
-4
F
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
0
4
s
_
2
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K