Fréttablaðið - 03.09.2016, Side 49

Fréttablaðið - 03.09.2016, Side 49
Stálnaust sérhæfir sig í smíðum á færiböndum og ýmsum lausnum fyrir matvælaiðnaðinn, ásamt því að annast alla aðra smíði úr ryðfríu stáli og áli. Einnig bjóðum við uppá vatnsskurð á flestum efnum. Óskum eftir að ráða Járnsmiði, vönum ryðfrírri smíði Einnig óskum við eftir aðstoðarmönnum á verkstæði. Upplýsingar gefur Svanþór í síma 849-5846 eða svanthor@stalnaust.is EXPLORE WITHOUT LIMITS ® EXPLORE WITHOUT LIMITS ® Vegna aukinna umsvifa vantar okkur vana menn til starfa á verkstæði okkar. VANUR BIFVÉLAVIRKI Á ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI LIÐSAUKI ÓSKAST Okkur vantar vanan bifvélavirkja til að sinna fjölbreyttum verkefnum á þjónustuverkstæði okkar. Menntun í bifvélavirkjun er skilyrði og mikil reynsla æskileg. STARFSMAÐUR Á BREYTINGAVERKSTÆÐI Við leitum að starfsmanni með góða þekkingu en ekki síst brennandi áhuga á jeppum og jeppa- breytingum. Reynsla af breytingavinnu er æskileg og iðnmenntun er kostur. Arctic Trucks er þjónustufyrirtæki sem vinnur að lausnum fyrir fólk sem hefur áhuga á jeppum og ferðalögum. Umsóknir sendist á netfangið umsokn@arctictrucks.is. Upplýsingar veitir Hallveig Andrésdóttir, sími 540 4911. Umsóknarfrestur er til 12. september. Klettháls 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustunni þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Flóknari vandamál, þörf fyrir fjölbreyttari úrræði og skortur á sérhæfðu starfsfólki kallar á nýja nálgun í starfsemi heilsugæslustöðva. Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er hafin breyting á skipulagi og rekstri heilsugæslustöðva sem miðar að því að auka þjónustu við notendur, nýta betur fjármuni og að bæta vinnuumhverfi starfsmanna. Til að gera þjónustuna markvissari verður teymisvinna grunnstef í starfsemi stöðva, ásamt innleiðingu aðferða straumlínustjórnunar. Þverfagleg teymi heilbrigðisstarfsfólks munu auðvelda stöðvum að taka á flóknum vandamálum með fjölbreyttum úrræðum. Í breyttu skipulagi mun starfsfólk fá aukið sjálfstæði til að móta starfsemina og til að útfæra þjónustu sem mætir þörfum íbúa og uppfyllir um leið kröfur um árangur samkvæmt mælingum og mati. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Allar umsóknir verða sendar til stöðunefndar hjá Landlæknisembættinu. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Jafnframt skal fylla út eyðublaðið „Umsókn um læknisstöðu“ og setja það í viðhengi. Umsóknareyðublaðið má nálgast á vef Embættis landlæknis (www.landlaeknir.is) undir útgefið efni. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Sækja skal um starfið rafrænt á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is) undir laus störf eða á Starfatorgi (www.starfatorg.is). Fagstjóri lækninga Heilsugæslan Mosfellsumdæmi Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laust til umsóknar starf fagstjóra lækninga við Heilsugæsluna Mosfellsumdæmi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf sem reynir á frumkvæði, skipulagshæfni og samskiptahæfileika. Starfshlutfall er 100% og verður ráðið í starfið til 5 ára frá og með 1. nóvember nk. eða eftir nánara samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 19. september 2016. Helstu verkefni og ábyrgð Skipulag, verkstjórn og samhæfing innan fagsviðs með svæðisstjóra, í samræmi við stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins Er svæðisstjóra innan handar við daglegan rekstur stöðvar og er staðgengill hans Innleiðir nýjungar og vinnur að breytingum á starfsemi til hagsbóta fyrir skjólstæðinga stöðvar Tekur þátt í gerð, innleiðingu og notkun klínískra leiðbeininga Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu Tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi Hefur umsjón með sérnámslæknum stöðvar, veitir fræðslu til nema, nýliða og starfsmanna fagsviðs í samvinnu við aðra starfsmenn stöðvar Er faglegur yfirmaður á sínu sviði og sinnir klínísku starfi samhliða Hæfnikröfur Sérfræðingur í heimilislækningum Reynsla af starfi í heilsugæslu Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar Nám í stjórnun æskilegt Hæfni í mannlegum samskiptum Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri í starfi Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt Reynsla af og áhugi á teymisvinnu Frekari upplýsingar um starfið Nánari upplýsingar veitir Svanhildur Þengilsdóttir, svæðisstjóri Heilsugæslu Mosfellsumdæmis – 510-0700 svanhildur.thengilsdottir@heilsugaeslan.is. Okkur vantar fólk í sal Við erum að leita að ábyrgðarfullu, jákvæðu og metnaðarfullu fólki til að koma til liðs við okkur! Umsóknir sendast á: info@maturogdrykkur.is 0 3 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 7 4 -8 4 D C 1 A 7 4 -8 3 A 0 1 A 7 4 -8 2 6 4 1 A 7 4 -8 1 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 0 4 s _ 2 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.