Fréttablaðið - 03.09.2016, Page 49
Stálnaust sérhæfir sig í smíðum á færiböndum og ýmsum
lausnum fyrir matvælaiðnaðinn, ásamt því að annast alla
aðra smíði úr ryðfríu stáli og áli.
Einnig bjóðum við uppá vatnsskurð á flestum efnum.
Óskum eftir að ráða
Járnsmiði, vönum ryðfrírri smíði
Einnig óskum við eftir aðstoðarmönnum á verkstæði.
Upplýsingar gefur Svanþór í síma 849-5846
eða svanthor@stalnaust.is
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
Vegna aukinna umsvifa vantar okkur
vana menn til starfa á verkstæði okkar.
VANUR BIFVÉLAVIRKI Á
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
LIÐSAUKI
ÓSKAST
Okkur vantar vanan bifvélavirkja til að sinna
fjölbreyttum verkefnum á þjónustuverkstæði okkar.
Menntun í bifvélavirkjun er skilyrði og mikil reynsla
æskileg.
STARFSMAÐUR Á
BREYTINGAVERKSTÆÐI
Við leitum að starfsmanni með góða þekkingu
en ekki síst brennandi áhuga á jeppum og jeppa-
breytingum. Reynsla af breytingavinnu er æskileg
og iðnmenntun er kostur.
Arctic Trucks er þjónustufyrirtæki sem vinnur að lausnum
fyrir fólk sem hefur áhuga á jeppum og ferðalögum.
Umsóknir sendist á netfangið umsokn@arctictrucks.is.
Upplýsingar veitir Hallveig Andrésdóttir, sími 540 4911.
Umsóknarfrestur er til 12. september.
Klettháls 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun
Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í
heilbrigðisþjónustunni þar sem ólíkum þörfum
notenda er mætt og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi
heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Flóknari
vandamál, þörf fyrir fjölbreyttari úrræði og skortur á
sérhæfðu starfsfólki kallar á nýja nálgun í starfsemi
heilsugæslustöðva. Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
er hafin breyting á skipulagi og rekstri heilsugæslustöðva
sem miðar að því að auka þjónustu við notendur, nýta
betur fjármuni og að bæta vinnuumhverfi starfsmanna.
Til að gera þjónustuna markvissari verður teymisvinna
grunnstef í starfsemi stöðva, ásamt innleiðingu aðferða
straumlínustjórnunar. Þverfagleg teymi heilbrigðisstarfsfólks
munu auðvelda stöðvum að taka á flóknum vandamálum
með fjölbreyttum úrræðum. Í breyttu skipulagi mun
starfsfólk fá aukið sjálfstæði til að móta starfsemina og til
að útfæra þjónustu sem mætir þörfum íbúa og uppfyllir
um leið kröfur um árangur samkvæmt mælingum og mati.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands.
Allar umsóknir verða sendar til stöðunefndar hjá Landlæknisembættinu. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist
ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar.
Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu
berast Svövu Þorkelsdóttur, mannauðsstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Jafnframt skal fylla út eyðublaðið „Umsókn um læknisstöðu“ og setja það í viðhengi. Umsóknareyðublaðið má nálgast
á vef Embættis landlæknis (www.landlaeknir.is) undir útgefið efni.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Sækja skal um starfið rafrænt á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (www.heilsugaeslan.is) undir laus störf
eða á Starfatorgi (www.starfatorg.is).
Fagstjóri lækninga
Heilsugæslan Mosfellsumdæmi
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laust til umsóknar starf fagstjóra lækninga við
Heilsugæsluna Mosfellsumdæmi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf sem reynir á
frumkvæði, skipulagshæfni og samskiptahæfileika. Starfshlutfall er 100% og verður ráðið í starfið
til 5 ára frá og með 1. nóvember nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til og með 19. september 2016.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipulag, verkstjórn og samhæfing innan
fagsviðs með svæðisstjóra, í samræmi við
stefnu og markmið Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins
Er svæðisstjóra innan handar við daglegan
rekstur stöðvar og er staðgengill hans
Innleiðir nýjungar og vinnur að breytingum á
starfsemi til hagsbóta fyrir skjólstæðinga stöðvar
Tekur þátt í gerð, innleiðingu og notkun
klínískra leiðbeininga
Stuðlar að góðri vinnustaðamenningu
Tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi
Hefur umsjón með sérnámslæknum stöðvar,
veitir fræðslu til nema, nýliða og starfsmanna
fagsviðs í samvinnu við aðra starfsmenn stöðvar
Er faglegur yfirmaður á sínu sviði og sinnir
klínísku starfi samhliða
Hæfnikröfur
Sérfræðingur í heimilislækningum
Reynsla af starfi í heilsugæslu
Þekking, reynsla og hæfni á sviði stjórnunar
Nám í stjórnun æskilegt
Hæfni í mannlegum samskiptum
Leiðtogahæfni og metnaður til að ná árangri
í starfi
Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
Reynsla af og áhugi á teymisvinnu
Frekari upplýsingar um starfið
Nánari upplýsingar veitir Svanhildur Þengilsdóttir,
svæðisstjóri Heilsugæslu Mosfellsumdæmis – 510-0700
svanhildur.thengilsdottir@heilsugaeslan.is.
Okkur vantar
fólk í sal
Við erum að leita að
ábyrgðarfullu, jákvæðu og
metnaðarfullu fólki til að
koma til liðs við okkur!
Umsóknir sendast á:
info@maturogdrykkur.is
0
3
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
7
4
-8
4
D
C
1
A
7
4
-8
3
A
0
1
A
7
4
-8
2
6
4
1
A
7
4
-8
1
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
2
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K