Fréttablaðið - 03.09.2016, Síða 56
Atvinnubílstjórar
Okkur vantar bílstjóra í dreifingu, bæði á sendiferða- og
flutningabíla. Umsækjendur geta verið búsettir
á höfuðborgasvæðinu.
Vinsamlegast skilið inn umsóknum á bfaerseth@mitt.is
Fitjar-vörumiðlun ehf • 260 Reykjanesbær
Sérfræðingur á skrifstofu
heilbrigðisþjónustu
Meginhlutverk velferðarráðuneytisins er að stuðla að
heilbrigði og félagslegri velferð landsmanna. Ráðu-
neytið hefur virðingu, fagmennsku, framsýni og ár-
angur að leiðarljósi í starfsemi sinni.
Velferðarráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf
sérfræðings á skrifstofu heilbrigðisþjónustu. Skrif-
stofan annast verkefni varðandi skipulag heilbrigðis-
þjónustu og undir hana falla verkefni sjúkrahúsa,
heilbrigðisstofnana, heilsugæslu sem og heilbrigðis-
þjónusta utan stofnana, á hjúkrunar- og dvalarheim-
ilum, auk sjúkratrygginga.
Starfið felst meðal annars í að vinna að stefnumörk-
un í heilbrigðismálum og fylgja eftir faglegri þróun
heilbrigðisþjónustu. Starfið krefst lausnamiðaðrar og
skapandi hugsunar sem gerir ríka kröfu um skipu-
lag, faglega þekkingu og framúrskarandi samskipta-
hæfni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun í læknisfræði, hjúkrunarfræði,
sálfræði eða öðrum klínískum greinum á sviði
heilbrigðisvísinda.
• Starfsreynsla úr heilbrigðisþjónustu.
• Þekking og reynsla af greiningarvinnu.
• Hæfni í að miðla upplýsingum með skýrum hætti.
• Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnu-
brögðum, auk hæfni til að taka virkan þátt í teymis-
vinnu.
• Jákvæðni og framúrskarandi samskiptahæfni.
• Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti er skilyrði.
• Góð enskukunnátta er nauðsynleg og vald á einu
Norðurlandamáli er kostur.
• Þekking á opinberri stjórnsýslu er æskileg.
• Almenn tölvukunnátta.
Um er að ræða fullt starf í krefjandi starfsumhverfi
þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálf-
stæði. Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi
Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðs-
ins og fjármála- og efnahagsráðherra. Ráðuneytið
hvetur karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfs-
feril og starfsheiti, ásamt rökstuðningi fyrir hæfni
viðkomandi í starfið, skulu berast velferðarráðuneyt-
inu, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 101 Reykja-
vík, eða á postur@vel.is eigi síðar en 20. september
2016. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að
umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996
um auglýsingar á lausum störfum, með síðari
breytingum. Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Upplýsingar um
starfið veitir Vilborg Ingólfsdóttir skrifstofustjóri,
(vilborg.ingolfsdottir@vel.is).
Velferðarráðuneytinu, 3. september 2016.
Verkefnastjóri sinnir daglegri umsýslu námsbrautar í lögreglufræði, samskiptum
við Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu og aðra samstarfsaðila náms-
brautarinnar ásamt öðrum tilfallandi verkefnum sem námsbrautinni tengjast.
Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti
kynjanna og hvetur karla jafnt sem konur
til að sækja um laus störf.
Umsóknarfrestur er til og með 25. september 2016
Verkefnastjóri í lögreglufræði
Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa 100% stöðu
verkefnastjóra á sviði lögreglufræði til starfa við
nýstofnaða námsbraut í lögreglufræði við
Háskólann á Akureyri.
www.unak.is/lausstorf.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Umsækjandi skal hafa háskólapróf í félagsvísindum eða lögfræði og/eða
starfsréttindi sem lögreglumaður frá Lögregluskóla ríkisins.
• Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni.
• Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af verkefnastjórnun og þekkingu á
opinberri stjórnsýslu.
• Starfsreynsla við háskóla er jafnframt æskileg.
Umsóknir ásamt fylgigögnum skal
senda skrifstofu rektors, Háskólans
á Akureyri á netfangið
starfsumsokn@unak.is. Ekki er notað
staðlað umsóknareyðublað.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Sigrún Stefánsdóttir, forseti hug- og
félagsvísindasviðs, sími 460-8650,
netfang sigruns@unak.is
Nánari upplýsingar um fylgigögn umsókna, laun og meðferð umsókna er að
finna á www.starfstorg.is og á vef Háskólans á Akureyri.
Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst og eigi síðar en 1. janúar 2017. Starfsstöð verkefnastjóra í lögreglufræði er á Akureyri.
Staða leikskólastjóra við leikskólann Hof
Skóla- og frístundasvið
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra á Hofi
Hof er sex deilda leikskóli við Gullteig í næsta nágrenni við Laugardalinn. Leiðarljós í starfi leikskólans er að skapa börnum
umhverfi þar sem þau geta svalað forvitni sinni og fróðleiksfýsn, átt frumkvæði, verið virk, frumleg og skapandi. Í leikskólanum er
markvisst unnið með fjölmenningu og í vetur verður sérstök áhersla lögð á tvítyngi. Hof er Grænfánaskóli og þar skipa útinám og
vettvangsferðir stóran sess auk þess sem unnið er að þróunarverkefni um forvarnir gegn einelti. Á næstu mánuðum fer einnig af
stað tilraunaverkefni um styttingu vinnutíma. Gildi leikskólans eru virðing – gleði – sköpun og lýðræðisleg vinnubrögð eru höfð að
leiðarljósi í öllu starfinu.
Leitað er að einstaklingi sem hefur leiðtogahæfileika og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt leikskólastarf á Hofi.
Meginhlutverk leikskólastjóra er að:
• Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðarstefnu
hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnu
Reykjavíkurborgar.
• Hafa yfirumsjón með daglegu starfi í leikskólanum.
• Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra
og starfsmenn.
• Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
• Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskólakennara.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla
á leikskólastigi.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari og greinargerð um framtíðarsýn
umsækjanda á starf í leikskólanum.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. nóvember 2016. Umsóknarfrestur er til og með 25. september 2016.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags stjórnenda
leikskóla. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir, skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskólamála, sími 411 1111.
Netfang: ingibjorg.m.gunnlaugsdottir@reykjavik.is
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og
að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
0
3
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
7
4
-8
4
D
C
1
A
7
4
-8
3
A
0
1
A
7
4
-8
2
6
4
1
A
7
4
-8
1
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
0
4
s
_
2
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K