Fréttablaðið - 03.09.2016, Blaðsíða 86
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
Ég hef aldrei haldið upp á afmælið mitt, alltaf verið frábitin því en nú ákvað ég að gera það með sérstök-
um hætti og ætla að vera með opið hús
í Fella-og Hólakirkju,“ segir Arnhildur
Valgarðsdóttir organisti sem fagnar
nýliðnu fimmtugs afmæli í dag klukkan
17 og vonar að fólk mæti. Veislustjóri
verður besta vinkona hennar, Hafdís
Eygló Jónsdóttir jarðfræðingur.
„Ég ætla að sýna myndir af málverk-
um sem ég hef verið að mála í sumar
og spila ljúfa tónlist á flygilinn. Þetta
eru auðvitað bara amatöramyndir en
lögin eru eftir Gabriel Yared, Agnar Má
Magnússon djassara og Astor Piazolla,“
segir Arnhildur um upphafsatriði dag-
skrárinnar. „Sumar myndirnar verða til
sölu til ágóða fyrir eigin mennta-og tón-
listarsjóð, ég er nefnilega nýflutt í litla
íbúð og vil ekkert dót. En það koma fram
söngvarar, hljóðfæraleikarar og kórar
með alls konar atriði, bæði klassísk og á
léttari nótum og auðvitað verður Ágústa
Dómhildur, dótla mín, með fiðluna sína.
Þetta verður tónlistarveisla. Mamma og
dóttir mín eru líka að búa til snittur,
ítalskar kjötbollur og alls konar góð-
gæti til að bjóða upp á, svo verður kaffi
og kampavín.“
Arnhildur kveðst hafa spilað sjálf
milljón sinnum í veislum en þegar komi
að hennar eigin afmælisveislu sé hún
smá nervus. „Ég vil engar ræður, bara
tónlist og spjall. Reyndar ætla ég að hafa
miða frammi og biðja fólk um heilræði,
brandara eða skilaboð sem hægt verður
að lesa upp, allt nafnlaust.
Ég tala um þetta eins og þetta sé ein-
hver heimsráðstefna en svo er þetta bara
venjulegt afmæli í Breiðholtinu en Fella-
og Hólakirkja er frábært tónlistarhús og
það er yndislegt útsýni úr safnaðarheim-
ilinu. Ég er pínu stressuð að sýna þessar
myndir mínar, en svo hugsaði ég: Bíddu,
ég er orðin fimmtug, hversu gömul á ég
að verða til að þora að fara aðeins út fyrir
kassann?“
gun@frettabladid.is
Stígur út fyrir kassann
Arnhildur Valgarðsdóttir organisti er að halda upp á fimmtugsafmæli sem skall á hana í
ágúst. Hún gerir það með stæl því hún er með opið hús í dag í Fella- og Hólakirkju.
„Ég tala um þetta eins og þetta sé einhver heimsráðstefna en svo er þetta bara venjulegt af-
mæli í Breiðholtinu,“ segir Arnhildur. FrÉttABlAðið/Ernir
Ég vil engar ræður, bara tónlist og spjall. Reyndar
ætla ég að hafa miða frammi og biðja fólk um
heilræði, brandara eða skilaboð
Arnhildur Valgarðsdóttir organisti
Ástkær eiginkona,
móðir, amma og systir,
Kristrún Sigfríð
Einarsdóttir Axelsson
sem lést 17. ágúst, verður jarðsungin
16. september kl. 11.
Útförin verður í Knäred-kirkju í Svíþjóð.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent
á Canser-fonden í Svíþjóð.
Nils Axelsson, Einar Iljin, Valerie Iljin og Axel Einarsson.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, dóttir og systir,
Kristjana Arnardóttir
Básahrauni 46, Þorlákshöfn,
áður búsett að Hlíðarhjalla 59,
Kópavogi,
lést á líknardeild LSH í Kópavogi
29. ágúst. Útförin fer fram frá Digraneskirkju
þriðjudaginn 6. september klukkan 15.
Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vildu minnast
hennar er bent á Krabbameinsfélagið eða Ljósið.
Jakob Örn Haraldsson
Örn Sævar Hilmarsson María Björk Sverrisdóttir
Örn Sævar Eyjólfsson Viktoría Jóhannsdóttir
Jóhann Örn Arnarson Hjördís Blöndal
Vignir Arnarson Dagný Magnúsdóttir
Íris Arnardóttir
Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Halla Kristinsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold,
Garðabæ, 29. ágúst. Hún verður
jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 7. september kl. 13.
Matthildur Rósenkranz Guðmundsdóttir
Elín Birna Guðmundsdóttir
Trausti Þór Guðmundsson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Einar Guðbjartsson,
Þorláksgeisla 10,
sem lést á Líknardeild Landspítalans í
Kópavogi, laugardaginn 27. ágúst,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju í
Reykjavík, þriðjudaginn 6. september kl. 13.00. Sérstakar
þakkir færum við starfsfólki á Líknardeild Landspítalans í
Kópavogi og Heimahlynningu Landspítalans fyrir einstaka
alúð og hjúkrun.
Bára Guðmundsdóttir,
börn, tengdadóttir, barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir fyrir allar kveðjurnar
og þann hlýhug, samúð og vináttu
sem þeim fylgdi við andlát og útför
Ólafar Eldjárn
þýðanda og ritstjóra,
Öldugötu 30, Reykjavík.
Fyrir okkar hönd og allrar fjölskyldunnar,
Stefán Örn, Kristján Andri, Davíð, Stefán Hallur
og Ágúst Breki Eldjárn
Þökkum af alhug auðsýnda samúð,
vináttu og kærleiksríkan hlýhug
vegna fráfalls og útfarar okkar elsku
mömmu, tengdamömmu,
ömmu og langömmu,
Arndísar Oddfríðar
Magnúsdóttur
Addýjar,
Eyjabakka 2, Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við alúðlegu starfsfólki
gjörgæsludeildar LSH v/ Hringbraut.
Ingunn Björgvinsdóttir
Guðrún V. Björgvinsdóttir Jökull H. Úlfsson
Björgvin Arnar Björgvinsson Guðrún Sverrisdóttir
ömmubörn og langömmubörn.
Þennan dag árið 1982 var sýning opnuð
á Kjarvalsstöðum á
verkum Bertels Thorvaldsen en þetta
var í fyrsta sinn sem Thorvaldsensafnið
í Kaupmannahöfn sýndi verk sín utan
Danmerkur.
Danir og Íslendingar hafa löngum
slegist um ætterni Bertels Thorvaldsen
en hann átti danska móður og íslenskan
föður og bjó í Kaupmannahöfn og Róm.
Í Kaupmannahöfn varði hann bróður-
parti ævi sinnar og er því oftar talinn
danskur en hann var einn fremsti mynd-
höggvari álfunnar á sínum tíma. Hann
sló í gegn með styttu sem gerð var eftir
pöntun á árunum 1801-1828 en það var
breski listaverkasafnarinn Thomas Hope
sem pantaði styttuna. Hún var gerð eftir
fyrirmynd höggmyndarinnar Apollo
frá Belvedere. Fyrsta útilistaverkið í
eigu Íslendinga, „Vonin,“ er eftir Bertel
Thorvaldsen en hann gaf Íslandi verkið
í tilefni þjóðhátíðarinnar 1874. Skírnar-
fonturinn í Dómkirkjunni er þó líklega
þekktasta verk hans í eigu Íslendinga.
Fjölmenni mætti á sýninguna á Kjarvals-
stöðum og vakti hún mikla athygli auk
þess sem Íslendingar uppgötvuðu að
nýju þennan merka hálfíslenska lista-
mann.
3 . S E P t E M B E R 1 9 8 2
Verk Thorvaldsens sýnd á Íslandi
1189 Ríkharður ljónshjarta er krýndur
konungur Englands.
1651 Ensku borgarastyrjöldinni lýkur með
sigri Cromwells á Karli II. í orrustunni við
Worchester.
1783 Bretar viðurkenna sjálfstæði Banda-
ríkjanna.
1921 206 metra löng brú yfir Jökulsá á Sól-
heimasandi er vígð.
1988 Tekin er í notkun Óseyrarbrú yfir ósa
Ölfusár og styttist leiðin milli Þorlákshafnar
og Eyrarbakka við það úr 45 í 15 kílómetra.
2004 Rússneskar hersveitir gera innrás í
grunnskóla í Beslan þar sem hryðjuverka-
menn héldu starfsfólki og börnum í gísl-
ingu. 344 féllu í árásinni, þar af 172 börn.
Merkisatburðir
3 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r38 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
tímamót
0
3
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
7
4
-1
D
2
C
1
A
7
4
-1
B
F
0
1
A
7
4
-1
A
B
4
1
A
7
4
-1
9
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
0
4
s
_
2
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K