Fréttablaðið - 03.09.2016, Qupperneq 94
Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar auglýsir eftir umsókn-
um forsvarsmanna hátíða um samstarfsamning sem ein af Borgarhátíðum
Reykjavíkur 2017 – 2019. Nokkrar lykilhátíðir verða valdar sérstaklega
af menningar- og ferðamálaráði og fá viðurkenninguna Borgarhátíðir
Reykjavíkur með sérstökum þriggja ára samningi og fjárframlagi.
Markmiðið er að styðja samfellu, framþróun og rekstrarlegar grundvöll
hátíða í Reykjavík sem þegar hafa sannað ótvírætt gildi sitt hvað varðar
þýðingu fyrir menningarlífið í borginni, alþjóðleg tengsl, jákvæð áhrif á
ferðamennsku og ímynd Reykjavíkur auk efnahagslegs umfangs.
Um er að ræða nýtt fyrirkomulag sem byggir á áherslum í menningar-
og ferðamálastefnum Reykjavíkurborgar.
Borgarhátíð Reykjavíkur þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
a) vera til eflingar menningar og listum í Reykjavík
b) vera opin almenningi, aðgengileg og sýnileg
c) hafa verið haldin að lágmarki fimm sinnum
d) vera haldin árlega
e) vera með alþjóðlega tengingu
f) standa yfir í þrjá daga eða lengur
g) vera með faglega stjórn
h) viðhafa góða stjórnarhætti og rekstrarlegt gegnsæi
i) fullnægja kröfum um fagmennsku og gæði
j) vera framúrskarandi á sínu sviði
Jafnframt verður litið til þátta eins og nýsköpunar, umfangs, aðsóknar,
kynningar, stöðugleika, þróunarmöguleika, margfeldisáhrifa, atvinnu-
skapandi þátta, tímasetningar innan ársins, möguleika hátíðanna á eigin
tekjuöflun og þróun í átt að sjálfbærni. Samfélagsleg vídd í starfsemi
hátíðanna er mikilvæg svo sem á sviði menningaruppeldis barna;
samstarfs við íbúa, í menningar- og listalífi og samstarfi við borgar-
stofnanir, aðkomu og samstarfi við minnihlutahópa, áherslu á umhverfis-
mál o.fl. Nýr samningur til þriggja ára felur í sér markmið um starfsemi,
þróun og rekstur með tilskyldum fyrirvörum um samþykkt fjárhags-
áætlunar Reykjavíkurbogar hverju sinni.
Hátíðir sem þegar eru með samning í gildi fyrir árið 2017 og/eða
lengur geta sótt um að verða Borgarhátíð Reykjavíkur, en hljóti þær ekki
tilnefninguna gildir fyrri samningur óbreyttur. Hátíðir með
lausan samning eru hvattar til að sækja jafnframt um almenna menning-
arstyrki Reykjavíkurborgar skv. auglýsingu á reykjavik.is/styrkir.
Umsóknarfrestur er til kl. 12 á hádegi 3.október nk.
Umsókn sendist í tölvupósti á menning@reykjavik.is. Í umsókninni komi
fram hvernig hátíðirnar uppfylla ofangreind skilyrði ásamt ársreikningi
síðustu þriggja ára og starfs- og fjárhagsáætlun 2017. Nánari upplýsingar
veitir signy.palsdottir@reykjavik.is s. 4116021.
Borgarhátíðir
Reykjavíkur
2017 - 2019
Loksins er komið haust og nýtt leikár hafið. Síðustu tvær vikurnar hafa leik-húsin í höfuðborginni keppst um að auglýsa dagskrá sína og margt
spennandi bíður áhorfenda á kom-
andi mánuðum. Vert er að virða
leikárið fyrir sér, þá sérstaklega sýn-
ingarnar fyrri hluta þess.
Fyrsta verk Þjóðleikhússins á
þessu leikári er reyndar verkefni
frá hinu síðara en loksins verður
Djöflaeyjan frumsýnd. Leikgerðin
er ný, eftir Atla Rafn Sigurðarson,
sem einnig leikstýrir í samvinnu við
Baltasar Kormák og Melkorku Teklu
Ólafsdóttur. Leikhópurinn allur er
reyndar skrifaður fyrir verkinu og
stór hópur kemur að tónlistinni
þar sem Bragi Valdimar Skúlason og
Memfismafían eru fremst í flokki.
Bjarni Haukur Þórsson er mættur
til landsins með einleikinn Maður
sem heitir Ove, byggðan á hinni
sívinsælu bók eftir Fredrik Back-
man, í farteskinu. Sigurður Sigur-
jónsson leikur hinn geðstirða Ove og
áhugavert verður að sjá hvernig þeir
útfæra verkið, hugmyndin virðist í
traustum höndum.
Í Borgarleikhúsinu byrjar leik-
árið með frumsýningu á nýju
íslensku leikriti: Sendingu eftir
Bjarna Jónsson, í leikstjórn Mörtu
Nordal. Með aðalhlutverk fara Þor-
steinn Bachmann, Kristín Þóra Har-
aldsdóttir, Hilmar Guðjónsson og
Elma Stefanía Ágústsdóttir en und-
arlegt er að sú síðastnefnda fái ekki
fleiri burðarhlutverk á leikárinu.
Tjarnarbíó byrjar sitt leikár með
hinni ágætu sýningu Stripp, sam-
starfsverkefni Dance for Me og
Olgu Sonju Thorarensen. Sóley
Rós ræstitæknir tekur síðan á móti
leikhúsgestum en María Reyndal
og Sólveig Guðmundsdóttir standa
að baki sýningunni sem fjallar um
lífshlaup alþýðukonu. Trúðarnir
Pétur, Tómas, Brynhildur og Sigfús
taka Helga magra fyrir í fyrstu leik-
sýningu Menningarfélags Akureyrar
á leikárinu en listrænir stjórnendur
eru Jón Páll Eyjólfsson og Þóroddur
Ingvarsson.
Lokkandi leikhús
Leikstjórinn Una Þorleifsdóttir og
leikarinn Stefán Hallur Stefánsson
halda samstarfi sínu áfram með ein-
leiknum Ég vil frekar að Goya haldi
fyrir mér vöku en einhver djöfulsins
fáviti eftir argentínska höfundinn
Rodrígó García. Það er hressandi
þegar listafólk leitar á ný mið í leik-
ritavali sínu en Una leikstýrði ein-
mitt nýju skandinavísku verki á
síðasta ári sem vakti mikla lukku.
Ragnheiður Skúladóttir fær sitt
fyrsta leikstjórnarverkefni innan
Borgarleikhússins og mun leikstýra
Extravaganza eftir Sölku Guðmunds-
dóttur, sem starfar nú sem leikskáld
hússins. Þarna er eftirtektarverð
samvinna á ferð og vonandi verður
sýningin eftir því.
Forvitnilegasta sýning MAk að
hausti er aftur á móti heimildar-
leikritið Elska þar sem ástarsögur
Norðlendinga eru sviðsettar í leik-
stjórn Agnesar Wild sem sýndi hina
ágætu Kate í Tjarnarbíói í fyrra.
Þarna er metnaðarfull tilraun á ferð
þar sem sögur úr byggðarlaginu fá að
blómstra.
Sviðslistahópurinn Lab Loki snýr
aftur með sýninguna Endastöð –
upphaf í Tjarnarbíó með vorinu en
leikstjórinn Rúnar Guðbrandsson og
leikarinn Árni Pétur Guðjónsson eru
þar í fram-
l í n u .
Þetta er
fyrsta sýning
hópsins í fimm ár og vert að hlakka
rækilega til enda var Svikarinn ein-
staklega gott leikhús.
Fortíðin föndruð og endurunnin
En þrátt fyrir áhugaverð verk eru
leikárin heldur kunnugleg. Stóru
leikhúsin í höfuðborginni verða
að stækka sjóndeildarhringinn og
taka oftar áhættu í verkefnavali. Úti
að aka eftir Ray Cooney er gott og
blessað en aðrir farsar eftir aðra höf-
unda eru í boði. Auðvitað er mikil-
vægt að sýna verk eftir William
Shakespeare reglulega en hvernig
væri að skoða Christopher Marlowe
eða franska snillinginn Moliére?
Horft frá brúnni eftir Arthur Miller
í leikstjórn Stefans Metz er vissu-
lega spennandi sýning með flottum
leikhóp en svo virðist sem Þjóð-
leikhúsið sé aftur að leita í öruggan
faðm Millers, Eldraunin eftir sama
höfund sló einmitt eftirminnilega í
gegn fyrir stuttu.
Nánast engin samvinnuverkefni
verða undir þaki Þjóðleikhússins í
vetur, fyrir utan samstarf hússins við
Vesturport. Áhugavert væri að vita
ástæðu þess. Tjarnarbíó hefur verið
að sækja í sig veðrið á síðustu misser-
um sem heimili sjálfstæðu sviðslista-
senunnar en hefur stundum liðið
fyrir mikinn gæðamun á verkefnum.
Friðrik Friðriksson hefur tekið við
af Guðmundi Inga Þorvaldssyni og
vonandi mun Tjarnarbíó vaxa undir
hans leiðsögn.
Menningarfélag Akureyrar er
merkileg tilraun sem fór af stað með
fullum þunga á síðasta leikári. Hug-
myndin um að samnýta stjórnun og
fjármuni er kannski hugvitsamleg en
sú hugsun læðist að manni að þetta
sé ekki að gera Leikfélagi Akureyrar
gott. LA er eitt rótgrónasta leikfélag
landsins og Jón Páll Eyjólfsson er öfl-
ugur sviðslistamaður en hættan er á
að MAk veiki stöðu þeirra beggja. En
góðir hlutir gerast hægt og öflugt
sviðslistasamfélag sprettur
ekki fram á einni nóttu.
Tilefni er til að hafa
áhyggjur af framtíð
íslenskrar leikrit-
unar eins og staðan
er í dag. Ekki vegna
þess að skortur sé
á fínum íslenskum
leikskáldum, af þeim
er nóg, heldur virðist
vandinn frekar liggja í
skorti á stuðningi stóru
leikhúsanna. Borgar-
leikhúsið hefur þó staðið
sig betur en bæði húsin líða
fyrir mikla áherslu á leikgerð-
ir. Þessar endalausu leikgerðir
eru góðar til síns brúks, bæði hafa
þær markaðsfræðilegan grundvöll
sem kassastykki fyrir húsin og minni
þörf á kynningu en aldrei koma þær
í stað nýrra leikverka. Leikhúsin
eiga að kynna nýja hluti fyrir áhorf-
endum, ný leikskáld og nýjar nálg-
anir, ekki stóla alltaf á kunnuglegar
og vinsælar bækur eða kvikmyndir
sem flestir þekkja. Áherslunum
verður að breyta, hið fyrsta, áður en
það verður of seint. Útgáfumál leik-
handrita verður líka að taka í gegn,
sem og leikskrár.
Okkar yngstu leikhúsgestir
Yngstu leikhúsgestirnir fá sem
betur fer eitthvað fyrir sinn snúð á
þessu leikári. Brúðuleikhússýningin
Íslenski fíllinn kemur sterk inn strax
með haustinu og Lofthræddi örninn
Örvar leggur land undir vængi en
þjóðleikhússtjóri efnir nú loforð sitt
um að sinna landsbyggðinni betur.
Frumsamda barnaleikritið Fjarska-
land verður síðan frumsýnt í janúar,
allt mjög jákvætt.
Borgarleikhúsið leitar til Bergs
Gamalt og nýtt
Af leikritum,
löstum og lofi
Leikárið 2016-2017 er að ganga í garð um
þessar mundir og af því tilefni skoðar
Sigríður Jónsdóttir, leiklistargagnrýn-
andi Fréttablaðsins, hvað er fram undan
í leikhúsunum í vetur en þar kennir ým-
issa grasa, bæði nýrra og kunnuglegra.
Stripp eftir sviðslistahópinn Díó markar upphaf leikársins í Tjarnarbíói.
Sending er nýtt
íslenskt verk í
Borgarleikhúsinu.
3 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r46 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð
menning
0
3
-0
9
-2
0
1
6
0
4
:1
4
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
0
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
7
4
-2
B
F
C
1
A
7
4
-2
A
C
0
1
A
7
4
-2
9
8
4
1
A
7
4
-2
8
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
0
4
s
_
2
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K