Fréttablaðið - 03.09.2016, Page 100

Fréttablaðið - 03.09.2016, Page 100
Maður verður sjálfkrafa aðeins Meira „white trash“, en frelsið er gott. Gott skipulag og vönduð verkefnastjórnun eykur skilvirkni í starfi. APME verkefnastjórnun er nám samhliða vinnu, kennt í fjarnámi og í staðarlotum. Námið er skipulagt í samstarfi við tækni- og verkfræðideild HR. APME VERKEFNA- STJÓRNUN (Applied Project Management Expert) Hefst: 17. september 2016 | Fjarnám „Námið er afar hagnýtt, fjölbreytt, tengt við raunveruleg verkefni og ætti að nýtast öllum, sama hvar þeir eru í skipulagsheildinni. Það hefur auðveldað mér alla skipulagsvinnu hvað varðar einstök verkefni og verkefnastöðu.“ Birkir Guðlaugsson LS Retail Partner Operations, Team Member Það er hægt að líkja þessu við atriði í Dumber Dumber, ég seldi íbúð-ina mína í Vestmanna-eyjum, og ég fékk Ford Transit Camper upp í íbúðina, ég ætlaði aldrei að fá mér þennan bíl, maðurinn sem var að kaupa íbúðina af mér lánaði mér bílinn. Hann vissi alltaf að ég yrði forfallinn Camper-aðdáandi eftir það. Maður verður sjálfkrafa aðeins meira „white trash“, en frelsið er gott,“ segir Unnar Gísli Sigmarsson, betur þekktur sem Júníus Meyvant, spurður út í húsbíl semhann hefur vakið tals- verða athygli fyrir undanfarnar vikur. Bíllinn er árgerð 1983 sem gerir það að verkum að hann er kominn á fertugsaldur. Opinber skilgreining á fornbíl miðast við að bíllinn hafi náð 25 ára aldri miðað við skrán- ingar árgerð. En ætli Unnar hafi hugsað sér að skrá sinn Camper í Fornbílaklúbb Íslands? „Ég þarf einmitt að fara að tékka á því hvort hann sé skráður. Ég væri til í að skrá hann í Camper- fornbílaklúbb. Það væri frábært að hitta fleiri aðdáendur Ford Transit Camper sem eru jafn klikkaðir og ég,“ segir hann og hlær. Tökur hafa staðið yfir á nýjasta tónlistarmyndbandi Júníusar Mey- vants þar sem Camperinn leikur stórt hlutverk og meðal leikara í myndbandinu er stórleikarinn Þór- valdur Davíð Kristjánsson. Mynd- Mér líður eins og Tónlistarmaðurinn júníus Meyvant krúsar um götur borgarinnar á Ford Tran- sit Camper -húsbíl. Nýlega stóðu yfir tökur á nýjasta tónlistarmyndbandi hans þar sem bíllinn leikur stórt hlutverk. Júníus er staddur í Berlín, þar sem hann spilaði á fyrstu tónleikum í Evróputúr sínum í gær. sígauna- kóngi bandið er við Beat Silent Need, lag af nýjustu plötu hans, Floating Harmonies. „Það var mjög skemmtilegt að taka upp þetta myndband. Camp- erinn spilar gott hlutverk. Þor- valdur Davíð er eigandi bílsins í myndbandinu, og ég bý inni á þeim hjónum, eins og hálfgerð heimasæta,“ segir Unnar og bætir við að myndbandið sé væntanlegt á næstu vikum. Áhugi fjölskyldunnar á bílnum er mikill en sonur Unnars hefur haft töluvert gaman af þessum nýjasta bíl fjölskyldunnar, sem hann einfaldlega kýs að kalla hús á hjólum. „Það er svefnpláss fyrir fjóra full- orðna, svo það fer vel um okkur fjölskylduna, við höfum töluvert ferðast á Campernum og Simmi sonur minn er mjög hrifinn af bílnum, hann vill vera í honum öllum stundum. Sjálfur væri ég til í að sofa í honum alla daga, en ég elska konuna mína of mikið, hún er nú þegar farin að sjá mig flytja út í bílinn. Ég vil gera allt fyrir bílinn og þetta er orðið frekar klikkað áhuga- mál,“ segir Unnar léttur í bragði og bætir við að hann hafi heldur betur dottið í lukkupottinn. Unnar hefur verið áberandi undanfarin misseri, en framund- an er nóg um að vera hjá honum. Hann er sem stendur staddur í Berlín, þar sem hann hélt í gær sína fyrstu tónleika á Evrópu- túrnum sínum. „Ég er staddur í Berlín, það er frábært að spila hér og það gekk mjög vel, þetta voru fyrstu tón- leikarnir mínir á þriggja vikna Evróputúr. Ég ætla meðal annars að ferðast til Þýskalands, Póllands, Austurríkis, London og Hollands. Þetta verður frábært,“ segir Unnar spenntur fyrir komandi tímum. gudrunjona@frettabladid.is Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson er meðal leikara í myndbandinu. 3 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r52 L í f i ð ∙ f r É t t A b L A ð i ð Lífið 0 3 -0 9 -2 0 1 6 0 4 :1 4 F B 1 0 4 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 7 4 -2 7 0 C 1 A 7 4 -2 5 D 0 1 A 7 4 -2 4 9 4 1 A 7 4 -2 3 5 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 0 4 s _ 2 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.