Morgunblaðið - 02.11.2015, Blaðsíða 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2015
VIÐTAL
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Dísilómur dráttarvélarinnar var rétt
að hefja söng sinn á bernskuárum
Bjarna Guðmundssonar og naut
hann því þeirra forréttinda, að eigin
sögn, að kynnast heyskap meðan
heyskapurinn var enn handverk.
Taktur og hvinur frá ljá og hrífu er
honum enn í fersku minni og alveg
ljóst hvaðan áhuginn á handverkinu
kemur.
„Fæddur í sveit og alinn upp á
þeim tíma þegar handverkfærin og
hestarnir voru við
það að víkja fyrir
vélvæðingunni,
sjálfri dráttarvél-
inni, kynntist ég
verklagi sem
haldið hafði lífinu
í Íslendingum all-
ar aldirnar á und-
an og það vakti
snemma áhuga
minn. Jókst hann svo heldur við
störf mín fyrir Landbúnaðarsafnið á
Hvanneyri,“ segir Bjarni, en hann
gaf nýlega út bókina Íslenskir
sláttuhættir, þar sem hann fjallar
um öflun heyforðans frá tímum ís-
lenska ljásins til ensku ljáblaðanna,
að hestasláttuvélinni og allt til daga
dráttarvéla.
Félagsleg erfiðisvinna
Slátturinn var allt annað en auð-
veldur og þó að margir sjái hann rós-
rauðum augum segir Bjarni að í
samanburði við verkaðferðir í dag
hafi afköstin verið lítil og vinnan erf-
ið.
„Þessi verk voru enginn dans á
rósum en slátturinn var verk sem
allir þurftu að sinna frá miðjum júlí
fram í miðjan september. Verkfærin
voru smá og afköstin lítil en hey-
skapurinn var forsenda þess að fólk
gæti lifað af veturinn. Orfið og ljár-
inn voru ásamt árinni þau áhöld sem
héldu lífi í þjóðinni.“
Heyskapur var þó ekki eingöngu
erfiði og böl því Bjarni segir mikinn
félagsskap hafa verið í slættinum.
„Þrælasláttur, þó nafnið gefi allt
annað til kynna en góðar stundir,
var félagslegt verk þar sem nokkrir
sláttumenn gengu í röð og slógu
saman í takti. Það var margt í hey-
slættinum sem var félagsleg fram-
kvæmd miðað við það sem tíðkast í
dag en nú situr bara einn karl eða
kona með heyrnartól og farsíma í
traktornum og í litlum samskiptum
við aðra nema í gegnum símann. Áð-
ur fyrr gat fólk sest niður, spjallað
saman, setið í þögninni eða sungið
saman. Það voru bæði karlmenn og
konur sem gengu að þessum verk-
um, ungir og gamlir. Ég get því séð
fyrir mér glaðværðina þegar vel
gekk. Við sjáum t.d. heyskap á
Hvanneyrarengjum alveg fram und-
ir miðja síðustu öld, þá voru tíu til
tólf sláttukarlar og jafn margar kon-
ur að raka og kannski slá líka.“
Hægfara þróun í þúsund ár
Heyskapur var með svipuðu móti
á Íslandi frá upphafi byggðar og
langt fram á 19. öldina en Bjarni
segir engu að síður að alltaf hafi ein-
hver þróun átt sér stað.
„Fyrstu þúsund árin hér á landi
virðast sáralitlar breytingar á verk-
háttum hafa orðið. Áhöldin eru svip-
uð en greina má þó einhverja þróun.
Þannig eru fyrstu áhöldin sem við
höfum upplýsingar um svipuð þeim
sem voru notuð í Vestur-Evrópu en
síðan virðist taka við sérstök þróun
hér á landi, séríslensk þróun, í takti
við þá landshætti sem einkenna ís-
lenska náttúru, þ.e. þúfurnar sem
einkenna íslenskt graslendi. Íslenski
ljárinn er af þeim sökum styttri en
margir hinna erlendu ljáa.“
Það er ekki fyrr en um 1870 sem
hingað til lands berast ensku ljáblöð-
in – bakkaljáir voru ljáir með þeim
nefndir.
Torfi Bjarnason, síðar skólastjóri
Búnaðarskólans í Ólafsdal, kynnti
ensku ljáblöðin fyrir Íslendingum og
þau urðu fljótt almenn hér á landi.
Koma ljáblaðanna um 1870 verður
að teljast ein mestu tímamót í ís-
lenskri búnaðarsögu og í hönd fór
nærri hálfrar aldar notkunarskeið
bakkaljáanna.“
Segir Bjarni að með hinum nýju
ljáum hafi sláttumenn afkastað mun
meiru og gömlu ljáirnir mjög brátt
heyrt sögunni til.
„Ensku ljáblöðin gerðu sláttinn
léttari, auðveldara var að halda þeim
beittum og afköstin jukust. Flestir
gömlu ljáirnir voru heimasmíðaðir
og því allur gangur á því hversu gott
handverkið var og efnisvalið. Þá var
það helst ef menn fundu gömul vopn
sem gott stál var í að hægt var að
gera góð verkfæri. Það gat þannig
verið happafengur að finna gamalt
sverð. Ólíkt nágrannalöndum okkar
varð hins vegar aldrei til sérhæfð
verksmiðjusmíði á ljáum hér á landi.
Hver og einn var að basla við þetta í
sinni sveit, þótt til hafi verið þeir
sem þóttu öðrum snjallari ljáa-
smiðir.“
Hesturinn og dráttarvélin
Notkun hesta við slátt var Íslend-
ingum ekki hulin aðferð en af spjall-
inu við Bjarna má ætla að landinn
hafi ekki tileinkað sér aðferðafræð-
ina með sama hætti og gerðist í ná-
grannalöndum okkar.
„Hestatímabilið var að sönnu til
staðar á Íslandi en vélfært og slétt
land var af skornum skammti.
Hestadráttarvélar breiddust því
hægt út en urðu algengar hér milli
1920 og 1930, þá fjölgaði þeim mikið
hérlendis.“
Með tilkomu dráttarvélanna
hverfur hesturinn af akrinum mjög
hratt og segist Bjarni helst hafa
tvær skýringar á hröðum breyt-
ingum upp úr 1930.
„Í seinni tíð hafa Íslendingar verið
fljótir að tileinka sér nýja tækni og
það gildir jafnt um dráttarvélina á
sínum tíma og tölvutæknina í dag.
Sjálfur held ég þó að hluta skýring-
arinnar sé að finna í því að Íslend-
ingar hafa alltaf verið miklir dýra-
vinir. Okkur hafi ekki fallið í geð
þessi dráttarhestanotkun, þ.e. að
beita hestum til erfiðisdráttar í jarð-
vinnslu eða við slátt. Ég held að hús-
mæður hafi því ekki sett sig upp á
móti því að bóndinn keypti dráttar-
vél.“
Vélvæðingin skall hratt á og var
flestum fagnaðarefni enda segir
Bjarni að gömlu handverkin hafi
ekki hentað öllum.
„Sláttur með orfi og ljá er mönn-
um misjafnlega gefinn en þegar þú
sest upp í dráttarvél þarftu ein-
göngu að valda vélinni því hún vinn-
ur svo verkið að mestu. Þannig börð-
ust t.d. menn um hverja dráttarvél
sem kom til landsins og sérstaklega
undir lok seinna stríðsins þegar
vinnuafl var að hverfa úr sveitum og
til annarra starfa þar sem annað-
hvort vantaði vinnuafl eða kaupið
var betra. Dráttarvélar með sláttu-
vélum komu þá sem lausn á þeim
vanda sem hafði skapast.“
Dráttarvélin var þó engin töfra-
Helsta heyskaparverkfærið
Bókin Íslenskir sláttuhættir eftir Bjarna Guðmundsson
segir sögu heyskapar á Íslandi frá orfi og ljá til dráttar-
véla Mikilvæg samantekt um menningararf sem hélt
lífi í þjóðinni í meira en þúsund ár
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Forréttindi Bjarni kynntist heyskap meðan heyskapur var enn handverk.
Þrælasláttur Á Hvanneyrarengjum um miðja síðustu öld. Hér búa fimmmenningarnir sig undir að slá í sama takti.
Óþekktar Húnvetnskar rakstrarkonur með hrífur á fyrri hluta síðustu ald-
ar. Eins og flestar rakstrarkonur kusu þær að taka með góða vettlinga.
Kátir karlar Í Breiðavík á árunum 1920-1923. Sláttumennirnir tveir til
vinstri og sá lengst til hægri, þeir Guðmundur Ólafsson, Jón Árnason og
Sveinn Benónýsson, bera orfin í hægri hendi. Miðjumennirnir, Baldvin Jóns-
son og Aðalsteinn Sveinsson, brýna og virðast nota Indian Pond-brýni.