Morgunblaðið - 02.11.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 02.11.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2015 Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is Aldrei hefur verið auðveldara að heyra Enn er bætt um betur með nýju ReSound heyrnartækjunum sem gefa eðlilega og áreynslulausa heyrn. Taktu þátt í framþróuninni og prófaðu þessa hágæða tækni. GOLDEN LOBE AWARDS 2014 ASSOCIATION OF INDEPENDENT HEARING HEALTHCARE PROFESSIONALS Most Innovative Concept 2014 presented to: Resound - LiNX made for iPhone Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Nautkálfar sem aldir hafa verið upp á úrvals heyi og kjarnfóðri að auki gáfu um 67 kílóa þyngra fall og kjötið flokkast auk þess betur, en naut sem eingöngu voru alin á úrvalsheyi. Nautum úr báðum flokkum Möðruvallatilraunarinnar 2014-2017 var slátrað í fyrradag. Það kom á óvart að stjarna tilraun- arinnar, nautið ÞórSari, var ekki með þyngsta fallið heldur Búði frá Búðarnesi sem auk þess gaf áber- andi besta kjötið. Þóroddur Sveinsson, lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands og stjórnandi tilraunarinnar, segir að kornkálfarnir skili um 75 þúsund króna tekjum umfram heykálfana við slátrun ríflega 19 mánaða gaml- ir. Eldistími ungnauta til kjötfram- leiðslu er með afbrigðum langur hér á landi, eða að jafnaði um 25 mánuðir á móti 16-17 mánuðum í eins kerfum í Norður-Evrópu. Möðruvallatilraunin gengur ekki síst út á það að ákvarða hámarks vaxtargetu íslenskra nauta og bera saman árangur og hagkvæmni mis- munandi fóðrunar. Keyptir voru kálfar og aldir í tveimur hópum, annars vegar í hefðbundnu eldi en þó með úrvalsheyi og hins vegar í sterku eldi þar sem kjarnfóðri er bætt við. 311 kíló á 19 mánuðum Stórum hópi var slátrað í vikunni og voru öll nautin ríflega 19 mán- aða. Meðalfallþungi kornnautanna reyndist 311 kg í þurrvigt og hey- nautanna 244 kg. Er þetta nálægt því sem að var stefnt. Munurinn er 67 kíló auk þess sem kjötið af korn- kálfunum flokkast betur. Þóroddur áætlar að það muni um 75 þúsund í tekjum þarna á milli. Eigi að síður hafa heynautin vax- ið vel, að mati Þórodds, og flokkun kjötsins af þeim reyndist einnig ágæt. Það sýnir að hans mati að bændur geti gert betur í ungn- autaeldinu en algengast er. Allt voru þetta kálfar af íslenska mjólk- urkúakyninu sem er undirstaðan í kjötframleiðslunni. Vitað er að holdanautablendingar vaxa mun hraðar. Niðurstöður hafa verið settar jafnóðum út á Facebook-síðu til- raunarinnar. Þóroddur segir skemmtilegt fyrir hann sem vís- indamann að finna hvað áhuginn hefur verið mikill og undirtektir góðar. Þóroddur tekur fram að enn eigi eftir að slátra nautum og afla frek- ari upplýsinga og síðan að vinna úr þeim. Til dæmis sé alveg eftir að reikna út át nautanna og kostnað við fóðrun þeirra. Telur hann of snemmt að ráð- leggja bændum um nautaeldi. „Þegar upplýsingarnar eru komnar fram getur hver og einn bóndi reiknað út hvað er hagkvæmast fyrir hann.“ Verð á heyfóðri og korni sé afar mismunandi og menn verði sjálfir að verðleggja það fóð- ur sem þeir hyggjast nota í eldið. ÞórSari stóðst ekki væntingar Það vekur athygli að nautið sem var þyngst á fæti frá upphafi, nr. 769, ÞórSari frá Torfum, var ekki með þyngsta fallið þegar upp var staðið. Nýja stjarnan kom ekki í ljós fyrr en nautin höfðu verið felld og skrokkarnir hengdir upp í slát- urhús. Þyngsta fallið reyndist vera naut númer 260, Búði frá Búðarnesi, sem vigtaði 332 kíló, 10 kílóum meira en ÞórSari. Búði var með áberandi bestu holdfyllinguna og flokkaðist kjötið langbest af kjöti allra naut- anna. Kjötið af ÞórSari náði ekki í úrvalsflokk. Kornnaut skila 75 þús- und kr. meira en heynaut  Búði var þyngri en ÞórSari er skrokkarnir voru vigtaðir Búði Naut númer 360 leyndi á sér þegar það var vigtað. Ljósmyndir/Þóroddur Sveinsson ÞórSari Skrokkurinn á þyngsta nautinu í Möðruvallatilrauninni stóð ekki undir væntingum. Sérstaklega vantaði upp á holdfyllingu á lærum. Oddviti Mýrdalshrepps bindur von- ir við að nú skapist aðstæður til að Umhverfisstofnun hefji uppbygg- ingu í þágu ferðafólks í Dyrhólaey. Áformin hafi strandað á deilum um eignarrétt á landinu. „Það er gríðarlega gott að hafa fengið hreina og klára niðurstöðu í þetta mál. Það hefði þurft að gera fyrir löngu,“ segir Elín Ein- arsdóttir, oddviti Mýrdalshrepps, um niðurstöðu Hæstaréttar um eignarhald á Dyrhólaey. Hæstirétt- ur dæmdi Mýrdalshreppi og sam- eigendum að Austurhúsum í Dyr- hólahverfi beinan eignarrétt að öllu landinu. Hið óskipta land Dyr- hólaeyjar skiptist þannig, sam- kvæmt bókun í sveitarstjórn að hreppurinn á 53,86% eyjarinnar, Matthildur Ólafsdóttir Valfells á 23,07%, Jón Valfells á 16,16% og Vigfús Ásgeirsson 6,91%. Sveitarstjórnin hefur falið sveit- arstjóra og oddvita að ganga nú þegar til viðræðna við sameig- endur hreppsins um stofnun sam- eignarfélags sem hafi það hlutverk að koma fram fyrir hönd landeig- enda um öll málefni eyjarinnar. Dyrhólaey er friðland í umsjón Umhverfisstofnunar og þangað koma hundruð þúsunda ferða- manna á ári. Aðstöðu er mjög ábótavant. Elín segir mikilvægast að lagfæra veginn út í eyjuna, gera bílstæði og göngustíga og koma upp salernisaðstöðu. Gert er ráð fyrir slíku á deiliskipulagi. helgi@mbl.is Ráðist verði í uppbyggingu STOFNA SAMEIGNARFÉLAG UM DYRHÓLAEY Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Töluvert magn af grjóti hrundi úr Kirkjufjörubjarginu á Lágey Dyr- hólaeyjar um helgina. Strax og hrunið uppgötvaðist fóru starfs- maður Umhverfisstofnunar og fulltrúi frá Veðurstofu Íslands á staðinn til að meta ástandið, hvort hætta væri á frekara hruni. Lögreglan var beðin um að loka svæðinu, bæði þar sem hrunið átti sér stað og við fjöruna, með lög- regluborðum. „Næsta skref er að fá þessar upp- lýsingar frá Veðurstofunni og hafa samband við lögregluna og almanna- varnanefnd svæðisins og fá þá til að meta stöðuna,“ segir Ólafur Arnar Jónsson, sviðsstjóri hjá Umhverf- isstofnun. Hann segir að tvennt sé í stöðunni. Loka svæðinu algjörlega með skilti og hindrunum, jafnvel borða, en sé ekki ástæða til þess verði farið í fjöruna með skilti og ábendingar. Jón Björnsson, svæðalandvörður á Suðurlandi, sagði í samtali við mbl. að fólk mætti eiga von á frekara hruni á næstunni. „Brúnin ofan bjargsins er töluvert mikið sprungin svo við reiknum með því að meira eigi eftir að hrynja – frekar fyrr en síðar,“ sagði hann og bætti við: „Við viljum því hvetja fólk eindregið til þess að halda sig fjarri bjarginu og vera ekki að þvælast um í fjörunni á meðan ástandið er svona.“ Fundað verður í dag um fram- haldið. Ljósmynd/ Birgir Örn Sigurðsson Hætta á ferð Fólk er eindregið hvatt til að halda sig fjarri bjarginu enda er hætta á frekara hruni. Brúnin ofan bjargsins er töluvert mikið sprungin. Tveir mögu- leikar í stöðunni  Mikið grjóthrun við Dyrhólaey Húsfyllir var á málþingi ADHD- samtakanna í Gamla bíói um helgina. Yfirskriftin var „Leik- skólar og ADHD, að skilja – styðja og styrkja.“ Tæplega 180 manns voru skráðir þátttakendur. Dag- skráin fjallaði að stórum hluta um hvernig hægt er að vinna með börn- um á leikskólaaldri og hvernig hægt er að koma til móts við þeirra þarfir. Elín H. Hinriksdóttir, formaður samtakanna, setti þingið. Í setning- arræðu sinni sagði hún meðal ann- ars að koma yrði til móts við börnin þar sem þau væru stödd. „ADHD-samtökin hafa fundið fyrir að vandinn er mikill og til samtakanna leita iðulega foreldrar sem eru orðnir úrkula vonar um að fá þjónustu fyrir barnið sitt. Markmið okkar á í fyrsta lagi að vera að útrýma biðlistum. Í öðru lagi að stytta biðtíma og veita við- unandi aðstoð, greiningu og með- ferð innan mjög skamms tíma. Í stóra samhenginu er um litla upp- hæð að ræða,“ sagði Elín. Foreldrar í vanda leita til ADHD-samtakanna Morgunblaðið/Ómar Formaður Elín sagði í ræðu sinni að mark- mið samtakanna væri að útrýma biðlistum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.