Morgunblaðið - 02.11.2015, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.11.2015, Blaðsíða 15
AFP Fagnað Blysum var brugðið á loft. Skúli Halldórsson sh@mbl.is AKP-flokkur forsetans Recep Tayy- ip Erdogan hlaut í kringum 50% at- kvæða í þingkosningum sem fram fóru í Tyrklandi í gær. Atkvæðin tryggja flokknum 315 sæti á þinginu sem telur 550 þingmenn og ætti hann því nú að geta myndað ríkis- stjórn án erfiðleika. „Dagurinn í dag er dagur sigurs,“ sagði forsætisráðherrann Ahmet Davutoglu við fagnandi stuðnings- menn í heimabæ sínum. „Og tyrk- neska þjóðin á þennan sigur.“ Kom mörgum í opna skjöldu Davutoglu kallaði eftir samheldni í landinu, sem hefur verið í ójafnvægi eftir ofbeldisöldu Kúrda og blóðugar sjálfsmorðsárásir. Þá hafa áhyggjur vaxið um fallvaltan efnahags lands- ins og það sem gagnrýnendur segja vera einræðisstjórn Erdogans. Niðurstöður kosninganna komu mörgum í opna skjöldu. Skoðana- kannanir höfðu gert ráð fyrir álíka niðurstöðum og urðu í kosningunum í júní síðastliðnum, þegar AKP hlaut aðeins 40% atkvæða og missti þá meirihluta sinn í fyrsta skipti í 13 ár. „Það er ég eða glundroði“ Sérfræðingar segja að svo virðist sem kjósendur hafi snúið baki við flokkum þjóðernissinna og Kúrda. „Erdogan reið ofbeldisölduna aft- ur til valda,“ segir Aykan Erdemir, fyrrverandi þingmaður Tyrkja sem starfar hjá Lýðræðisverndarstofn- uninni í Washington, í samtali við fréttaveitu AFP. Skýrt kom fram í gærkvöldi hvaða áskorun komandi ríkisstjórn stendur helst frammi fyrir, þegar í brýnu sló á milli lögreglu og mótmælenda í meginborg Kúrda í Tyrklandi, Diy- arbakir. Í kosningabaráttunni lýsti Erdo- gan því yfir að aðeins hann og hans tryggi forsætisráðherra, Ahmet Davutoglu, gætu tryggt öryggi Tyrkja. Ferðaðist hann vítt og breitt um landið með skilaboðin: „Það er ég eða glundroði.“ Óttast allsherjarstríð í landinu Hið pólitíska landslag hefur enda gjörbreyst frá því í júní síðastliðn- um. Æ skýrari línur hafa verið dregnar í landið eftir bæði þjóð- og trúbrotum og vandinn sem við því blasir vex dag frá degi. Margir Tyrkir óttast að allsherj- arstríð muni brjótast út á ný gegn uppreisnarsinnum í hinum út- læga Verkamannaflokki Kúrda, PKK. Hættan á frekari sjálfsmorðsárás- um varpaði einnig skugga sínum á kosningarnar eft- ir röð slíkra árása sem kenndar hafa verið við Ísl- amska ríkið, meðal annars þá sem varð 102 mönnum að bana í Ankara í októ- ber. Erdogan reið ofbeldisölduna til valda  AKP-flokkurinn hlaut um helming atkvæða í tyrknesku þingkosningunum  Óeirðir í kjölfar úrslita FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2015 Skúli Halldórsson sh@mbl.is Rússneska farþegaþotan, sem brot- lenti í Egyptalandi á laugardag með þeim afleiðingum að allir um borð létust, virðist hafa brotnað í sundur í miðju flugi og þannig sáldrað braki á víð og dreif um stórt svæði. Rússneska fréttastofan RIA-No- vosti hefur þetta eftir Viktor Soro- chenko, sem fer fyrir alþjóðlegri nefnd sem skipuð hefur verið til að rannsaka orsakir flugslyssins. Segir Sorochenko að enn sé þó of snemmt að draga af þessu nokkrar álykt- anir. Angaði af bráðnuðum málmi Flugriti vélarinnar hefur verið fundinn og segir í tilkynningu frá egypsku ríkisstjórninni að upplýs- ingar hans séu nú til rannsóknar. Fréttaritari AFP segir vettvang brotlendingarinnar vera þakinn svertu braki úr vélinni. Angaði loftið af bráðnuðum málmi þegar hann kom þar við í gærdag. Engar líkamsleifar voru sjáanleg- ar en til hliðar stóðu hermenn vörð um tugi poka og ferðatöskur farþeg- anna. Skammt þar frá lá ofurlítill rauður jakki, líklega af barni, sem gaf enn aðra vídd þessum hryllingi sem hrifsaði til sín líf 17 barna. Átta kílómetra frá brakinu Leitarmenn hafa fundið lík 168 farþega af þeim 224 sem um borð voru. Eitt þeirra var af þriggja ára stúlku sem fannst átta kílómetra frá meginbraki vélarinnar. Fánar blöktu í hálfa stöng víða í Rússlandi í gær en stjórnvöldu lýstu því yfir að gærdagurinn væri dagur þjóðarsorgar vegna slyssins. Ekki marktækar fullyrðingar Yfirvöld í bæði Kaíró og Moskvu hafa dregið í efa sannleiksgildi yf- irlýsingar Íslamska ríkisins í Egyptalandi um að samtökin hafi skotið þotuna niður. Forsætisráð- herra Egypta, Sharif Ismail, segir sérfræðinga hafa staðfest að víga- mennirnir gætu ekki hafa skotið niður þotu í 30 þúsund feta hæð. Þá segir samgönguráðherra Rússa, Maxim Sokolov, að ekki sé hægt að taka mark á fullyrðingu samtak- anna. Fjölmörg stór flugfélög, þar á meðal Lufthansa, Emirates og Air France, hafa sagst munu hætta að fljúga yfir Sínaí-skagann á meðan orsakir slyssins eru enn til rann- sóknar. Þotan, sem var á vegum rússneska félagsins Kogalymavia, missti samband við flugumferðar- stjórn 23 mínútum eftir flugtak frá Sharm el-Sheikh flugvellinum. Ólíkar meiningar um samskipti Egypskur flugumferðarstjóri full- yrðir að flugstjóri þotunnar hafi sagst eiga í vandræðum með fjar- skipti. Flugmálaráðherrann Moha- med Kamal segir hins vegar að samskiptin hafi verið „eðlileg“. „Það var ekkert óvanalegt […] og flugstjórinn bað ekki um leyfi til að breyta um stefnu,“ hefur AFP eftir ráðherranum. Spurningar vakna um öryggi Öryggi rússneskra flugfélaga hef- ur lengi þótt mjög ábótavant. Og jafnvel þó stærri flugfélög séu byrj- uð að endurnýja flota sína getur slysið orðið til að vekja spurningar varðandi öryggi lítilla flugfélaga á borð við Kogalymavia. Flugmálaeft- irlit Rússlands, Rostransnadzor, skipaði félaginu í gær að kanna ástand allra véla sömu gerðar og þeirrar sem fórst, en tegundin nefn- ist A-321 og er framleidd af Airbus. Harmleikur í Egyptalandi  224 létust þegar rússnesk farþegaþota brotlenti á Sínaí-skaga  „Árás eða slys?“ spyrja Rússar sem syrgðu hina látnu í gær  Ber Íslamska ríkið ábyrgð? Flug KGL9268 » Þotan flaug af stað frá Sharm el-Sheikh klukkan sex á laugardagsmorgun. » Um borð í vélinni voru 213 Rússar, 4 Úkraínumenn og a.m.k. einn Hvít-Rússi. » 22 mínútum síðar hvarf hún af ratsjám, í 31 þ. feta hæð. » Herþotur Egypta staðsettu brakið í kjölfarið, skammt sunnan við Miðjarðarhafið. » Deildar meiningar eru um hvort flugstjórinn hafi látið í ljós vandamál fyrir slysið. » Egyptar munu leiða rann- sóknina með aðstoð Rússa og alþjóðlegra sérfræðinga. AFP Auðn Egypskir hermenn standa vörð um eigur farþega. Brakið dreifðist um stórt svæði og fannst lík einnar stúlku átta kílómetra frá meginbrakinu. AFP Þjóðarsorg Merkisfáni rússneska forsetaembættisins blakti í hálfa stöng á þaki Kreml í gær. Gærdagurinn var dagur þjóðarsorgar þar í landi. Hafist hefur verið handa við að reisa fyrstu varanlegu herstöð Breta í Mið-Austur- löndum síðan árið 1971. Utanríkis- ráðherra Breta, Philip Hammond, tók á laugardag þátt í athöfn í Barein sem markar upphaf bygging- arinnar. Stöðin, sem nefnast mun HMS Juffair, verður reist til að styðja bet- ur við sjóher Breta í Persaflóa og sagði Hammond við athöfnina að bygging hennar sýndi í verki skuld- bindingu Bretlands við þennan heimshluta. „Konunglegi sjóherinn er kominn til að vera í Barein, sem tryggir áframhaldandi veru Breta austan við Súes-skurðinn,“ sagði Hammond við tilefnið. „Nýja herstöðin mun hjálpa Bretlandi að vinna með bandamönnum sínum að því að koma á stöðugleika í Persaflóanum og víðar.“ Þá fullyrti Hammond við lok ræðu sinnar í Barein að baráttan gegn öfgum íslamista væri „stærsta áskorun okkar tíma“. Bretar reisa herstöð í Barein  Öfgar íslamista „stærsta áskorun okkar tíma“ Philip Hammond Leiðtogar Japans, Kína og Suður- Kóreu segjast hafa „algjörlega endurnýjað“ við- skipta- og örygg- issamvinnu sína. Kemur þetta fram í tilkynningu eftir fund þeirra þriggja sem fór fram í Seúl um helgina, í fyrsta skipti síðan árið 2012. Þá hyggjast þeir funda reglu- lega á ný eftir 3 ára hlé þar á. Fundi leiðtoganna var ætlað að losa um einhverja þá spennu sem myndast hefur undanfarin ár, meðal annars vegna deilna um yfirráða- svæði. Samkvæmt fréttaritara BBC í Seúl virðist sem það hafi tekist að einhverju leyti. Losuðu um spennuna Park Geun-Hye forseti S-Kóreu. Hinn 61 árs gamli Erdogan hefur gnæft yfir stjórnmálasenu Tyrk- lands í rúman áratug og er oft kallaður „Soldáninn“. Í upphafi var hann lofaður af Vestur- löndum fyrir að búa til það sem eitt sinn var kallað fyrirmyndar lýðræðisríki múslima. Undan- farið hefur hann hins vegar verið sakaður um ítrekuð brot gegn andstæðingum sínum og gagnrýnum fjöl- miðlum landsins. Sakaður um ítrekuð brot UMDEILDUR SOLDÁN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.