Morgunblaðið - 02.11.2015, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.11.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Kristinn Björnsson, fv. forstjóri Skeljungs, lést laugardaginn 31. októ- ber sl. eftir skammvinn veikindi, 65 ára að aldri. Kristinn fæddist í Reykjavík 17. apríl 1950, sonur Björns Hallgrímssonar for- stjóra og Emilíu Sjafn- ar Kristinsdóttur hús- freyju. Kristinn ólst upp í Reykjavík og varð stúdent frá MR 1970. Hann lauk lögfræði- prófi frá Háskóla Íslands 1975 og varð héraðsdómslögmaður tveimur árum síðar. Hann starfaði sem lög- fræðingur hjá borgarverkfræðingi Reykjavíkurborgar 1975-1976 og rak lögmannsstofu ásamt Gesti Jónssyni hrl. og síðar Hallgrími B. Geirssyni hrl. frá 1976-1982. Kristinn varð forstjóri Nóa- Síríusar og Hreins hf. árið 1982 og gegndi því starfi til 1990 er hann var ráðinn forstjóri Skeljungs. Kristinn lét af störfum hjá Skeljungi að eigin ósk haustið 2003. Frá árinu 2005 var hann einn eigenda fyrirtækisins Líflands ehf. og starfandi stjórnarformaður þess. Kristinn gegndi ýmsum trúnaðar- störfum fyrir atvinnu- rekendur og samtök þeirra. Hann sat í stjórn Félags ís- lenskra iðnrekenda á árunum 1983-1990 og var varaformaður um skeið, átti sæti í stjórn og fram- kvæmdastjórn Versl- unarráðs Íslands 1986-1996, í stjórn og samningaráði Vinnuveitenda- sambands Íslands 1988-1999 og varaformaður á árunum 1992-1995. Við stofnun Samtaka atvinnulífsins árið 1999 settist hann í stjórn og framkvæmdastjórn og sat þar um árabil. Á sínum yngri árum var Kristinn virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins. Átti hann sæti í stjórn Heimdallar 1973-1975, var varaformaður Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, og var í stjórn SUS 1983-1985. Kristinn var formaður Baldurs, fé- lags ungra sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi, árin 1979-1981 og formaður fulltrúaráðs sjálfstæðis- félaganna á Seltjarnarnesi 1983- 1985. Þá var hann um skeið í fjármálaráði Sjálfstæðisflokksins. Kristinn sat í stjórnum fjölda fyr- irtækja, eins og hjá H. Benedikts- syni, Nóa-Síríusi , Sjóvá, Eimskip, Haraldi Böðvarssyni hf., Hraðfrysti- húsi Eskifjarðar, Hans Petersen, Plastprenti, Straumi fjárfestinga- banka hf. og Líflandi ehf. Eftirlifandi eiginkona Kristins er Sólveig Pétursdóttir, fv. þingmaður Sjálfstæðisflokksins, dómsmála- ráðherra og forseti Alþingis. Eign- uðust þau þrjú börn; Pétur Gylfa, Björn Hallgrím og Emilíu Sjöfn. Björn Hallgrímur og kona hans, Herborg H. Ingvarsdóttir, eiga fjög- ur börn; Ingu Bríeti, Kristin Tjörva, Einar Ísak og Markús Braga. Kristinn átti sæti í stjórn Árvak- urs, útgáfufélags Morgunblaðsins, á árunum 2005-2008. Morgunblaðið þakkar Kristni störf í þágu blaðsins og sendir fjöl- skyldu hans og öðrum aðstand- endum innilegar samúðarkveðjur. Andlát Kristinn Björnsson Davíd Bartimej Tencer var á laug- ardag vígður biskup yfir Reykja- víkurbiskupsdæmi kaþólsku kirkj- unnar. Nýverið samþykkti páfi afsögn Péturs Bürcher af heilsu- farsástæðum, en hann hafði þá gegnt biskupsstöðu í 21 ár. Davíd er fæddur árið 1963 í Nová Baòa í Slóvakíu. Hann hlaut prest- vígslu 15. júlí 1986. Hann kom til Ís- lands árið 2004, var skipaður að- stoðarprestur í Maríusókn í Breiðholti í Reykjavík og hóf um leið íslenskunám. Árið 2007 var hann skipaður sóknarprestur í sókn heilags Þorláks á Reyðarfirði. Davíd segir í samtali við Morgun- blaðið að nú taki við skipulagning og undirbúningur fyrir ár misk- unnarinnar sem páfi hefur mælt fyrir um að eigi að hefjast 8. desem- ber. Þá segir hann sín markmið snúast fyrst og fremst um að efla kaþólsku kirkjuna hér á landi og nefnir byggingu kirkna að kaþ- ólskum sið. Talsvert hefur fjölgað í söfnuðinum á undanförnum árum. isak@mbl.is Tencer tekinn við sem biskup kaþólskra á Íslandi Nýr biskup í nyrsta biskupsdæmi kaþólskra Ljósmynd/Lárus Bjarnason Vígsla Pétur Bürcher, til hægri á myndinni, vígir Davíd Bartimej Tencer. Greiningardagur fór fram í Þjóð- minjasafninu í gær. Þar gafst lands- mönnum tækifæri til að fá gripi sína greinda eftir aldri, efni og upp- runa. Safnið getur þá um leið skráð upplýsingar um þá gripi sem eru til á heimilum landsmanna. Á myndinni hér að ofan má sjá silfurmuni þeirra Kristínar Höllu Jónsdóttur og Sigurðar B. Þor- steinssonar. Gripirnir eru frá árinu 1845, smíðaðir í Lundúnum og inni- halda 92,5% hreint silfur. Þeir komu til landsins á árum seinni heimsstyrjaldarinnar en það var faðir Sigurðar, Þorsteinn Eyjólfs- son úr Hafnarfirði, sem kom með þá hingað til lands. Var hann stýri- maður á togara sem sigldi með fisk til Bretlands þar sem hann keypti gripina en þeir hafa verið fjöl- skyldustolt æ síðan. Komu á safnið með silf- urmuni frá árinu 1845 Morgunblaðið/Eggert Silfrið Þór Magnússon, fv. þjóðminjavörður, greinir silfurmuni Kristínar Höllu Jónsdóttur og Sigurðar B. Þorsteinssonar en þeir eru frá 1845. Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Sena, stærsti útgefandi tónlistar á Íslandi, mun aðeins gefa út tíu geisladiska fyrir jólin. Þar af eru sex nýir og restin safnplötur. Er þetta talsverð fækkun frá fyrri ár- um og endur- speglar aukna aðsókn Íslendinga í streymiveitur eins og Spoti- fy. Ísleifur Þórhallsson, fram- kvæmda- stjóri tónlist- ar- og viðburðasviðs Senu, segir fyrirtækið einfaldlega vera að bregðast við því að geisla- diskasala hafi farið minnkandi á síðustu árum. Lengra komið í Skandinavíu „Sena sem fyrirtæki er með nokkrar deildir og starfsemi á ýms- um sviðum. Það þarf ekki að hafa áhyggjur af okkur, en það má velta fyrir sér þeirri stöðu sem tónlistar- menn eru í á meðan þessar breyt- ingar ganga yfir. Við fórum í það að halda tónleika og viðburði þegar geisladiskasala fór að dragast sam- an, en við sáum í hvað stefndi fyrir tíu árum. Tónlistin er í dag senni- lega um 8% af okkar rekstri,“ segir Ísleifur og bætir við að í Skandin- avíu sé þróunin lengra komin. Þar er stærra hlutfall neytenda áskrif- endur að streymiveitum á netinu en á Íslandi. Aðspurður segir Ísleifur að geisladiskaútgáfan í ár sé frekar miðuð að eldri neytendum. Þeir kaupa geisladiska frekar en unga kynslóðin, sem er í meira mæli komin yfir á netið. Sena hefur tekið eftir því að tónlist sem er miðuð að ungu fólki selst ekki vel í geisla- diskaforminu. Diskum fækkar um jólin  Sena gefur aðeins út tíu geisladiska Geisladiskar Víkja fyrir streymiveitum. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Enginn aukakostnaður er fyrir Land- spítalann að ráða erlenda geislafræð- inga til starfa á spítalanum. Þeir sem koma hingað til lands munu hafa aðgang að herbergjum sem spítalinn á þangað til þeir finna sér sína eigin íbúð. „Þetta eru geislafræðingar sem koma inn á sömu kjörum og aðrir,“ segir Óskar Sesar Reykdalsson, framkvæmda- stjóri rannsóknarsviðs á Landspítal- anum. „Við reynum að aðstoða þessa einstaklinga við leit að húsnæði sem spítalinn á en sumir finna sér húsnæði strax.“ Þarf að tryggja réttindi Þegar starfsfólk kemur frá útlönd- um þarf spítalinn að taka á móti fólk- inu, skrá það í landið og vinna töluvert með því. Það þarf að tryggja réttindi þess á Íslandi og m.a. hafa samráð við Landlæknisembættið. Mikil óánægja er meðal félagsmanna í Félagi geisla- fræðinga með að sex geislafræðingar hafi ekki fengið endurráðningu eftir að hafa sagt upp störfum í verkfalli BHM. Sautján geislafræðingar sem störf- uðu í 14 stöðugildum hættu störfum á sjúkrahúsinu í verkfallinu. Fjórtán sóttu um þegar störfin voru auglýst, innlendir og erlendir geislafræðingar. Verið að henda verðmætum Katrín Sigurðardóttir, formaður Félags geislafræðinga, sagðist í Morgunblaðinu sl. laugardag hafa heimildir fyrir því að átta erlendir geislafræðingar myndu koma til starfa. Sagði Katrín mikillar óánægju gæta á meðal félagsmanna með þetta fyrirkomulag. „Við eigum ekki orð yf- ir það hvernig er verið að henda verð- mætum.“ Páll Matthíasson, forstjóri spítal- ans, sagði í vikulegum pistli sínum að spítalans biðu ærin verkefni. „Þannig bíða þúsundir aðgerða á biðlistum, það tekur tíma að ná sátt í starfs- mannahópnum á ný og ná fullum af- köstum.“ Enginn auka- kostnaður fyrir Landspítalann  Útvega erlendu starfsfólki húsnæði Óskar Reykdalsson Í Talnabrunni Landlæknisemb- ættisins í október var áfengis- neysla lands- manna skoðuð frá 2007-2012. Litlar breytingar urðu en þó má sjá örlitla niður- sveiflu í könnuninni árið 2009 og má ætla að um áhrif efnahags- hrunsins sé að ræða. Þegar Íslendingar neyta áfengis virðast langflestir drekka 1-3 sinn- um í mánuði. Karlar drekka mun meira en konur í öllum aldurs- hópum. Á þetta við um öll árin. Heldur dregur saman í ölvunar- drykkju milli kynjanna í yngsta ald- urshópnum. Konur og eldra fólk virðast vera að auka ölvunar- drykkju á meðan áfengisneysla karla í yngri hópunum virðist sveiflast lítillega eða vera stöðug. Heildarsala áfengis var nokkru meiri árið 2007, eða 7,5 lítrar af hreinum vínanda, 6,9 lítrar árið 2009 og tæplega sjö lítrar árið 2012. Áfengisþorstinn minnkaði við hrunið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.