Morgunblaðið - 04.11.2015, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 4. N Ó V E M B E R 2 0 1 5
Stofnað 1913 259. tölublað 103. árgangur
SJÁLFALA UNG-
MENNI, GRIMMD
OG GÆSKA
LEIKUR
AF FÆRNI
Á HANG
TVEGGJA TURNA
HJAL CURVERS
OG EINARS
DELAGO Á AIRWAVES 38 ÓMSTRÍÐIR SAMAN 41KOPARBORG RAGNHILDAR 10
Morgunblaðið/Eva Björk
Skuldsett Höfuðstöðvar RÚV í Efstaleiti.
Magnús Geir Þórðarson útvarps-
stjóri segir að brugðist verði við
þeirri fullyrðingu þingmannsins
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar í Morg-
unblaðinu í gær að stjórnendur RÚV
hafi veitt fjárlaganefnd rangar upp-
lýsingar síðastliðið vor.
Guðlaugur Þór birti tölvupósta
máli sínu til stuðnings en hann er
varaformaður fjárlaganefndar.
„Við teljum eðlilegt, fyrst þessi
staða er komin upp vegna fullyrð-
inga þingmannsins, að kallað sé eftir
afstöðu fjármálaráðuneytisins sem
getur skýrt hver staða málsins er,“
sagði Magnús Geir.
Páll Magnússon, fyrrverandi út-
varpsstjóri, segir húsnæði RÚV þre-
falt stærra en stofnunin þarf.
Hann segir ekki hafa tekist að
draga úr útgjöldum RÚV. »16 og 18
Útvarpsstjóri boðar
athugun vegna full-
yrðinga þingmanns
Fjármál borgarinnar
» Útlit er fyrir 13,4 milljarða
halla á A-hluta borgarsjóðs á
yfirstandandi ári.
» Gjaldskrár eiga að hækka að
jafnaði um 4,9% á næsta ári.
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Viðvarandi halli aðalsjóðs Reykja-
víkurborgar bendir til þess að skatt-
og þjónustutekjur standi ekki undir
rekstri málaflokka borgarinnar til
lengri tíma. Þetta kemur fram í
greinargerð með frumvarpi til fjár-
hagsáætlunar, sem meirihlutinn
kynnti á borgarstjórnarfundi í gær.
Útkomuspá A-hluta rekstrarins
gerir ráð fyrir að launaútgjöld í ár
aukist um 8,3% frá síðasta ári sem er
talsvert umfram forsendur um vísi-
tölu launa. Þar segir að hækkunina
megi einkum rekja til þess að á árinu
kom til framkvæmda endurskoðun á
starfsmati sem náði til 64,8% starfs-
manna Reykjavíkurborgar.
Í inngangi að greinargerðinni seg-
ir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
að launa- og rekstrarkostnaður muni
verða dreginn saman á næstu þrem-
ur árum. Í samtali við Morgunblaðið
segir hann að uppsagnir muni heyra
til undantekninga.
Halldór Halldórsson, oddviti
Sjálfstæðisflokks, segir áætlun
meirihlutans varasama og að staðan
á rekstri borgarinnar sé skelfileg.
Viðvarandi halli í borginni
Tekjur standi ekki undir rekstri málaflokka til langs tíma Borgarstjóri segir
að launakostnaður verði lækkaður Oddviti Sjálfstæðisflokks segir aðhald skorta
M 13,4 milljarða halli »4
Morgunblaðið/Ómar
Álver Heimsmarkaðsverð á áli er nú
komið niður í 1.480 dali á tonnið.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það stendur nú yfir atkvæða-
greiðsla um að boða til ótímabundins
allsherjarverkfalls 2. desember,“
segir Ólafur Teitur Guðnason, upp-
lýsingafulltrúi Rio Tinto Alcan á Ís-
landi, en stjórnendur álversins í
Straumsvík hafa ítrekað bent á að
komi til verkfalls geti það leitt til lok-
unar fyrirtækisins. „Það segir sig
sjálft, ef ekki eru starfsmenn í verk-
smiðjunni þá er engin álframleiðsla.“
Álverið í Straumsvík, sem og önn-
ur álver víða um heim, tekst á við
fleiri vandamál og má þar helst
nefna hinar miklu sveiflur sem verið
hafa í heimsmarkaðsverði á áli.
Í byrjun þessa árs var heims-
markaðsverð komið yfir 2.100
Bandaríkjadali á tonnið en er nú
komið niður í um 1.480 dali. Hafa
m.a. vegna þessa alþjóðlegu álfram-
leiðendurnir Alcoa, sem á Fjarðaál,
og Century Aluminum Company,
eigandi Norðuráls, dregið saman
seglin vestanhafs. Fjarðaál og Norð-
urál segja engar breytingar fyrir-
hugaðar hjá þeim. »22
Glíma við lækkandi álverð
Allsherjarverkfall gæti orðið í Straumsvík í næsta mánuði
Kátir krakkar frá leikskólanum Rauðuborg í
Árbæ voru að leik við Rauðavatn í gær klædd
gulum vestum yfir kuldafötin þegar ljósmyndara
Morgunblaðsins bar að garði. Þessi drengur var
að tína steina og setja í poka fyrir verkefni sem
börnin eru að fara að gera í leikskólanum.
Góða veðrið nýtt við Rauðavatn
Morgunblaðið/Eva Björk
Leikskólabörn söfnuðu í poka fyrir verkefni
Hafin er bygg-
ing íbúða á
Tálknafirði eftir
margra ára hlé.
Hús var byggt
rétt fyrir hrun en
þá hafði verið
áratuga hlé.
Fasteignafélagið
101 Tálknafjörð-
ur byggir tvö
raðhús með sam-
tals fjórum íbúðum. Tvær þær
fyrstu verða væntanlega afhentar
leigjendum á komandi vori. Skort-
ur hefur verið á íbúðarhúsnæði
vegna fjölgunar í kjölfar uppbygg-
ingar fiskeldis. »17
Fiskeldisbylgjan
kallar á íbúðarhús
Lax Unnið við slátr-
un hjá Fjarðalaxi.
Í innanríkis-
ráðuneytinu er
unnið að frum-
varpi um hler-
anir. Ólöf Nordal
innanríkis-
ráðherra segir
að verið sé að
mæta þeirri
gagnrýni sem
fram hefur kom-
ið á framkvæmd hlerana á Íslandi.
Margsinnis hafa verið gerðar til-
raunir til þess að gera úrbætur á
framkvæmd hlerana hérlendis. Síð-
asta stjórnarfrumvarp þess efnis
sofnaði í þinginu 2012. »12
Unnið að frumvarpi
um hleranir
Ólöf Nordal
Ný rannsókn
sem birtist í BMC
Public Health-
ritinu í gær sýnir
að mest er reykt
í íslenskum kvik-
myndum. Skoð-
aðar voru um 840
bíómyndir víðs-
vegar að úr
heiminum, m.a. Bandaríkjunum og
Evrópu, sem gerðar voru á árunum
2004-2009. Kom í ljós að reykingar
voru sjáanlegar í 94% íslenskra
mynda frá þessu tímabili. Reyk-
ingar voru algengari í myndum
sem framleiddar voru öðrum lönd-
um en í Bandaríkjunum en minnst
sást þó af reykingum í hollenskum
myndum.
Mest reykt í íslensk-
um bíómyndum