Morgunblaðið - 04.11.2015, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Austurríski tónlistarmaðurinn Manu
Delago heldur tónleika með hljóm-
sveit sinni Handmade á Iceland
Airwaves í nótt, tuttugu mínútur yf-
ir miðnætti, í Norðurljósasal Hörpu.
Delago er klassískt menntaður slag-
verksleikari, nam einnig djass-
trommuleik og tónsmíðar í Lund-
únum og hefur hin síðustu ár vakið
mikla athygli fyrir ótrúlega færni
sína á svissneska hljóðfærið hang.
Framleiðsla á því hófst um síðustu
aldamót og minnir hljóðfærið á stál-
trommu, bæði hvað hljóm varðar og
útlit. Líkt og tvær stáltrommur hafi
verið bræddar saman.
Myndband sem Delago tók af sér
og setti á YouTube árið 2008 vakti
afar mikla athygli á sínum tíma og
hefur nú verið skoðað yfir fimm
milljón sinnum. Í því sést hann flytja
eigið verk á hang af mikilli fimi og
vakti myndbandið m.a. athygli
Bjarkar Guðmundsdóttur sem fékk
Delago til liðs við sig í Biophilia-
verkefnið og síðar Vulnicura. Delago
segist fyrst hafa séð hang hljóðfærið
á netinu fyrir 12 árum. Á þeim tíma
lék hann einkum á trommur, mar-
imba og píanó en segist hafa heillast
af hljóminum í hang og möguleikum
hljóðfærisins. „Það var eins og öll
hljóðfærin sem ég hafði leikið á
kæmu saman í því,“ rifjar hann upp.
Hann hafi æft sig af kappi og á end-
anum hafi hang orðið eitt af aðal-
hljóðfærunum sem hann leikur á og
það hljóðfæri sem hann er þekkt-
astur fyrir að leika á.
Stórkostleg reynsla
– Þú ert einn af fyrstu þekktu
hang-leikurum heimsins, er það ekki?
„Jú og ég sá tækifæri í því. You-
Tube var að hefja göngu sína um
það leyti sem ég fór að spila á það,
2006 og það hjálpaði mér og öðrum
hang-leikurum að koma okkur á
framfæri. YouTube var þá vett-
vangur fyrir áhugamenn, einka-
myndbönd fólks og stóru plötufyr-
irtækin voru ekki komin á vefinn
eins og núna,“ segir Delago. Hann
hafi ekki órað fyrir því hversu vin-
sælt myndbandið hans yrði. „Þetta
er bara myndband af mér að spila,“
segir hann hógvær.
– Og þannig kom Björk auga á
þig. Ef hún hefði ekki séð þetta
myndband hefðir þú kannski ekki
spilað með henni, eða hvað?
„Ætli það ekki, ég veit það ekki.
Kannski hefði hún komið auga á mig
með öðrum hætti. En myndbandið
hjálpaði vissulega til.“
– Hvernig var að vinna með
Björk?
„Það var stórkostleg reynsla. Ég
hlustaði mikið á tónlistina hennar
þegar ég var táningur og hafði mik-
ið dálæti á henni. Það var frábært
að vinna með henni og hvetjandi,
hún er magnaður listamaður,“ seg-
ir Delago. Spurður að því hvort
Björk hafi haft áhrif á tónsmíðar
hans segir Delago að allir þeir tón-
listarmenn sem hann hafi unnið
með hafi gert það. „En jú, Björk
veitti mér vissulega mikinn inn-
blástur og það sem mér finnst
áhugaverðast við hana er að list-
sköpunin snýst ekki bara um tón-
listina heldur líka hið sjónræna,
búningana, lýsinguna, myndböndin
o.fl.,“ segir Delago.
– Hjálpaði samstarf ykkar til við
að vekja athygli á þér og hljómsveit-
inni þinni?
„Já, ég myndi segja það. Hún er
þekkt um allan heim og það er ekki
slæmt að vera tengdur henni. Sumir
tónlistarmenn eru alltaf tengdir öðr-
um og þá oftast ákveðinni tegund
tónlistar en ef maður vinnur með
Björk á það ekki við því tónlistin
hennar nær yfir svo vítt svið.“Del-
ago og hljómsveit hans munu á tón-
leikunum í nótt leika lög af nýút-
kominni plötu Delago, Silver
Kobalt, sem er sú níunda sem hann
sendir frá sér. Delago segir lög plöt-
unnar ýmist með söng eða án og
nokkuð sé um rafdrifna takta. „Ég
er hrifinn af því að blanda saman
raftónlist, djassi og klassík; er með
básúnu, fiðlu og píanó,“ segir hann
um tónlistina á plötunni. Sem betur
fer þurfi hann ekki að flokka tónlist-
ina í ákveðinn stíl, þurfi ekki að
stinga henni í einhverja tiltekna
skúffu. Aðrir geti gert það.
Delago og Handmade hafa haldið
um 50 tónleika í Evrópu það sem af
er ári til að kynna plötuna og segir
hann að í desember og janúar á
næsta ári verði tónleikaferðum
haldið áfram. Á morgun, fimmtu-
dag, tekur við tónleikaferðalag hjá
Delago með annarri hljómsveit og
það enskri, Cinematic Orchestra.
Kjuðunum fleygt í gólfið
Spurður að því hvort hann stökkvi
þannig á milli hljómsveita alla jafna
segir Delago að hann geri það en
reyni þó að gæta þess að tónleika-
ferðirnar verði ekki of margar. „Ég
kann að meta fjölbreytni, ég hugsa
að um 50-60% tónleika hjá mér séu
með minni eigin hljómsveit en ég hef
verið svo lánsamur að fá að spila með
mörgum frábærum hljómsveitum,“
segir Delago og bætir við að hann
hafi gaman af tilraunamennsku.
Því til dæmis má benda á mynd-
band á YouTube af honum að leika
eigið verk á hang með strengjasveit
Lundúnasinfóníunnar. Strengja-
hljóðfæraleikararnir leika með
trommukjuðum á hljóðfærin og í
miðjum verkinu fleygja þeir kjuð-
unum í gólfið, við mikinn fögnuð
áhorfenda. „Ég hef gaman af því að
gera tilraunir og koma áhorfendum
á óvart,“ segir Delago og brosir að
þessu uppátæki.
„Hef gaman af því að gera tilraunir
og koma áhorfendum á óvart“
Manu Delago leikur á Airwaves Myndband af honum að leika á hang vakti athygli Bjarkar
Ljósmynd/Gwendal Le Flem
Á tónleikum Delago er þekktastur fyrir að leika af mikilli færni á hljóðfærið hang. Hér sést hann með þrjú slík
hljóðfæri. Delago hefur starfað með Björk Guðmundsdóttur og gefið út níu hljómplötur, þá síðustu á þessu ári.
Iceland Airwaves 2015
Þó svo Iceland Airwaves hefjist
formlega í dag hófst hin sk. „off-
venue“ dagskrá hennar, þ.e. tón-
leikar utan dagskrár sem aðgangur
er ókeypis að, í fyrradag. Í dag
verða fjölmargir slíkir tónleikar
haldnir á tugum staða í miðborginni,
m.a. í verslunum og á kaffihúsum og
verða þeir fyrstu á dvalarheimilinu
Grund við Hringbraut kl. 10.30. Þar
koma fram söngvaskáldið Svavar
Knútur og Axel Flóvent.
Sérstök Miðborgarvaka verður
haldin í tilefni af Airwaves í kvöld og
verða verslanir opnar fram eftir til
kl. 21 og lengur en veitingahúsin eru
opin langt fram eftir kvöldi að venju.
Fjölmargar verslanir bjóða upp á
léttar veitingar, sértilboð og dag-
skráratriði og má því búast við ein-
stakri Airwaves-stemningu í mið-
borginni.
Tónleikar fara fram víða, m.a. í
menningarhúsinu Mengi við Óðins-
götu þar sem listamenn útgáfunnar
Bedroom Community koma fram kl.
19, þau Liam Byrn, Jodie Landau og
Valgeir Sigurðsson. Tónlistin mun
óma á Rauðarárstíg þar sem tón-
leikar fara fram í Lucky Records og
Gallerí Fold. Í Gallerí Fold mun
Ledfoot hefja leik kl. 15 og í Lucky
Records hefst tónleikahald kl. 14
þegar Eiríkur Sigurðsson treður
upp. Eru þá örfáir tónleikar nefndir
og má kynna sér dagskrána á vef há-
tíðarinnar, icelandairwaves.is.
Á Miðborgarvöku getur fólk einn-
ig virt fyrir sér glæsilegar vegg-
myndir sem Iceland Airwaves beitti
sér fyrir að málaðar yrðu á fjöl-
marga húsgafla og veggi í borginni.
Nefnist sá hluti dagskrár hátíðar-
innar Wall Poetry og voru verkin
máluð af listamönnum götulistar-
samtakanna Urban Nation í Berlín.
Kort sem sýnir hvar verkin eru stað-
sett í miðborginni má finna á vef há-
tíðarinnar.
Miðborgarvaka og
ókeypis tónleikar
Í Mengi Valgeir Sigurðsson heldur
tónleika með Liam Byrn og Jodie
Landau í Mengi í kvöld kl. 19.
• Fullkomin forgreiningarstöð. Forgreining segir okkur flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir
allar ströngustu kröfur VW og Skoda.
• Hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins
með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi.
• Starfsleyfi til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
REGLULEGT VIÐHALD
HÆKKAR ENDURSÖLUVERÐ
forðastu verðrýrnun bílsins og pantaðu tíma í forgreiningu
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -