Morgunblaðið - 04.11.2015, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 04.11.2015, Blaðsíða 35
til Reykjavíkur og í varúðarskyni var símasamband rofið um allt land.“ Sigríður hóf skólagöngu í Austur- bæjarskóla 1939 og fór síðan í Gagn- fræðaskóla Ingimars. Að loknu námi þar, árið 1948, hóf Sigríður störf á skrifstofu Eimskipafélagsins í Reykjavík. Þar starfaði Sigríður til 1950 en þá giftist hún eiginmann- inum, Magnúsi Smith, sem alla sína starfsævi var vélstjóri á skipum Eimskipafélagsins. Sigríður var lengst af heimavinn- andi sjómannskona: „Fjarvistir eigin- mannsins frá heimilinu voru oft lang- ar og ferðir millilandaskipa ekki eins skipulagðar og síðar varð. Líf fjöl- skyldunnar mótaðist mjög af þessum aðstæðum en sjómannskonur höfðu í nógu að snúast og þurftu að annast margs konar útréttingar fyrir fjöl- skyldur sínar og heimili.“ Sigríður og Magnús fluttu í ný- byggt raðhús við Hvassaleiti 149, árið 1961, voru með þeim fyrstu sem fluttu í hverfið og bjuggu þar í 50 ár. Vélstjórafélag Íslands stofnaði kvenfélag 1928 til að annast líknar- og styrktarmál fyrir félagið. Eigin- konur vélstjóra tóku að sér kven- félagið, breyttu nafninu í „Kven- félagið Keðjan“ og héldu áfram að annast styrktarmál og líknarstörf fyrir fjölskyldur vélstjóra. Í gegnum tíðina hafa þær, ásamt kvenfélög- unum Öldu og Hrönn, sinnt marg- víslegum líknarstörfum sem m.a. voru fjármögnuð með sölu varnings á sjómannadaginn. Sigríður var formaður Keðjunnar í nærri 30 ár og átti með félags- konum og fjölskyldum þeirra marg- ar ánægjustundir, ekki síst í tengslum við byggingu sumarbú- staðar sem kvenfélagið byggði sér á Laugarvatni og var vígður árið 1980. Árið 1985 hóf Sigríður störf utan heimilis, hjá auglýsingastofunni Maxis. Hún hefur allar götur síðan verið viðloðandi auglýsingastörf. Sigríður er í Thorvaldsensfélag- inu, Grikklandsfélaginu og Við- eyingafélaginu. Hún var kjörin í stjórn Sparisjóðs vélstjóra 1995 og sat þar um árabil, ein kvenna. Hún varð stjórnarformaður í Sparisjóðn- um árið 2003 og telst til að hún hafi fyrst kvenna gegnt formennsku í stjórn fjármálafyrirtækis á Íslandi. Hún hætti í stjórn sjóðsins árið 2006. Fjölskylda Sigríður giftist 21.7. 1950 Magn- úsi Smith, f. í Reykjavík 26.9. 1925, d. 8.6. 1997, vélfræðingi. Foreldrar hans voru Eggertína Magnúsdóttir Smith, og Paul Oskar Smith pípu- lagningameistari. Börn Sigríðar og Magnúsar eru Sólveig, f. 2.12. 1950, deildarstjóri á Landspítala, búsett í Reykjavík, gift Sigurði Kjartanssyni rafeindavirkja og eru börn þeirra Sigríður Erla, f. 1975, og Kjartan Orri, f. 1978; Alla Dóra, f. 1954, d. 1955; Alla Dóra, f. 26.10. 1955, leikskólakennari, búsett í Reykjavík en maður hennar er Einar Ingimarsson arkitekt og eru börn þeirra Magnús, f. 1986, Ingi- mar, f. 1988, og Þórhildur, f. 1995; Magnús Jón, f. 6.8. 1959, vélfræð- ingur, búsettur í Reykjavík, kvænt- ur Ólöfu Ingu Heiðarsdóttur toll- verði og eru börn þeirra Heiðar, f. 1988, og Íris Kristín, f. 1994; Þóra Björk, f. 17.5. 1973, stjórnmálafræð- ingur, búsett í Reykjavík, gift Ásdísi Þórhallsdóttur, leikstjóra og starfs- manni við Listasafn Reykjavíkur, og eru börn þeirra Elíasbet, f. 1992, Sigþór Elías, f. 2007, og Þórhallur Valtýr, f. 2012. Langömmubörn Sigríðar eru fimm talsins. Systkini Sigríðar: Sigrún Þórðar- dóttir, f. 9.5. 1918, d. 22.1. 1977, hús- freyja í Reykjavík; Sigmundur Þórðarson, f. 14.6. 1920, d. 4.4. 1973, matsveinn og framkvæmdastjóri Hlégarðs í Mosfellsbæ, búsettur í Reykjavík; Sigurður, f. 16.1. 1935, d. 31.5. 2008, tannlæknir í Reykjavík, og Kristjana, f. 5.7. 1924, húsfreyja og fyrrv. matráðskona í Reykjavík. Foreldrar Sigríðar voru Þórður Helgi Jóhannesson, f. 1893, d. 1968, verkstjóri í Viðey og í Reykjavík, og k.h., Sólveig Sigmundsdóttir, f. 1899, d. 1984, húsfreyja. Úr frændgarði Sigríðar E. Smith Sigríður Erla Sigríður Bjarnadóttir Bjarni Kristjánsson Welding tómthúsmaður í Hafnarfirði Guðrún Bjarnadóttir Welding húsm. í Hafnarfirði, síðar í Rvík Sigmundur Jónsson sjómaður í Hafnarfirði Sólveig Sigmundsdóttir húsmóðir í Rvík og Viðey Sigríður Erlendsdóttir húsmóðir á Hól Anna Sesslja Ásmundsóttir húsmóðir í Melhúsi Rósinkrans Jónasson tómthúsmaður í Melhúsi Jónína Rósinkransdóttir vann að líknarstörfum af áhuga Jóhannes Kristján Sigurðsson sjómaður í Rvík Þórður Helgi Jóhannesson vélgæslumaður í Viðey, seinna verkstjóri í Rvík Steinunn Sigurðardóttir húsfr. í Reykjavík Sigurður Þórðarson útvegsmaður í Rvík, kenndur við Steinhúsið Anna Emilsdóttir blaðamaður Árni Emilsson tónlistarmaður Guðrún Jónsdóttir saumakona Guðmundur Jónsson bóndi á Guðmundarstöðum Jón Guðmundssontómthúsmaður á Hól ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 Tvíburabræðurnir Árni ogMarinó Jónssynir fæddust áBíldudal 4.11. 1906. For- eldrar þeirra voru hjónin Jón Árna- son, prestur í Otradal og síðar á Bíldudal, og Jóhanna Pálsdóttir en þau hjón eignuðust átta börn. Jón var sonur Árna Jónssonar, hrepp- stjóra og dbrm. á Þverá í Hallárdal, bróður Ragnheiðar, húsfreyju á Eskifirði, móður Ólafs Friðriks- sonar, verkalýðsleiðtoga og ritstjóra Alþýðublaðsins. Bróðir Árna var Ólafur, gestgjafi á Skagaströnd, langafi Sunnu Borg leikkonu, Gunn- ars Ragnars, forstjóra á Akureyri, og Áslaugar Ragnars, fyrrv. blaða- manns, móður Kjartans Magnús- sonar borgarfulltrúa. Eiginkona Árna var Stefanía Stef- ánsdóttir húsfreyja og eignuðust þau þrjá syni, Stefán Þór, f. 1930, Jón, f. 1937, d. 1958, og Gylfa, f. 1939, d. 2005. Eiginkona Marinós var Andrea Soffía Wedholm og er sonur þeirra Örn, f. 1940. Þeir tvíburabræður misstu eiginkonur sínar á sama ári, 1966, með tveggja mánaða millibili. Árni og Marinó fluttu til Reykja- víkur um tvítugsaldurinn. Arni stundaði þar verslunarstörf um ára- bil, stofnaði síðan Heildverslun Árna Jónssonar árið 1945 og var stór- kaupmaður upp frá því. Marinó fór í Loftskeytaskólann er hann kom suður, var síðan loft- skeytamaður á togurum í áratug, rak síðan töskuverksmiðjuna Merk- úr frá því á stríðsárunum og til árs- ins 1953 og síðan aðrar töskugerðir til dánardags og töskuverslanir við Vesturgötu í Reykjavík, Hverfisgötu og við Laugaveg. Hann þótti afburða kventöskuhönnuður og vandvirkur handverksmaður. Árni og Marinó voru nánir og mjög líkir í útliti og var oft hent gaman að því að fólk átti erfitt með að þekkja þá í sundur. Þeir höfðu ljúfa lund og voru einstaklega greið- viknir og ráðagóðir. Þau systkinin sýndu Bíldudal mikla ræktarsemi og Árni átti oft frumkvæði að hópferðum brott- fluttra Bílddælinga þangað. Árni lést 13.1. 1969, en Marinó 6.2. 1974. Merkir Íslendingar Árni og Marinó Jónssynir 90 ára Guðbjörg Jónsdóttir 85 ára Gunnar Ingi Olsen Hulda Pálína Matthíasdóttir Kristján Steinsson Sigurborg Valgerður Jónsdóttir Valgerður Einarsdóttir 80 ára Ingibjörg Garðarsdóttir 75 ára Guðrún Hjördís Svavarsdóttir Gunnlaug Ólafsdóttir Jóhanna Svavarsdóttir Marta Pálsdóttir Sigurður Hermannsson Sigurlaug Stefánsdóttir 70 ára Bragi Guðmundsson Hannveig Valtýsdóttir Margrét Kristjánsdóttir Þórður Helgi Bergmann 60 ára Gréta Friðrika Guttormsdóttir Guðrún E. Sigurbjarnadóttir Hjálmar Benediktsson Hörður S. Bachmann Kamalanatha J. Lankathilaka Magnús Harðarson Margrét H. Hjaltested Ólafía Anna Halldórsdóttir Svanhvít Hreinsdóttir 50 ára Álfhildur Sigurjónsdóttir Brynjar Guðmundur Steinarsson Elisabete Jesus Santos Pereira Erla Einarsdóttir Guðjón Gunnarsson Helga Margrét Hreinsdóttir Júlíus Sævarsson Kristín S. Markúsdóttir Sjöfn Sverrisdóttir Vignir Sigurðsson Virgie Gaviola Garcia 40 ára Benedikt Guðfinnur Karlsson Björgvin Unnar Ólafsson Bogi Arason Brynja Kristín Guðmundsdóttir Brynja Stephanie Swan Börkur Hrafn Árnason Eggert Páll Ólason Elín Björg Guðmundsdóttir Gísli Svanur Svansson Grzegorz Robert Redziak Gunnar Örn Angantýsson Konráð Leó Jóhannsson Rafal Andrzej Glazer Róbert Bjarnason Sighvatur Ingi Gunnarsson Sigurjón Óskarsson Soffía Fransiska R. Hede Tinna Kjartansdóttir 30 ára Agnes Ýr Stefánsdóttir Anna Jóna Kjartansdóttir Anna Margrét Eiðsdóttir Arnar Freyr Björnsson Árni Arnórsson Fannar Þeyr Guðmundsson Ingi Sigurjón Jensson Ívar Örn Hlynsson Sara Hrönn Hauksdóttir Sigrún Ýr Eyjólfsdóttir Ylfa Ýr Steinsdóttir Þorgeir Jón Gunnarsson Til hamingju með daginn 30 ára Sigurður ólst upp á Akureyri, býr í Reykja- vík, lauk BSc-prófi í tölv- unarfræði frá HR og er forritari hjá Azazo. Systkini: Árni Viðar Björgvinsson, f. 1979; Brynja Helgadóttir, f. 1986, og Pétur Örn Helga- son, f. 1993. Foreldrar: Helgi Sigurðs- son, f. 1961, og Unnur Guðrún Karlsdóttir, f. 1955. Þau eru búsett á Akureyri. Sigurður Rúnar Helgason 30 ára Manuela ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk MSc-prófi í lífefnafræði frá HÍ og starfar hjá Kerf- islíffræðisetri HÍ. Maki: Guðlaugur Ingi Guðlaugsson, f. 1977, tölvunarfræðingur hjá Össuri. Sonur: Kári Guðlaugsson, f. 2012. Foreldrar: Magnús Már Kristjánsson, f. 1957, og Isabelle De Bisshop, f. 1957. Manuela Magnúsdóttir 30 ára Hólmfríður býr á Ísafirði, lauk Macc-prófi í reikningsskilum og endur- skoðun frá HÍ og er aðal- bókari hjá Orkubúi Vest- fjarða. Maki: Kristján Óskar Ás- valdsson, f. 1986, lög- maður hjá Pacta lög- mönnum. Dóttir. Helga Dóra Krist- jánsdóttir, f. 2014. Foreldrar: Sonja Erlings- dóttir, f. 1964, og Bóas Eðvaldsson, f. 1963. Hólmfríður Bóasdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.