Morgunblaðið - 04.11.2015, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 04.11.2015, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 ✝ Björn Jón-asson, jarð- fræðingur og fram- kvæmdastjóri hjá Varahlutaversl- uninni Kistufelli, fæddist 30. mars 1948 í Reykjavík. Hann lést á Land- spítalanum 24. október 2015. Foreldrar hans voru hjónin Jónas Jónasson, f. 26. janúar 1921 á Völlum á Kjalarnesi, d. 5. des- ember 2001, og Jóhanna Björnsdóttir, f. 2. mars 1923 á Norðfirði, d. 16. janúar 2011. Systkini Björns eru 1) Jónas, húsgagnasmiður, f. 26. janúar 1944, kvæntur Báru Sigfúsdótt- ur. Börn þeirra eru Katrín, gift Guðmundi Ó. Guðmundssyni, og Jónas, kvæntur Kristrúnu Sigurdísardóttur. 2) Málfríður, f. 11. nóvember 1946, d. 28. apríl 1947. 3) Arnfríður, bóka- Elísabet Hildur. Stjúpsonur Björns er Jón Þór Karlsson, f. 12. júní 1973. Björn ólst upp í Reykjavík, nánar tiltekið á Sjafnargötunni og síðar í Stóragerði. Björn gekk í Menntaskólann í Reykja- vík. Eftir skólagöngu í MR tók við háskólanám í jarðfræði. Björn útskrifaðist sem jarð- fræðingur vorið 1974. Hann starfaði við fag sitt í tvo ára- tugi fyrst hjá Orkustofnun við ýmis jarðfræðistörf og rann- sóknir og síðar hjá Krafttak sf. Eitt af stærri verkum Björns var umsjón yfir framkvæmdum við gerð jarðganga um Ólafs- fjarðarmúla. Björn tók við sem framkvæmdastjóri Varahluta- verslunarinnar Kistufells af föður sínum árið 1993 og starf- aði þar til æviloka. Björn hafði mikinn áhuga á stangveiði. Íslensk náttúra var honum hugleikin og sem jarð- fræðingur gat hann sameinað áhugamál og starfsvettvang. Útför Björns fer fram frá Hallgrímskirkju í dag, 4. nóv- ember 2015, kl. 15. safnsfræðingur, f. 18. nóvember 1953, giftist Einari Hrafnkeli Haralds- syni, þau skildu. Sonur þeirra er Arngrímur. Björn kvæntist Þórunni Ingu Jón- atansdóttur sér- kennara árið 1976, f. 18. maí 1951 á Blönduósi, en leið- ir þeirra skildu. Foreldrar hennar eru Jónatan Guð- brandsson, f. 11. janúar 1926, d. 30.september 1978, og Kristín Þorsteinsdóttir, f. 22. apríl 1934, eiginmaður hennar er Jón Stefánsson, f. 20. ágúst 1931. Börn Björns og Þórunnar eru; Björn, f. 2. mars 1976, d. 6. júlí 1999, og Jóhanna Kristín, f. 10. júní 1977, eiginmaður henn- ar er Þórir Ingþórsson. Börn þeirra eru Þórunn Jóhanna og Ástkær faðir minn naut þeirra forréttinda að alast upp innan um kærleiksríka stórfjölskyldu í gamalgrónu húsi á Sjafnargöt- unni í Reykjavík. Áhugi á náttúru Íslands kviknaði strax á unga aldri. Skoðun og skilningur á líf- og steinaríki náttúrunnar var sjálfsagður hluti daglegs lífs. Oft- ar en ekki lá leið hans niður á Tjörn þar sem var stunduð síla- veiði. Áhuginn beindist fljótlega að stærri fiskum og tók hann þá upp á því af sjálfdáðum að hjóla upp að Elliðavatni ungur að árum til að veiða í soðið fyrir fjölskyld- una. Faðir minn fermdist í Hall- grímskirkju, „kirkjunni hans“ eins og hann sagði svo oft áður. Hann hóf menntaskólagöngu sína við MR og kynntist þar bekkjar- félögum sínum sem héldu reglu- lega sambandi. Hann útskrifaðist frá HÍ vorið 1974 sem jarðfræð- ingur og gat þar af leiðandi tvinn- að saman áhugamál og atvinnu. Hann hóf störf hjá Orkustofn- un og starfaði þar næstu fimmtán árin við ýmis jarðfræðiverkefni og mælingar, einkum uppi á miðhálendinu og vandaði ætíð til verks. Þar var hægt að nýta tím- ann inn á milli við veiðar í nær- liggjandi veiðivötnum og þangað lá líka oft leið fjölskyldunnar. Einnig vann hann hjá Krafttak sf. og Jarðtæknistofunni sem hann átti ásamt félögum sínum þar til hann tók við sem framkvæmda- stjóri Varahlutaverslunarinnar Kistufells árið 1993. Foreldrar mínir giftu sig 1976 á gamlársdag í Árbæjarkirkju. Fjölskyldan ferðaðist vítt og breitt um landið, fyrst í VW- bjöllu með þriggja manna tjald meðferðis og var náttúran nýtt í hnotskurn á marga vegu sem var lærdómsríkt. Einnig tjölduðum við eða vorum í sumarbústað á hverju sumri við Þingvallavatn og í sumarbústað í eigu foreldra hans, í landi Valla undir rótum Kistufells í Esjunni. Pabbi veikist alvarlega árið 2006 og við tóku stífar og erfiðar meðferðir. Árið 2014 kom annað bakslag. Pabbi barðist eins og hetja við tvo illkynja sjúkdóma. Í þessum erfiðu veikindum sem hrjáðu hann kveinkaði hann sér ekki, heldur vann oft myrkrana á milli í Varahlutaversluninni Kistufelli og naut þess að hitta viðskiptavini sína. Tók sér nánast aldrei frí nema þá helst til að sinna sínu mesta áhugamáli, þ.e. stangveiðinni. En hvergi undi hann sér betur en með fjölskyld- unni og barnabörnunum á góðri stundu. Ég varð einnig þeirrar gæfu aðnjótandi að vera í stangveiðinni og fékk að starfa síðustu árin með honum í Kistufelli þar sem hann reyndist mér góður lærifaðir Það er ósanngjarnt að missa foreldri svona ungt, rétt nýskrið- inn í 67 ára aldurinn. Pabbi var ekki á því að gefast upp þrátt fyr- ir allt og ætlaði sér að halda ótrauður áfram og hafði það að orði fyrir stuttu síðan að hann ætlaði sér að fara í vinnuna á ný. Það er svo stutt síðan að þú straukst yfir hönd mína eins og þú gerðir oft og sagðir við mig – kaldar hendur, hlýtt hjarta – mér hlýnar um hjartarætur við til- hugsunina. Kærleikurinn var of- arlega í huga þínum. Elsku hjartans pabbi minn, sársaukinn er mikill. Þú lifir í minningunni hjá mér alla tíð. Takk fyrir allt og allt. Ég elska þig. – Guð geymi þig. Þín dóttir, Jóhanna Kristín. Björn Jónasson, tengdafaðir minn, fæddist í Reykjavík 30. mars 1948. Ólst hann upp í for- eldrahúsum með systkinum sín- um á Sjafnargötu 5. Foreldrar Björns voru Jóhanna Björnsdótt- ir frá Norðfirði og Jónas Jónas- son frá Völlum á Kjalarnesi. Bjössi minntist þess oft hversu yndislegt það hafi verið að alast upp á Sjafnargötunni og að Holtið væri hans svæði. Eftir landspróf hóf Bjössi nám við Menntaskól- ann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan. Bjössi var stoltur MR-ing- ur og hvatti eldri dóttur okkar óspart til náms og mælti þá að sjálfsögðu eindregið með MR. Eftir menntaskólann hóf hann nám við Jarðfræðideild Háskóla Ísland og lauk þaðan prófi sem jarðfræðingur vorið 1974. Ástæða fyrir vali Björns á jarðfræði var einlægur áhugi hans á íslenskri náttúru. Starfaði hann við grein sína allt til ársins 1993 þegar hann tók við starfi framkvæmda- stjóra hjá Kistufelli af föður sín- um. Lengst af sem jarðfræðingur starfaði Bjössi hjá Orkustofnun við rannsóknir. Um daginn rakst ég á skýrslu eftir hann frá árinu 1991 um fyrirhugaða virkjun við Búðarháls. Í skýrslunni rannsak- aði hann jarðlög og hvort mögu- legt væri að virkja á þessum stað, sem síðar varð svo raunin. Marg- ar skýrslur og rannsóknir á Þjórsár- og Skaftársvæðinu liggja eftir Bjössa. Það er gaman og fróðlegt að lesa þær og sjá hversu mikill fagmaður hann var á sínu sviði. Bjössi var eins og áð- ur sagði mikill náttúruunnandi og undi sér hvergi betur en upp á fjöllum eða við fallega laxveiðiá. Bjössi var mikill lax- og silungs- veiðimaður og á þeim vettvangi smullum við saman sem veiði- félagar og vinir. Í nærfellt 20 ár höfum við Bjössi veitt saman, tveir forfallnir áhugamenn um stangveiði og íslenska náttúru. Farnar voru margar ferðir á ári, ógleymanlegar og dýrmætar minningar sem gætu sómt sér í heilli bók. Ein laxveiðiá var Bjössa einkar hugleikinn, Stað- ará í Steingrímsfirði. Ekki ein- göngu áin sem slík heldur og ekki síður allt umhverfið og náttúran á Ströndum sem heillaði hann. Til- hlökkunin hjá Bjössa var mikil á vorin að hafa samband við vin sinn, Guðmund Björnsson á Hólmavík, og athuga með veiði- leyfi í Staðará fyrir komandi veiðisumar, en með þeim tókst mikill vinskapur. Ekki má gleyma hlutverki Bjössa sem afa en þar stóð hann sig með miklum sóma, hlýr og umhyggjusamur við dótturdæt- urnar. Í veikindum sínum lét hann alltaf líta út fyrir að honum liði vel. Ef hann var spurður hvernig honum liði, var svarið ætíð það sama; að hann mundi ná sér. Því miður varð það ekki, þó að bar- áttuandann hafi ekki skort og að lokum varð það sá sem öllu ræð- ur, sem kallaði hann til áfram- haldandi góðra verka á öðrum stað. Minningunum og öllum góðu stundunum sem ég átti með Bjössa mun ég aldrei gleyma. Hvíl í friði kæri vinur. Þinn tengdasonur, Þórður (Tóti). Er vorið hlær og fagrar grundir gróa og geislar himins leika’ um hæð og mó, er syngur „dírrin dí“ í lofti lóa og ljóssins englar dansa um strönd og sjó. Við komum, elsku afi, til að kveðja með ástarþökk og bænarljóð á vör. Þín æðsta sæla var að gefa og gleðja, og góðir englar voru í þinni för. Við munum ávallt muna þínar bænir og mildu brosin, hjartans afi minn, og hvað sem okkur kaldur heimur rænir þá kært við geymum minjagullin þín. Hve oft við sátum alein út við glugga, ef áttum við þess von að kæmir þú. Með þér í för við eygðum engan skugga, þú ávallt veittir gleði, von og trú. Þótt dagar komi og æviárin líði mun aldrei fenna þín í gengin spor, og bros þín veita blessun lífs í stríði og breyta vetrar nótt í sól og vor, þótt aldrei framar ómi röddin kæra og aldrei heyrist fótatakið þitt, frá draumsins löndum líður ljósið skæra, er ljóssins börn þér flytja lagið sitt. Ó, hjartans afi, öll þín heitt við söknum því enginn var eins góður á okkar braut. Á angurs nótt og vonar morgni er vöknum þá vakir andi þinn í gleði og þraut og „gleim mér ei“ að þínu lága leiði við leggjum hljótt og brosum gegnum tár, sem maísól, er brosir blítt í heiði þú blessar okkar stundir daga og ár. (H.P.) Elsku afi, minning þín lifir í hjörtum okkar allra. Takk fyrir allt sem þú gerðir með okkur og fyrir okkur. Þín barnabörn, Þórunn Jóhanna og Elísabet Hildur. Bróðir okkar Björn fæddist í heimahúsi á Sjafnargötu 5 og bjó þar fram á unglingsár. Hann ólst upp í sannkölluðu fjölskylduhúsi þar sem ættingjar bjuggu nær því á hverri hæð. Foreldrar, systkini, afi, amma, frændur og frænka. Uppi í risi bjó móðurafi hans og nafni Björn og hefur hinn mikli áhugi afa á íslenskri náttúru fylgt nafninu því Björn lauk síðar námi í jarðfræði og starfaði sem jarð- fræðingur rúmlega helming starfsævinnar. Björn, eða Bjössi eins og hann var jafnan kallaður af ættingjum og vinum, var snemma vinnusam- ur og byrjaði ungur að árum að bera út blöð og selja í lausasölu og vinna við sendlastörf. Hann vann margvísleg störf í öllum skólafrí- um, Bæjarútgerðin og Sölufélag garðyrkjumanna koma upp í hug- ann. Snemma tók að bera á veiðibakteríunni sem fylgdi hon- um alla ævi. Hjólað var frá Sjafn- argötunni og upp að Elliðavatni með bláa veiðistöng og grænt maðkabox til að veiða í soðið. Aldrei kom hann tómhentur heim og átti það við alla tíð, enda sér- lega veiðinn. Eitt sinn fóru þeir feðgar að heimsækja bróðurinn, sem þá vann við vitabyggingar vestur á Fjörðum. Ekkert komst annað að hjá Birni en að fá að renna fyrir fisk. Bróður hans er ógleyman- legt gleðiópið sem hljómaði frá unga veiðimanninum, þá 11 ára gömlum, þegar hann sveiflaði glansandi sjóbirtingi upp á fjöru- kambinn í einum af fjarðarbotn- unum fyrir vestan. Ánamaðkatínslan er systurinni mjög minnisstæð og segir tals- vert um athafnasemi Björns bróður. Skriðið var um alla garða í Þingholtunum með vasaljós að næturlagi. Útbúinn var sérstakur kassi með loftgötum, mosa og mold til að geyma þetta dýrmæti, því nauðsynlegt var að eiga beitu tilbúna ef veiðitúr bauðst. Björn hafði heyrt að sannir veiðimenn víluðu ekki fyrir sér að geyma ánamaðkinn undir tungunni. Þennan leik lék hann í eitt skipti, eflaust í þeim eina tilgangi að ganga fram af okkur mömmu. Svo var það dúfnaræktin og garð- ræktin. Reistur var dúfnakofi bak við hús á Sjafnargötunni upp á tvær hæðir og ris og ræktað kál og grænmeti í einu horni garðs- ins. Björn gat gleymt sér í frásögn- um af veiðiskapnum og síðustu árin voru laxveiðiferðirnar til Alaska og í Staðarána á Strönd- um honum hugleiknar. Alla tíð heillaði jarðfræðin og ferðalög um landið. Minnisstæð er flugferð þeirra bræðra yfir Grímsvatnagosið og hamfara- hlaupið úr Skeiðarárjökli 1996. Í för var gæða ljósmyndavél sem var óspart notuð, en það var Birni metnaðarmál að eiga góðar myndavélar og veiðihjól. Eftirminnileg er hálendisferð bræðranna ásamt mágkonu Björns. Ferðast var um svæðið frá Landmannalaugum austur að Langasjó sem Björn þekkti mjög vel frá vinnuferðum og athugun- um sínum á hálendinu. Í þeirri ferð voru þræddar fáfarnar slóðir og lítt þekktir veiðistaðir sem Björn vissi um. Á síðari hluta starfsævinnar tók hann við rekstri Varahluta- verslunarinnar Kistufells af föður okkar. Björn var náttúrubarn og ef- laust hafa stundirnar einn með sjálfum sér við tærar ár og víð- feðm vötn tengt hann náttúrunni og guðdómnum sterkum böndum. Við þökkum þér samfylgdina, kæri bróðir. Arnfríður og Jónas. Lífið er hverfult. Björn Jónas- son, bekkjarbróðir okkar úr MR, sem var svo hress og kátur þegar við hittumst á 45 ára stúdentsaf- mælinu í fyrra, er farinn á vit æðri máttarvalda. Við kynntust Bjössa í fjórða bekk Z í stærðfræðideildinni haustið 1966. Við vorum níu stelp- urnar og sextán strákar í blönd- uðum bekk, sem var óvenjulegt á þessum tíma, því þá voru flestir bekkir kynjaskiptir. Bjössi var hægur, glaðlegur með fallegt augnaráð. Í byrjun hafði hann sig lítt í frammi en varð brátt einn af glaðværum hópnum. Hann var drengur góður, hjálpsamur og lét sig náungann varða. Það sýndi sig oft, því ef hann vissi af einhverjum erfið- leikum hjá félögunum var hann fyrstur manna til að bjóða aðstoð. Margt var brallað á mennta- skólaárunum. Við héldum bekkj- arpartí, dönsuðum í kringum jóla- tréð á Austurvelli, stunduðum Glaumbæ og reglulega var farið í Menntaskólaselið við Hveragerði. Þetta var 68-kynslóðin og hippa- tíminn í algleymingi. Hljómar voru toppurinn, verið var að sýna Hárið og tónlistin var við völd, sem allt hafði sín áhrif á líf menntaskólanemanna. Þegar við útskrifuðumst sem stúdentar 1969 héldu foreldrar Bjössa fyrir okkur hóf með mikl- um myndarbrag. Það var kátur hópur sem þar fagnaði langþráð- um áfanga. Eftir það lágu leiðir í ýmsar áttir eins og gengur og Bjössi hóf nám í jarðfræði við HÍ. Að námi loknu réðst hann til starfa hjá Orkustofnun. Árið 1993 tók hann við rekstri varahluta- verslunarinnar Kistufells, sem faðir hans hafði rekið um langt skeið. Þangað var gott að koma og leita ráða hjá honum ef bíll bil- aði eða lagfæringa þurfti við. Við bekkjarsystkinin hittumst á síðasta ári á fjörutíu og fimm ára stúdentsafmælinu. Eftir að hafa plantað trjám í minningu þeirra sem á undan voru gengnir í lundinum okkar við Menntaskóla- selið var veisla og ball í Ingólfs- skála á Suðurlandi. Bjössi lét sig ekki vanta. Hann leit vel út en hafði grennst nokkuð. Aðspurður sagði hann okkur að hann hefði átt í veikindum en gerði ekki mik- ið úr því. Hann tók þátt í dans- inum við undirleik skólahljóm- sveitarinnar frá menntaskóla- árunum, þar sem bítlalögin voru leikin og sungin. Það var eins og að hverfa aftur til liðinna tíma og við nutum samverunnar. Næst hittumst við færri, minn- umst genginna skólafélaga og Bjössi fær sitt tré við Selið. Við minninganna mildu glóð hér mættumst við í kvöld en sumarangan, sólarljóð og söngur höfðu völd. Því alla tíma yljar sál hin æskubjarta stund, sem gefin var við gleðimál og góðra vina fund. (Ólafur Björn Guðmundsson) Við bekkjarsysturnar kveðjum góðan dreng, þökkum samfylgd- ina og vottum fjölskyldunni inni- lega samúð. Stelpurnar í Z-bekknum 6́6-́69: Ásta, Matthildur, Nanna, Rannveig, Sigríður, Sunna, Svandís, Þórey og Þuríður. Björn Jónasson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein. Minningargreinar www.uth.is -uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565 9775 Frímann s: 897 2468 Hálfdán s: 898 5765 Ólöf s: 898 3075 ÚTFARARÞJÓNUSTA HAFNAFJARÐAR FRÍMANN & HÁLFDÁN ÚTFARARÞJÓNUSTA RAGNAR KRISTBJÖRN KRISTINSSON lést föstudaginn 30. október síðastliðinn. Útförin fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 13. nóvember klukkan 11. . Hólmfríður Sigurðardóttir, Sigurgísli Kristinsson og fjölskylda. Ástkær bróðir okkar og frændi, ÓLAFUR ANDERS KJARTANSSON, bóndi frá Pálmholti í Arnarneshreppi, andaðist á dvalarheimilinu Grenilundi á Grenivík föstudaginn 30. október síðastliðinn. . Elín Guðrún Kjartansdóttir, Guðrún Þóra Kjartansdóttir, systkinabörn hins látna og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.