Morgunblaðið - 04.11.2015, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Tveggja turna hjal nefnist sýning
Einars Arnar Benediktssonar og
Curvers Thoroddsen og verður
opnuð í dag kl. 17 í Listamenn Gall-
eríi um leið og tónlistarhátíðin Ice-
land Airwaves hefst. Tímasetningin
er engin tilviljun því báðir eru þeir
tónlistarmenn og hafa unnið saman
í Ghostigital á annan áratug. „Við
viljum opna þetta samtal milli tón-
listar og myndlistar,“ segir Curver.
Báðir sýna þeir ný verk en þeir
hafa aldrei áður sýnt saman þó þeir
hafi starfað lengi saman í tónlist-
inni. Verkin á sýningunni eru bæði
í lit og svarthvítu, teiknuð, prentuð
og tekin upp.
„Það er gaman að vera á allt
öðru rófi en Einar. Þessi verk okk-
ar eru mjög ólík. Litmyndirnar
hans [Einars] eru alveg frábærar.
En ég er með kalt og tilfinn-
ingalaust konseptverk sem er
svarthvítt,“ segir Curver.
Til minningar um Jóhann G.
Verk Curvers nefnist Snúningar
á mínútu og er fjölfeldisverk í
formi vínylplötu. „Þetta er tilraun
til að breyta vínylplötuforminu í
sérstakt listaverk,“ segir Curver.
Verkið hans er til minningar um
tónlistar- og myndlistarmanninn
Jóhann G. Jóhannsson sem lést fyr-
ir tveimur árum. Jóhann gaf út
fyrstu íslensku konseptplötuna á
vínyl árið 1972 sem nefnist Brotinn
gítar/Þögnin rofin.
„Ég kynntist Jóhanni þegar við
lærðum saman raftónlist í Tónlist-
arskóla Kópavogs og eftir það urð-
um við góðir félagar. Það sem mér
fannst magnað við hann var að
hann vann óheft í báða miðla,“ seg-
ir Curver og bætir við að hug-
myndin á bak við sýninguna sé að
gera list sem liggur á milli tónlistar
og myndlistar.
„Í tónlistinni erum við ómstríðir
saman og í galleríinu erum við það
líka. Það er gaman að sjá hvernig
við gerum þetta,“ segir Einar Örn
um samstarf þeirra tveggja.
„Ég held áfram að segja sögur
og vinn ennþá með penna og papp-
ír. Ég sest niður á kvöldin og segi
sjálfum mér sögur af því sem gerð-
ist yfir daginn,“ segir Einar Örn
um annan hluta verkanna á sýning-
unni.
Verk líka unnin á spjaldtölvu
Hin verkin eru unnin á spjald-
tölvu og eru svo prentuð út og
römmuð inn. Sú myndröð nefnist:
Ef þú getur ekki sagt það, gerðu þá
eitthvað.
„Ég flæki svo söguna aðeins með
því að gera fleiri sögur inn í hverja
mynd. Þegar ég nefni myndirnar
þá lendi ég í vandræðum því ég get
ekki sagt alla söguna í fimm orðum
og þarf að ákveða hvaða útgangs-
punkt ég hef inn í hverri mynd. Svo
eru heilar sögur faldar inni í hverri
mynd,“ segir Einar Örn og bætir
við að í grunninn séu teikningarnar
allar einnar línu teikningar, en í
sögunni eru komin fleiri flækjustig
þar sem ekkert er augljóst.
Teikningarnar ómeðvitaðar
„Teikningin er í raun ómeðvituð.
Þegar ég legg af stað í teikninguna
þá veit ég sirka hvað ég er að fara
að segja og svo breytist það. Þetta
er ákveðin sagnahefð sem ég hef
líka notað í textagerð. Ég er að
segja sögur sem ég veit ekki alveg
hvernig enda og geta breyst eftir
því hvort þetta er skemmtisaga eða
hryllingssaga,“ segir Einar Örn
ennfremur um verkin.
Ómstríðir saman í listinni
Tveggja turna hjal nefnist sýning Curvers og Einars Arnar Unnið saman í
tónlist en fyrsta sinn sem þeir sýna saman Opnuð um leið og Airwaves hefst
Morgunblaðið/Eggert
Listamenn „Í tónlistinni erum við ómstríðir saman og í galleríinu erum við það líka. Það er gaman að sjá hvernig við gerum þetta,“ segir Einar Örn um
samstarf hans og Curvers Thoroddsen. Sýning þeirra verður opnuð í Listamenn Galleríi í dag kl. 17 um leið og Iceland Airwaves hefst.
Lára Snædal Boyce bar sigur úr
býtum í örmyndakeppni Borgar-
bókasafnsins, Bókaræmunni, með
örmynd um bókina Eleanor og
Park eftir Rainbow Rowell. Bóka-
ræman er örmyndakeppni um
bækur fyrir ungmenni á aldrinum
13-20. Þátttakendur gera 30-90
sekúndna mynd um bók að eigin
vali og með frjálsri aðferð og er
markmið keppninnar að vekja at-
hygli unglinga á bókum, bókasöfn-
um og lestri og hvetja til skapandi
lesturs og túlkunar á bók-
menntum, eins og því er lýst í til-
kynningu. 20 myndir voru sendar
inn til keppni og tengdust þær
m.a. bókunum um Hungurleikana
og Hvar er Valli?
Í tilkynningu segir að þátttak-
endur hafi sýnt frábæra takta í
kvikmyndagerð og að öll brögð
kvikmyndalistarinnar hafi verið
notuð. Um sigurmynd Láru hafði
dómnefnd m.a. þetta að segja: „Ör-
mynd Láru um bókina Eleanor og
Park er falleg og tilfinningaþrung-
in þar sem myndataka og tónlist
spila stórt hlutverk. Bókin sjálf er
í aðalhlutverki ásamt stúlkunni
sem er að lesa hana og upplifir
sjálfa sig í sögunni þar sem henni
finnst hún ekki falla inn í hópinn.
Lokaskotið er flott og gefur til
kynna betri tíma og hamingju-
saman endi og vísar um leið í sög-
una sjálfa og bókarkápuna.“
Lára gat ekki tekið við verðlaun-
unum þar sem hún var úti á landi
og var það frænka hennar, Katla
Margrét, sem tók á móti verðlaun-
unum fyrir hennar hönd. Birta
Björnsdóttir og Guðrún Ísabella
Kjartansdóttir sem hrepptu annað
sætið með mynd um bókina Go ask
Alice eftir Anonymous (Beatrice
Sparks) frá árinu 1971 og í þriðja
sæti urðu Gísli Gunnlaugur Geirs-
son, Ernir Ómarsson og Magnús
Már Magnússon með mynd sína
um Rökkurhæðabókina Gjöfina
eftir Birgittu Elínu Hassell og
Mörtu Hlín Magnadóttur. Ör-
myndirnar má finna á mynd-
bandavefnum YouTube með því að
slá inn í leitarglugga „Bókaræman
2015“.
Þrjár örsögur hlutu verðlaun
Bókasafnið stóð einnig fyrir
SMS-örsögusamkeppni fyrir
grunnskólabörn á aldrinum 10-16
ára og bárust hátt í 100 sögur í
hana. Fyrstu verðlaun í keppninni
hlaut Ásgerður Helga Bjarnadóttir
fyrir eftirfarandi sögu: „Langt
niðri á hafsbotni liggur kona. Hún
er búin að liggja þar í rúm 7 ár.
Heima bíður hennar drengur í
sparifötunum. Hún hlýtur að koma
bráðum, hugsar hann.“ Dómnefnd
þótti sagan full af dramatík, sökn-
uði og trega, uppbyggingin góð og
stíllinn hnitmiðaður. Í öðru sæti
var Egill Breki Kristjánsson með
þessa sögu: „Einn daginn var kona
að labba á götunni. Ég sá hana frá
glugganum. Hún var smeyk. Ég
veit ekki af hverju. Næsta dag fór
ég í skólann og sá hana í blaði,
hennar var saknað.“
Þriðja sæti hlaut svo Vilmundur
Torfason fyrir eftirfarandi sögu:
„Kona siglandi á þurru landi. Veið-
andi krakka í pollagöllum: Gulur,
rauður, grænn og blár. Regnbog-
inn í fjarskanum. Borðandi hunda í
bakgarðinum.“
Lára og Ásgerður hlutu 1. verðlaun
Verðlaunamynd Stilla úr örmynd Láru Snædal Boyce sem hlaut fyrstu
verðlaun í örmyndakeppni Borgarbókasafnsins, Bókaræmunni. Lára vann
myndina út frá bókinni Eleanor og Park eftir Rainbow Rowell.
Verðlaun veitt í örmynda- og
örsagnakeppni Borgarbókasafns
Hausttónleikar
Skólahljóm-
sveitar Kópavogs
verða haldnir í
Háskólabíói í
kvöld kl. 19.30.
Skólahljóm-
sveit Kópavogs
er ein allra fjöl-
mennasta skóla-
hljómsveit lands-
ins, með 180 hljóðfæraleikara innan
sinna vébanda og á tónleikunum
munu 150 nemendur koma fram í
þremur hljómsveitum sem skipt er í
eftir aldri og getu. Leikið verður
brot af þeirri tónlist sem búið er að
æfa frá skólabyrjun í haust. Tón-
leikarnir eru unnir út frá þemanu
„Íslensk tónlist“ og leitast verður
við að leika sem mest af þekktum
íslenskum sönglögum og dægur-
flugum frá ýmsum tímum. Einnig
er á efnisskránni konsertverk eftir
Pál Pampichler Pálsson, „Suite
Arctica II“. Stjórnendur sveitanna
eru Össur Geirsson og Þórður
Magnússon.
150 nemar á
tónleikum
Össur Geirsson
Fleiri tónlistar-
menn sem fram
koma á tónlistar-
hátíðinni Sónar
Reykjavík á
næsta ári hafa
verið kynntir til
sögunnar. Plötu-
snúðurinn og raf-
tónlistarfram-
leiðandinn Boys
Noize mun koma
fram á henni sem og Floating
Points sem mætir með hljómsveit.
Hipphopp-listamaðurinn Angel
Haze, Ellen Allien og Courtesy
munu einnig leika á hátíðinni, sem
og plötusnúðurinn Ben UFO og ís-
lensk-færeyska tvíeykið Kiasmos.
Þá mun íslenska poppstjarnan Páll
Óskar Hjálmtýsson troða upp,
teknótónlistarmaðurinn Bjarki
mun leika í annað sinn á hátíðinni
auk Lone, Eloq, Unkown, DJ E.D.-
D.E.H GRK, Karó, DJ Katla,
Tandri, Julia Ruslanova og Intro-
beats.
Páll Óskar
á Sónar
Páll Óskar
Hjálmtýsson
JEM AND THE HOLOGRAMS 5:30
SCOUTSGUIDE,ZOMBIE APOCALYPSE 8
CRIMSON PEAK 10:30
EVEREST 3D 5;30,8
SICARIO 10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar