Morgunblaðið - 04.11.2015, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.11.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Samstaða tungls, Venusar, Júpí- ters og Mars nær hámarki að morgni nk. laugardags og í góðu skyggni blasir þá við mikil sýning á himni. Norðurljósin verða einnig á sínum stað næstu kvöld. „Ég mæli með því að fólk taki daginn snemma á laugardag og horfi til himins í austurátt um klukkan hálfátta,“ segir Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnu- skoðunarfélags Seltjarnarness og einn af umsjónarmönnum Stjörnu- fræðivefsins. Sævar segir að á laugardags- morgun blasi við stjörnurnar Júpí- ter ofar og Venus neðar og skær- ari. Við hliðina á Venusi verði tunglið sigðarlaga og Mars þar rétt fyrir ofan. „Við horfum á þrjár reikistjörnur og tunglið okk- ar í einum og sama hnappnum,“ segir hann og áréttar að um sér- lega glæsilega sjón verði að ræða. Sjá megi sigðarlaga tunglið með jarðskini og jafnvel stjörnuna Ven- us að hálfu leyti upplýsta. Fögur sýn var á himni í nýliðn- um mánuði en Sævar segir að hún verði fallegri núna því fjarlægðin á milli reikistjarnanna sé minni nú en þá. Ísagnir frá Encke Eins og fram kemur á Stjörnu- fræðivefnum stendur loftsteina- drífan Tárítar nú yfir. Hún dregur nafn sitt af stjörnumerkinu Naut- inu, þaðan sem allir loftsteinarnir virðast stefna frá, að sögn Sævars. Tárítarnir eru litlar ísagnir úr slóð halastjörnunnar Encke, sem brenna upp í 80 til 100 km hæð, og þá má sjá um þessar mundir á kvöldin. „Þessir loftsteinar eru býsna áberandi og ágætis upphitun fyrir bestu loftsteinadrífu ársins, sem verður um miðjan næsta mán- uð,“ segir Sævar. Á vef Veðurstofunnar (vedur.is) má m.a. sjá norðurljósaspá. Mikil virkni var í gær og talsverð virkni verður næstu daga. Háskýjabreiða skemmir fyrir útsýninu, en Helga Ívarsdóttir veðurfræðingur segir að gera megi ráð fyrir að úr rætist á föstudag. Þá verði skúraloft suð- vestantil og í því séu oft göt. Bestu skilyrðin verði líklega fyrir norðan og austan um helgina. Sýning á himni kvölds og morgna  Dansandi norðurljós og loftsteinar  Samstaða tungls, Venusar, Júpíters og Mars nær hámarki Norðurljós Himinninn leynir á sér og nú má þar sjá ýmsar myndir. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Í gær barst tillaga Björgunar ehf. um hvernig mögulegt væri að ná sanddæluskipinu Perlunni af hafs- botni við Ægisgarð en dæluskipið sökk á mánudag. Samkvæmt tillög- unni verða smíðaðir 7,5 metra stál- stokkar sem festir verða við lúgur á fram- og afturskipi. Þegar lokið hefur verið við að þétta skipið verður dælum komið fyrir í stokk- unum og dælt úr rýmunum í fram- skipi og afturskipi. Úr afturskipinu er áætlað að dæla 468 tonnum af sjó og úr fram- skipi 247 tonnum. Með þessari að- gerð verður þess freistað að lyfta skipinu. Á Ægisgarði verður staðsettur krani sem notaður verður til að tryggja stöðugleika skipsins þegar það lyftist frá botni. Í dag munu kafarar skoða skipið frekar og verður þá tekin endanleg ákvörðun um aðgerðir. Verði niðurstaðan að hefja dælingu úr skipinu er stefnt að því að sú vinna hefjist kl. 17 og ljúki um miðnætti takist vel til. Hátt í tuttugu manna teymi af köfurum vann að því að þétta Perl- una og koma í veg fyrir mengun. Öll neðansjávarvinna er í höndum Kafaraþjónustu Sigurðar ehf. og voru kafararnir um eina til þrjár klukkustundir í senn undir yfir- borði sjávar. Var öllum öndunar- götum, öllum mögulegum stöðum þar sem áfyllingargöt eru, þar sem mögulega getur komið olía inn eða út úr skipinu til að koma í veg fyrir mengun. Götunum er lokað með sérstökum þéttibúnaði. Eru kafararnir um eina til þrjár klukkustundir í senn undir yfir- borði sjávar. „Fyrsti og eini valkosturinn“ Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna, segir að engir aðrir kostir hafi verið skoðaðir en þessi tillaga og unnið verði eftir henni. „Þetta var fyrsti og eini valkost- urinn. Menn hreyfa ekki skipið þar sem það er. Ef það ætti að hífa það upp þá þyrfti að bíða eftir stórum pramma. Menn telja þetta skyn- samlega lausn og við sjáum til hvort þetta lukkist,“ segir Gísli fullur bjartsýni. „Við erum enn svolítið að ganga á adrenalíni. Við höfum líka íslenska bjartsýnin að vopni,“ segir hann og hlær þrátt fyrir alvarlega stöðu. Hann segir að staðan verði skoðuð eftir að kaf- arar hafi skoðað skipið klukkan tíu. „Við stefnum að því að gera þetta eins og tillagan segir. Það ræðst af síðustu skoðun kafara. En það er unnið að því að tillagan verði fram- kvæmd.“ Gömul en sterk bryggja Gísli bendir á að þó að Ægis- garður sé gömul bryggja þá sé hún sterk og muni þola álagið vegna kranans. „Bryggjan hefur verið í skoðun. Hún er gömul og slitin en hún er traustari en hún lítur út fyrir. Kraninn verður aðeins til að styðja við en ekki að hífa og við trúum því að bryggjan muni halda.“ Morgunblaðið/Styrmir Kári Hetjur undirdjúpanna Um 20 manna teymi af köfurum vann að því að þétta Perluna og koma í veg fyrir mengun. Dæla á 715 tonnum af sjó úr Perlunni  Ef allt gengur að óskum verður Perlan á floti um miðnætti Fjarskiptafyrirtækið Nova nálgast nú óðfluga Símann í fjölda viðskipta- vina að farsímaneti. Þetta kemur fram í tölfræðiskýrslu Póst- og fjar- skiptastofnunar (PFS) um fjarskipta- markaðinn á Íslandi fyrir fyrri helm- ing ársins 2015. Aðeins munar rúm- um átta þúsund viðskiptavinum hjá þeim sem eru með fulla áskrift. Sím- inn er með 150 þúsund viðskiptavini, Nova 142 þúsund, Vodafone hefur 113 þúsund og 365 er með um 15 þús- und viðskiptavini. Munurinn á Sím- anum og Nova var 30 þúsund árið 2013. Alls eru 423 þúsund farsímaá- skriftir hér á landi, 378.629 í farsím- um og 44.915 símkort í öðrum snjall- tækjum. Þegar skoðaður er fjöldi fyrirfram- greiddra símakorta sem voru virk síðustu 3 mánuði ber Nova höfuð og herðar yfir aðra, með um 55% hlut- deild á meðan Síminn er næstur með 22%. Enginn kemst með tærnar þar sem Síminn er með hælana á fastlínumark- aðnum. Er hann með 61% markað- arins á meðan Vodafone er með 22,2% í öðru sæti. Viðskiptavinir Nova nota símann sinn langmest allra. Þeir sendu um 65% allra sms- og mms-skilaboða og notuðu um 65,5% af öllu gagna- magni sem Íslendingar nota. Gagna- magn á farsímaneti hefur aukist gríð- arlega frá 2009. Er nú um 4,5 milljónir gígabæta en var undir 500 þúsund árið 2009. Alls eru 113 skráð fyrirtæki á fjarskiptamakaðnum. Stærstu fyrirtækin á fyrri helmingi ársins 2015 voru Síminn hf., Fjar- skipti hf. (Vodafone), Nova ehf. og 365 Miðlar ehf., (Tal). benedikt@mbl.is Nova nálgast Símann í áskrifendafjölda  113 skráð fjarskiptafyrirtæki Fáir Símaklefar eru nú 4 á landinu. Viðræður kjaramálanefndar Sam- bands íslenskra sveitarfélaga og samninganefnda starfsmannafélaga sveitarfélaga innan BSRB og starfs- manna sveitarfélaga innan ASÍ héldu áfram hjá ríkissáttasemjara í gær. Um er að ræða um 40 félög og í þeim eru um 10.000 starfsmenn í um 6.000 stöðugildum hjá sveitarfélög- unum, að sögn Ingu Rúnar Ólafs- dóttur, sviðsstjóra kjarasviðs sveit- arfélaganna. Hún sagði að í viðræðunum væri m.a. horft til SALEK-samkomulags- ins sem var undirritað 27. október sl. ASÍ, BSRB og Samband íslenskra sveitarfélaga voru á meðal þeirra heildarsamtaka launafólks og at- vinnurekenda sem skrifuðu undir samkomulagið. Inga Rún vildi ekki spá neinu um hvenær mætti vænta niðurstöðu í viðræðunum. „Við erum á fullu að vinna núna,“ sagði Inga Rún. „Við biðum eftir því að kjarasamn- ingar kláruðust við ríkið. Nú erum við að byrja að ræða við sveitarfélög- in. Það er ljóst að staðan í viðræðun- um við sveitarfélögin er allt önnur en í viðræðunum við ríkið,“ sagði Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður samninganefndar BSRB, fyrir starfsmenn bæjarfélaga. Hún sagði að sveitarfélögin hefðu lagt fyrstu hugmyndir sínar á borðið síðdegis í gær og voru nefndarmenn að fara yf- ir þær eftir að samningafundinum lauk síðdegis. Kjaraviðræðunum verður haldið áfram í dag. gudni@mbl.is Önnur staða en í viðræðum við ríkið Umferðin um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á hringveginum jókst um 12,5 prósent í október og hafa aldrei fleiri mælst á ferð um hringveginn í októ- ber. Nú stefnir í að umferðin árið 2015 verði 5,5 pró- sentum meiri en árið 2014 og með því verður slegið met í umferðinni. Gríðarleg aukning varð í umferð á öllum land- svæðum, en mest jókst umferðin um Austurland eða um tæp 36%, en minnst um höfuðborgarsvæðið um rúmlega 8%. Aldrei fleiri á ferðinni í október

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.