Morgunblaðið - 04.11.2015, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2015
Hvers vegna leggja sumbörn önnur í einelti? Ínýjasta leikriti HeiðarsSumarliðasonar, (90)210
Garðabær, má ljóst vera að það læra
börnin sem fyrir þeim er haft. Út-
gangspunktur verksins er einelti í
grunnskóla, en í stað þess að einblína
á börnin skoðar Heiðar fullorðna
fólkið sem stendur börnunum næst.
Þannig tekst honum að beina sjónum
sínum að fólki, sem í krafti auðs og
valds telur sig hafið yfir aðra og
finnst sjálfsagt að nota samferðafólk
sitt í eigin þágu og ryðja þeim úr vegi
sem eru fyrir. Freistandi er raunar
að skoða verkið í stærra samhengi
með allt þjóðfélagið og skipan þess
undir.
Í upphafi leikritsins trúir Sóley
vinkonum sínum, þeim Steinunni og
Bergdísi, fyrir því að tíu ára sonur
hennar verði fyrir einelti í skólanum
og hefur eftir honum að kvalarinn sé
bekkjarbróðir sem búi með móður
sinni í íbúð á vegum félagsmála-
yfirvalda í Garðabæ. Sóley vill hjálpa
syni sínum, en veit ekki hvernig best
er að höndla hlutina. Vinkonurnar
nánast neyða hana til að taka málin í
eigin hendur, en það inngrip fer
öðruvísi en upphaflega stóð til. Fyrsti
þriðjungur verksins gerist fyrir inn-
gripið og restin eftir það, en líkt og í
grískum harmleikjum fá áhorfendur
ekki að sjá atburðina sem öllu breyta
heldur aðeins heyra um þá.
Í matarboði Steinunnar (Vigdís
Másdóttir) og eiginmanns hennar,
Lofts (Stefán Hallur Stefánsson),
sem fram fer daginn eftir inngripið
afdrifaríka, má ljóst vera að atburð-
irnir hafa haft mjög ólík áhrif á vin-
konurnar þrjár. Steinunn og Bergdís
(Svandís Dóra Einarsdóttir) halda
áfram eins og ekkert hafi í skorist og
eru eins og klettar í hafi en Sóley
(María Heba Þorkelsdóttir) er á
barmi taugaáfalls og leitar huggunar
í sterkum vímugjöfum. Matargest-
urinn og félagsráðgjafinn Reynir
(Sveinn Ólafur Gunnarsson) reynist
síðan lentur í ljónagryfju án þess að
átta sig á því fyrr en um seinan, enda
leika Steinunn, Bergdís og Loftur sér
að honum eins og köttur að mús.
Uppfærsla Leikfélagsins Geirfugls
er kröftug og iðulega býsna fyndin.
Greinilegt er að höfundi liggur mikið
á hjarta og hefur gott auga fyrir svið-
setningunni, en hann leikstýrir eigin
texta. Vandinn er hins vegar sá að
leikararnir fá heilt yfir ekki úr nógu
safaríkum efnivið að moða. Þannig
eru persónur verksins of tvívíðar og
breytast lítið sem ekkert í framvindu
leiksins.
Stefán Hallur fær safaríkasta mol-
ann og gerir sér mikinn mat úr Lofti.
Umskipti hans úr tiplandi og kúg-
uðum eiginmanni yfir í froðufellandi
óargadýr voru áhrifarík. Einnig er
eftirminnileg senan þegar Loftur
leikur lagið „Brot“ eftir Svavar Knút
fyrir Reyni og segir frá samskiptum
sínum við tónlistarmanninn. Slíkar
beinar vísanir inn í samtímann vöktu
mikla kátínu áhorfenda.
Svandís Dóra var tilkomumikil
Bergdís og vakti óhug í ískaldri ein-
beitingu sinni í hita leiksins. Höf-
undur hefði hins vegar mátt undir-
styðja betur viðkvæmni hennar fyrir
gagnrýni á fjölskrúðugt ástarlíf
hennar. Einnig hefði þurft að undir-
byggja betur drauma Reynis um
aukin áhrif og völd. Síðast en ekki
síst var áhorfendum það ráðgáta
hvers vegna Steinunn og Bergdís
hafa viljað umgangast Sóleyju, sem
virðist alls ekki af sama sauðahúsi og
þær.
Umgjörð Kristínu R. Berman er
smart og kallast með góðum hætti á
við innihaldið. Heimili Steinunnar og
Lofts er mínímalískt og kalt í gráum
tónum, en tröppur upp að sviðinu eru
klæddar gervigrasi og nýttar sem
garður þeirra hjóna. Vegglýsingin
gefur réttu stemninguna og Magnús
Arnar Sigurðarson nýtir ljósabreyt-
ingar vel til að skipta um fókus. Bún-
ingar Júlíönnu Láru Steingríms-
dóttur eru stílhreinir og þjóna
persónum vel. Litir eru notaðir til að
undirstrika tengsl og eftir atvikum
tengslaleysi. Þannig eru Steinunn og
Loftur samstillt í bláum og mjög
formlegum dressum í matarboðinu
en Bergdís og Sóley klæðast svörtu. Í
þessu samhengi stingur brúnn
klæðnaður Reynis í stúf.
Þrátt fyrir framangreinda galla er
(90)210 Garðabær þrælskemmtileg
og knöpp sýning þar sem svartur
húmor er nýttur til að beina sjónum
að spillingarmætti valdsins sem er
gömul saga og ný.
Svartur húmor „Þrátt fyrir framangreinda galla er (90)210 Garðabær þrælskemmtileg sýning þar sem svartur
húmor er nýttur til að beina sjónum að spillingarmætti valdsins sem er gömul saga og ný,“ segir m.a. í rýni.
Gömul saga og ný
Þjóðleikhúsið
(90)210 Garðabær bbbnn
Höfundur og leikstjóri: Heiðar Sumar-
liðason. Dramatúrg: Bjartmar Þórðar-
son. Leikmynd: Kristína R. Berman.
Búningar: Júlíanna Lára Steingríms-
dóttir. Lýsing: Magnús Arnar Sigurðar-
son. Leikarar: María Heba Þorkelsdóttir,
Stefán Hallur Stefánsson, Svandís Dóra
Einarsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson
og Vigdís Másdóttir. Leikfélagið Geir-
fugl frumsýndi í Kassanum í Þjóðleik-
húsinu föstudaginn 30. október 2015.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
„An Issue of Structure“ er rann-
sóknarverkefni sænsku listakon-
unnar Snövit Hedstierna. Með verk-
efninu hyggst hún skapa stærsta
hljóðasafn um jafnrétti kynjanna á
Norðurlöndum sem nýst getur fyrir
Global Gender Gap Report, þar sem
Ísland, Noregur, Svíþjóð, Finnland
og Danmörk eru talin þau lönd í
heiminum þar sem mestu kynjajafn-
rétti hefur verið náð.
„Verkefnið sem núna er verið að
taka upp á Íslandi, Noregi, Finn-
landi, Danmörku og Svíþjóð mun
samanstanda af 250-500 einstökum
röddum og upptökum af viðtölum
þar sem fjallað er um persónulega
reynslu af kynjapólítík, jafnrétti og
strúktúr kynjanna,“ segir m.a. í til-
kynningu, en þar kemur fram að
hljóðasafnið verður aðgengilegt á
netinu auk þess að verða undir-
staðan fyrir gagnvirka hljóðinnsetn-
ingu sem verður sýnd á öllum Norð-
urlöndum árið 2016.
Listakonan leitar að konum sem
þátt vilja taka í verkefninu hér-
lendis. „Upptökur verða gerðar í
þriggja til fimm manna hópum þar
sem hver þátttakandi svarar spurn-
ingum um persónulega reynslu
varðandi jafnrétti kynjanna. Upp-
tökurnar eru gerðar nafnlausar og
taka venjulega tvær til fjórar klst.
fyrir hvern hóp,“ segir í tilkynningu,
en þar kemur fram að Hedstierna
þurfi 50 til 100 konur í hverju landi.
Upptökur hérlendis fara fram
dagana 7.-17. nóvember nk. Þær
sem vilja taka þátt eru hvattar til að
senda listakonunni tölvupóst á net-
fangið: hello@snowwhite.se. Hægt
er að kynna sér fyrri verk Snövit
Hedstierna á vefsíðunni snowwhi-
te.se, en listakonan er með MFA-
gráðu frá Concordia University í
Kanada, MFA frá Valand Academy í
Gautaborg í Svíþjóð og er núna
gestalistamaður í Royal Academy of
Arts í Stokkhólmi.
Hljóðasafn um jafnrétti
Listakonan Snövit Hedstierna leit-
ar að íslenskum viðmælendum.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fös 6/11 kl. 19:00 Lau 21/11 kl. 19:00 Fim 3/12 kl. 19:00
Fim 12/11 kl. 19:00 Sun 22/11 kl. 19:00 Fös 4/12 kl. 19:00
Fös 13/11 kl. 19:00 Fös 27/11 kl. 19:00 Fös 11/12 kl. 19:00
Fös 20/11 kl. 19:00 Lau 28/11 kl. 19:00 Lau 12/12 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Dúkkuheimili (Stóra sviðið)
Sun 8/11 kl. 20:30
Allra síðustu sýningar!
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fös 6/11 kl. 20:00 8.k. Fös 20/11 kl. 20:00 10.k Fös 18/12 kl. 20:00
Fim 12/11 kl. 20:00 aukas. Lau 5/12 kl. 20:00
Fös 13/11 kl. 20:00 9.k Fös 11/12 kl. 20:00
Kenneth Máni stelur senunni
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 8/11 kl. 13:00 9.k Sun 22/11 kl. 13:00 Sun 6/12 kl. 13:00
Sun 15/11 kl. 13:00 Sun 29/11 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi kemur aftur
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Fim 5/11 kl. 20:00 4.k. Lau 7/11 kl. 20:00 6.k. Fim 12/11 kl. 20:00 8.k.
Fös 6/11 kl. 20:00 5.k. Sun 8/11 kl. 20:00 7.k. Fös 13/11 kl. 20:00 9.k
Hundur í óskilum snúa aftur
Sókrates (Litla sviðið)
Fim 5/11 kl. 20:00 12.k Mið 25/11 kl. 20:00 Sun 13/12 kl. 20:00
Lau 14/11 kl. 20:00 13.k Lau 28/11 kl. 20:00 Lau 19/12 kl. 20:00
Lau 21/11 kl. 20:00 14.k Fös 4/12 kl. 20:00
Sun 22/11 kl. 20:00 15.k Lau 12/12 kl. 20:00
Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina
Vegbúar (Litla sviðið)
Mið 4/11 kl. 20:00 10.k Sun 15/11 kl. 20:00 13.k Fim 26/11 kl. 20:00
Lau 7/11 kl. 20:00 11.k Mið 18/11 kl. 20:00 Fös 27/11 kl. 20:00
Sun 8/11 kl. 20:00 12.k Fim 19/11 kl. 20:00
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Mávurinn (Stóra sviðið)
Mið 4/11 kl. 20:00 7.k. Lau 14/11 kl. 20:00 9.k Fim 26/11 kl. 20:00
Lau 7/11 kl. 20:00 8.k. Fim 19/11 kl. 20:00 Sun 29/11 kl. 20:00
Krassandi uppfærsla á kraftmiklu meistaraverki
Hystory (Litla sviðið)
Mið 11/11 kl. 20:00 aukas. Þri 24/11 kl. 20:00 allra
síðasta sýn.
Allra síðusta sýning!
Og himinninn kristallast (Stóra sviðið)
Fim 5/11 kl. 20:00 Mið 2/12 kl. 20:00
Sun 15/11 kl. 20:00 Lau 5/12 kl. 20:00
Inniflugeldasýning frá Dansflokknum
Dúkkuheimili, allra síðasta sýning!
65 20151950
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Fim 5/11 kl. 19:30 20.sýn Lau 21/11 kl. 19:30 27.sýn Lau 12/12 kl. 19:30 36.sýn
Fös 6/11 kl. 19:30 Aukas. Sun 22/11 kl. 19:30 28.sýn Mið 30/12 kl. 15:00 37.sýn
Sun 8/11 kl. 19:30 22.sýn Fim 26/11 kl. 19:30 Aukas. Mið 30/12 kl. 19:30 38.sýn
Mið 11/11 kl. 19:30 Aukas. Lau 28/11 kl. 19:30 29.sýn Lau 2/1 kl. 15:00 39.sýn
Fim 12/11 kl. 19:30 23.sýn Sun 29/11 kl. 19:30 30.sýn Lau 2/1 kl. 19:30 40.sýn
Fös 13/11 kl. 19:30 24.sýn Lau 5/12 kl. 19:30 31.sýn Sun 10/1 kl. 19:30
Lau 14/11 kl. 15:00 Aukas. Sun 6/12 kl. 19:30 32.sýn
Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Fös 11/12 kl. 19:30 35.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Móðurharðindin (Kassinn)
Fim 5/11 kl. 19:30 24.sýn Mið 11/11 kl. 19:30 18.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 27.sýn
Sun 8/11 kl. 19:30 25.sýn Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Fös 20/11 kl. 19:30 30.sýn
Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna.
Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið)
Lau 7/11 kl. 22:30 5.sýn Lau 21/11 kl. 22:30 7.sýn Mið 2/12 kl. 19:30 9.sýn
Fim 19/11 kl. 19:30 6.sýn Mið 25/11 kl. 19:30 8.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Heimkoman (Stóra sviðið)
Mið 4/11 kl. 19:30 3.sýn Sun 15/11 kl. 19:30 9.sýn Fös 27/11 kl. 19:30 11.sýn
Lau 7/11 kl. 19:30 8.sýn Fös 20/11 kl. 19:30 10.sýn Fös 4/12 kl. 19:30 12.sýn
Meistaraverk Nóbelsskáldsins Pinters.
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Lau 7/11 kl. 13:30 Lau 7/11 kl. 15:00
Síðustu sýningar.
(90)210 Garðabær (Kassinn)
Fös 6/11 kl. 19:30 3.sýn Fim 12/11 kl. 19:30 5.sýn Sun 22/11 kl. 19:30 7.sýn
Lau 7/11 kl. 19:30 4.sýn Fös 13/11 kl. 19:30 6.sýn
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Sun 8/11 kl. 14:00 Sun 15/11 kl. 14:00
Sun 8/11 kl. 16:00 Sun 15/11 kl. 16:00
Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu
4:48 PSYCHOSIS (Kúlan)
Lau 28/11 kl. 17:00 Sun 29/11 kl. 17:00
DAVID FARR
HARÐINDIN